Bláa lónið - Unaðslegt!
Skrifað fimmtud. 1. mars 2007 - 21:47Ég gleymdi því miður að skrifa um gærdaginn en hann var æðislegur. Það voru þemadagar (skóhlífadagar) í skólanum mínum þannig það var skylda hjá öllum nemendum skólans að skrá sig í eitthvað kl. 9 og 13 á miðvikudegi og svo eitthvað í dag kl 9. Ég skráði mig í skíðaferð, sem breyttist svo í göngu og bláalónsferð - vegna snjóleysis að undanförnu.
Ég var mættur upp í skóla á slaginu 9 í gær. Þá kom í ljós að rútan kæmi ekki fyrr en kl 10. Ég fór þá að spá í því hvað rúta hefði að gera með göngu. Jú jú, þá vorum við víst að fara til Grindavíkur að ganga upp Þorbjörninn - sem sagt fjallgöngu. Mér leist ekki á blikuna þar sem oftast þegar hefur verið ganga hefur það verið í kringum Grafarvoginn eða eitthvað svipað. Nei nei, núna var það bara fjallganga!
Ég brunaði þá heim, skipti um skó og sótti sunddótið mitt. Ég ætlaði fyrst til að byrja með ekki ofan í, í Bláa lóninu, en ég fékk víst engu ráðið um það. Það var skylda að borga 1500 kr. fyrir Bláa lónið og svo fékk maður ekki að ráða því hvort maður færi ofan í eða ekki. Þetta var ekki nógu sniðugt. Ég fór samt heim og náði í draslið mitt.
Svo varð kl 10 og rútan kom. Við fórum til Grindavíkur og svaf ég alla leiðina, þar sem ég fór ekkert allt of snemma að sofa nóttina áður. Svo þegar við komum fórum við út úr rútunni. Bjarna íþróttakennara fannst svo óhentugt að labba upp fjallið þar sem við komum að því, þannig við þurftum að labba í kringum hálft fjallið áður en við byrjuðum að labba upp það. Svo löbbuðum við upp og svo niður þar sem við komum að því. Hundleiðinlegt og drulluerfitt - en heilsunnar svo sannarlega virði. Svo var kveikt í einni í lokin til þess að verðlauna sig fyrir dugnaðinn.

Eftir gönguna fórum við með rútunni í Bláa lónið. Ég sem betur fer þekkti einn strák í hópnum og var það Haffi, sem er með mér í Live2Cruize. Ég, hann og Reynir vinur hans skelltum okkur að sjálfsögðu fyrst í sjoppuna til að kaupa eitthvað að borða. Það voru sko framreiddar pylsur þarna. Hvar var steikin?
En svo þegar við vorum komnir ofan í, í Bláa lónið, fórum við bara út um allt og slöppuðum af. Við fórum að sjálfsögðu að kísilnum eða „drullunni“ eins og svo margir kalla þetta. Við mökuðum vel framan í okkur, þar sem þetta er jú hollt fyrir húðina. Svo syntum við út um allt og að lokum þurrkuðum við þetta framan úr okkur. Það var líka svolítið kalt að halda hausnum upp úr svona lengi.
Svo þegar klukkan var orðin eitthvað ákveðið skelltum við okkur bara upp úr. Svo kom rútan og sótti okkur og keyrði okkur aftur upp í skóla. Þetta var frábær dagur og er ég mjög feginn að ég hafi ekki sleppt þessu. Þið sem hafið ekki farið þarna lengi (síðan breytingarnar voru gerðar), ég skora á ykkur að fara. Ég er sko neikvæður á allt svona en mér fannst þetta æðislegt!
En í dag vaknaði ég klukkan hálf 9 og skellti mér upp í skóla. Ég átti víst að fara í annað svona þemadæmi og var ég búinn að skrá mig í „íslenskt slangur“ fyrirlestur með Dóra DNA. Það var skítsæmilegt og kom mér mjög á óvart þegar þetta var búið kl 10. Dóri er fyndinn gaur.
Svo á morgun er frí í skólanum, þar sem það er bæði Glæsiballið í kvöld og svo er starfsdagur kennara á morgun. Yay!
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (