Deila á Facebook
« Atvik í vinnunni í kvöld | Aðalsíða | Loksins laus við MSN! »

Strangur dagur
Skrifað mánud. 21. nóvember 2005 - 16:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vaknaði kl 8 í morgun, fékk mér að snæða og lagði svo af stað í skólann.

Þegar ég var kominn upp í skólann, las ég á töflunni yfir forföll kennara og þar var kennarinn sem átti að kenna mér. Þannig ég fór bara og sótti pabba upp á verkstæði og fór svo heim.
Svo fór ég aftur í tíma kl 11:20 og var búinn 12:40, fer þá og fæ mér að borða og fer svo heim.
Kl 14:50 fer ég aftur í skólann (rosa flakk á manni alltaf) og eftir tíma fer ég bara heim.

Núna er ég staddur hér fyrir framan tölvuskjáinn og hef ekkert að gera. Alveg yndislegt þegar manni leiðist svona. Spurning um að kíkja í bíó í kvöld. Þið megið alveg koma með hugmyndir um hvaða mynd ég ætti að fara að sjá. Valið myndi þá vera á milli Serenity, Kiss Kiss, Bang Bang, Into The Blue, Four Brothers og Flightplan.

Dofri benti mér á Gumma vin minn í DV þar sem var spurt hvort að hann væri hlynntur því að samkynhneigður fengu að eiga börn. Þið getið skoðað þetta hér.

Ég á að gera einhverja heimildaritgerð um Samkynhneigð fyrir Félagsfræði. Ef þið eigið eða vitið um einhverja ritgerð sem ég get notað, endilega bjallið í mig.

Mig langaði svo að hafa lista yfir heimasíður fólks sem ég þekki þannig ég tók mig til og henti upp svona tenglalista sem þið getið skoðað hér. Mér leið illa yfir því að allir voru að linka á mig en ég var ekki með linka á neina.

Pæling dagsins:
Er það framhjáhald ef að stelpa í sambandi með strák kyssir vinkonu sína með frönskum kossi?

Gáta dagsins:
Þú ert inni í í fangaklefa og ert að bíða eftir dauða þínum. Inni í klefanum eru tvær hurðir og eru tveir fangaverðir sem vakta þær hurðir. Einn fangavörðurinn segir alltaf satt og hinn lýgur alltaf.

Hér kemur spurningin: Hvernig komist þið út úr fangaklefanum ef þið hafið einungis eina spurningu handa báðum fangavörðunum?

Lag dagsins:
Three Days Grace - Let You Down




Athugasemdir ():