Deila á Facebook
« Húsapælingar | Aðalsíða | Opinbert bréf til feminista »

Klámráðstefnan afboðuð!
Skrifað fimmtud. 22. febrúar 2007 - 15:27
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Klámráðstefnan, sem gjörsamlega sprengdi fjölmiðla, pólitíkusa og feminista upp úr öllu valdi nú um daginn, hefur verið afboðuð. Gestirnir höfðu bókað gistingu dagana 7. - 11. mars. Ástæðan er sú að stjórn Bændasamtaka Íslands, sem eiga m.a. Hótel Sögu, vilja lýsa vanþóknun sinni á starfsemi þeirra.

Þetta finnst mér nú full langt gengið hjá stjórn Bændasamtakanna. Þeir eru með þessu að brjóta íslensk mannréttindalög og ætti þeim að vera refsað fyrir vikið.

65. gr. [Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Ég tel meginástæðu þessara ákvarðana vera skoðanir feminista og þröngsýnna pólitíkusa, sem líta því miður ekki á myndina í heild sinni.

Í raun er ég það hneykslaður á þessari ákvörðun Bændasamtakanna að ég hugsa að ég komi nú ekki til með að eiga í neinum viðskiptum við þá í framtíðinni, þ.á.m. Hótel Sögu. Ég legg einnig til að þið, kæru lesendur, sniðgangið þessi samtök og þar með talin fyrirtæki sem ganga undir nafni þessara samtaka.

Það er búið að vera allt brjálað í fjölmiðlum og hér í bloggheiminum undanfarnar vikur út af þessari blessuðu ráðstefnu. Nú hefur Hótel Saga bætt olíu á eldinn með því að meina ráðstefnugestum að dvelja hjá sér.

Nú spyr ég: Hvað er næst? Ætla þeir að ganga enn lengra og meina öðrum minnihlutahópum vistarleyfis á sínu merkilega hóteli? Af hverju gera þeir það ekki bara og neita t.d. öllum útlendingum um vist þar. Við sem þjóð gætum allavega ekki farið neðar í áliti annarra. Eins og sagt er á góðri lensku: „We've hit the bottom!“.

Hótel Saga eru búnir að gera heiftarleg mistök sem verða því miður ekki tekin til baka. Hótel Saga, fyrir hönd Íslands, eru búnir að koma Íslandi í sama fasistaflokk og Kína, Kúba, Sádi Arabía, Norður Kórea, o.s.frv. og þökk sé þeim prýðir þessi yfirlýsing um Ísland í heild sinni. Hótel Saga gátu ekki litið á myndina í heild sinni, heldur þurftu þeir að stökkva á svona heimskulegar ákvarðanir. Hreinir og beinir fordómar!

Ég bölva Bændasamtökunum, Hótel Sögu, feministum og þröngsýnum pólitíkusum, þ.á.m. Vilhjálmi Þ., Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu!




Athugasemdir ():