Skerðing á frelsi okkar?
Skrifað föstud. 16. febrúar 2007 - 01:15Eins og eflaust flestir vita þá hefur frumvarpið um reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum verið samþykkt og koma þær breytingar á 1. júlí nk.
Svo ég vitni nú svolítið í lögin...
Mér finnst alveg ferlega skítt að ríkisstjórnin ætli að ráðskast svona með fólk. Sagt er að markmið laganna sé að vernda starfsmenn á veitinga- og skemmtistöðum fyrir óbeinum reykingum og þeim skaða sem þær geta valdið.
Allt í lagi með það, en ÞURFA þeir sem reykja ekki að vinna á stöðum sem reykt er á? Mér finnst nú bara þeir sem vinna á stöðum sem reykt er á og eru svona á móti reykingum, að þeir ættu nú bara að finna sér aðra vinnu.
Ég er sammála Björgvini G. Sigurðssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, um að skynsamlegra væri að skoða aðrar leiðir þar sem þetta hlyti að brjóta gegn friðhelgi einkalífsins.

En þá kemur spurningin: Hvaða aðrar leiðir eru til?
Það mætti jú auka loftstreymið á staðnum víst reyklausir starfsmenn eru að kvarta svona mikið. Einnig væri hægt að leyfa þessum reyklausu starfsmönnum að vinna á reyklausum svæðum innan vinnustaðarins. T.d. á veitinga- og skemmtistöðum eru oftast svona reyklaus svæði þar sem bannað er að reykja á.
Mér persónulega finnst þetta reykingabann eigi ekki eftir að verða til neins góðs. Ég hef heyrt mjög marga reykingamenn segja að þeir ætli nú bara að hætta alfarið að djamma þegar reykingabannið kemur á þann 1. júlí nk. Ég hef einnig heyrt nokkra reyklausa menn segjast einnig ætla að hætta að djamma þar sem „stemmningin“ eigi ekki eftir að verða rétt og að reykingaloftið sé ákveðinn partur af stemmningunni.
Ég sé t.d. ekki fyrir mér fólk fara út til þess að reykja. Ég sé heldur ekki fyrir mér reyklausa skemmtistaði, þar sem það verða alltaf einhver brot á þessum „lögum“. Það verður eflaust eitthvað um að fólk ákveður saman í hóp að kveikja sér í sígarettu. Og hvað þá? Allir út?! Ég tel að veitinga- og skemmtistaðir eigi eftir að tapa mjög á þessum heimskulegu lögum og í sannleika sagt get ég ekki séð fram á að þetta muni virka.
Hjá reykingamönnum, jafnt sem þeim sem reykja „bara á djamminu“ (e. social smokers) er ákveðinn fylgifiskur að fá sér sígarettu þegar maður er í glasi. Ég get t.d. ekki fengið mér bjór án þess að fá mér sígarettu með. Það er bara gjörsamlega ógerlegt! Þetta er svona svipað og þú verður að fá þér kokteilsósu eða tómsatsósu með frönskum. Góð viðlíking, en you get my point. Reykingar eru stór og mikilvægur þáttur í skemmtanalífi!
Það er ekki nóg með að þessi ríkisstjórn okkar vilji banna reykingar, heldur vilja þeir einnig banna ljósabekkjanotkun. Hvað gerum við þá til þess að verða brún og fín? Ekki nefna spraytan eða utanlandsferðir, þar sem spraytan er ljótt og utanlandsferðir kosta mikla peninga - sem margir eiga ekki.
Í byrjun vilja þeir banna ljósabekki á opinberum stöðum eins og sundlaugum og líkamsræktarstöðvum, en þeir segja að það sé bara tímaspursmál hvenær ljósabekkir verði alfarið bannaðir.
Ég styð alveg fullkomlega bannið á ljósabekkjum í sundlaugum og líksamsræktarstöðvum, þar sem það snýr allt að heilsu og það er bara staðreynd að ljósabekkir eru óhollir og ýta undir myndun húðkrabba. Þetta er svipað og ef það væru seldar sígarettur í World Class. Er það ekki einum of? En almennt bann á þá finnst mér engan veginn réttlætanlegt, þar sem fólk ætti að mega ráða því hvort það stundi þá eða ekki.
Sem sagt, við, kæru Íslendingar, megum búast við því að það verði sett bann á allt í nákominni framtíð.
Er þetta ekki nóg komið? Eigum við okkur ekki sjálf og ráðum hvort við reykjum, borðum blá M&M eða stundum óhóflega ljósabekkjanotkun?
Svo ég vitni nú svolítið í lögin...
Skv. lögum um tóbaksvarnir
9. gr. [Tóbaksreykingar eru óheimilar í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þ.m.t. íþrótta- og tómstundastarf. Sama gildir um tilsvarandi svæði utan húss séu þau ekki nægilega opin til að tryggja viðunandi loftstreymi.]1)
1)L. 83/2006, 4. gr. Breytingin kemur til framkvæmda 1. júní 2007 skv. 6. gr. s.l.

Athugasemdir (