Deila á Facebook
« Loksins laus við MSN! | Aðalsíða | Smá lægð og smá breytingar »

WordPress opnar bloggþjónustu
Skrifað þriðjud. 22. nóvember 2005 - 13:35
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
WordPress, blogg kerfið fræga, hefur nú opnað bloggþjónustu fyrir almenning, svipað og blogspot/blogger, blog.central.is, fólk.is, emmblog ofl. bloggþjónustur.

Það eina sem þið þurfið að gera er að fara inn á http://wordpress.com/signup/ og skrá ykkur. Þá fáið þið bloggsíðu sem yrði t.d. http://nafn.wordpress.com. Ég prófaði þetta og bjó til http://gaui.wordpress.com. Ég á samt aldrei eftir að nota þetta. Mig langaði bara að prófa þetta.

En já, ef ykkur vantar fría bloggsíðu með einu vinsælasta bloggkerfinu, skulið þið ekki hika við að fá ykkur svona.

Þið getið samt ennþá náð í WordPress og sett upp á ykkar eigin þjónum, en til þess verðið þið að fara inn á http://wordpress.org og sækja nýjustu útgáfuna.




Athugasemdir ():