Deila á Facebook
« Kókisti á versta stigi | Aðalsíða | Reykingabann á Íslandi? »

Handbolti ofl.
Skrifað miðvikud. 31. janúar 2007 - 12:49
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það mætti alveg segja að ég sé svolítið miður mín vegna leiksins í gær en við töpuðum því miður 42-41 fyrir Danmörku.

Það sem mér finnst hefði mátt betur fara í leiknum var bæði vörnin hjá okkur og sóknin. Hefðum við slappað aðeins af í sókn þegar við vorum með boltann og staðan var 40-40, hefðum við unnið! Ekki spurning. Slappa aðeins af þangað til 20 sekúndur væru eftir og skora þá. Þá hefðu danirnir ekki átt séns á að skora og við hefðum unnið. Ef það hefði mistekist hefði verið framlengt eins og gert var, en þetta var bara eintóm heppni að jafna þá í seinni hálfleik.

Mér finnst við einnig hafa verið allt of linir oft á tíðum í vörninni. Ég sá t.d. mjög sjaldan hendurnar uppi hjá okkur. En mér finnst algjör snilld að við gátum oft á tíðum verið mjög harðir í vörninni án þess að fá það dæmt á okkur, þ.e. 2 mínútur. Einnig vorum við allt of fljótfær í sókninni. Við gerðum oftast einhver fljótfærnismistök og enduðum bara á því að skora með heppni. Það hefði nú alveg mátt SPILA svolítið en ekki ana út í einhverja vitleysu.

En þetta var án efa einn mest spennandi handboltaleikur sem ég hef horft á. 2x 5 mínútna framlenging og svo eintómt heppnismark hjá dönum þarna í lokin. Fussum svei!


En það hefur ekki margt skeð undanfarið. Ég hef bara verið á fullu í skólanum. Allt brjálað að gera þar þessa vikuna, þar sem ég er í prófi á hverjum einasta degi. Sögupróf í dag, sem ég lærði fyrir í alla nótt, íslenskupróf á morgun úr Snorra-Eddu og svo Landafræðipróf á föstudaginn. Maður fær bara engan frið.

En það er löng vinnuhelgi framundan. Ég verð að vinna bæði föstudag og laugardag frá 5 til 4 um nótt. Sem þýðir ekkert djamm hjá mér. Er það ekki bara annars fínt? Smá djammpása fyrir sumarbústaðinn þar næstu helgi. Það verður ekki hægt að lýsa því hvað það verður gaman. En ég er ekki að fíla það að strákarnir ætli að bjóða einhverjum stelpum með. Jói ætlar víst að "redda" einhverjum Verzlóstelpum sem eru ábyggilega allar 90 árgerð. Ég viðurkenni nú að ég vil frekar vera með vinum mínum og hafa það gaman en að vera með einhverjum gelgjum. Ég þoli ekki gelgjur!

En smá varðandi Byrgismálið ógurlega. Fjórða konan hefur kært Guðmund í Byrginu fyrir kynferðislegt samband á meðan hún var skjólstæðingur hans í Byrginu. Merkilegt nokk, fjórða konan! Ég vissi ekki einu sinni að þriðja konan hefði kært hann. En hún gerði það víst í síðustu viku. Skemmtilegt að sjá hvernig þetta fer.

En það sem er án efa heitast í fréttum í dag er fangavarðamálið...

Um helmingur fangavarða í landinu hefur sagt upp

Rétt um helmingur allra fangavarða í landinu hefur skilað inn uppsagnarbréfi til Fangelsismálastofnunar vegna mikillar ónægju með kjör sín. Fangaverðir eru ósáttir við að þeir hafi dregist aftur úr lögreglumönnum í launum en laun þessara tveggja stétta héldust lengi vel í hendur.

Fara fangaverðir fram á 30 prósenta launahækkun til þess að brúa bilið en að sögn þeirra hefur gengið illa að manna stöður vegna þessa. Alls eru 82 fangaverðir starfandi í fimm fangelsum í landinu, langflestir á Litla-Hrauni, en einnig á Kvíabryggju, Akureyri, í Kópavogi og Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Að sögn Hólmfríðar Árnadóttur, starfsmannastjóra hjá Fangelsismálastofnun, höfðu um 40 uppsagnarbréf borist í gær og átti hún von á fleirum í dag.

Fangavörðum er óheimilt samkvæmt lögum að fara í verkfall og því er uppsögn eina úrræði þeirra. Þær upplýsingar fengust hjá SFR, sem fer með samningsumboð fyrir fangaverði, að engar formlegar viðræður væru við stjórnvöld um málið en ráðamenn hefðu verið upplýstir um í hvað stefndi áður en það kom til uppsagna.

- Vísir.is

Mér finnst þetta bara ekkert skrítið! Ef ég væri fangavörður myndi ég að vitaskuld fara fram á sömu kjör og lögreglumenn, þar sem þetta er nokkurn veginn sama vinnan. Löggan sér um að fanga glæpamenn, fangaverðir sjá um að gæta þeirra. En hvernig ætli þetta verði ef ríkið ákveður að bæta ekki kjör þeirra og þeir segja allir upp? Fangavarðalaus fangelsi?

Ég sé einmitt fyrirsögnina fyrir mér í blaðinu: „Glæpaalda herjar á Íslandi“.




Athugasemdir ():