Helgin 2. - 5. mars
Skrifað þriðjud. 6. mars 2007 - 00:22Jæja, þá er komið að helgarblogginu ógurlega. Þetta var svo afskaplega dauð helgi að ég hef voða lítið til að skrifa um.
Um helgina var ég bara að vinna og var gjörsamlega brjálað að gera. Þessi leikhússýning hans Ladda er með svakalega aðsókn og komu mjög margir og borðuðu á Kringlukránni áður en þeir fóru í leikhúsið. Þannig það má eiginlega segja að það hafi verið brjálað að gera alla vaktina.
En eftir að eldhúsið lokaði byrjaði ballið. Roof Tops voru að spila en þeir eru einmitt ein af þessum hljómsveitum sem voru frekar frægir fyrir mörgum árum. Það varð til þess að það var fullt á ballið og röð alveg niður stigann fyrir utan. Ég var bara á barnum með Eygló á föstudeginum en Davíð á laugardeginum, þar sem Eygló fór að djamma.
Það er alveg ótrúlegt hvað fólk verður frekt við það að bíða eftir afgreiðslu á barnum. Fólk var byrjað að vera svo frekt og óþolinmótt að það var byrjað að flauta á mann eins og hund, smella fingrum og hvað eina. Ég hlustaði ekki á svoleiðis og við Beta vaktstjóri/æði hlógum bara að þeim.
Eftir vinnu settumst við bara niður og fengum okkur að borða og spjölluðum saman um kvöldið. Svo hringdi Andri í mig og bað mig um að sækja sig og vinkonu sína. Ég var ekki alveg að nenna því en ákvað samt að gera það þar sem ég var nú á leiðinni á rúntinn eftir vaktina. Svo þegar ég beið fyrir utan kom hann ekki.
Það er alveg ótrúlegt hvað maður fær mikil fráhvarfseinkenni frá djamminu þegar maður sleppir einni helgi. Ég lagði þarna fyrir utan Sólon og var að athuga hvort ég þekkti einhvern sem kom út. Svo hitti ég Smára og Kolbein sem ég er að vinna með og skutlaði ég þeim heim. Þeir voru alveg búnir á því.
Svo hitti ég Svenna og vin hans Gassa en þeir voru frekar ferskir á því. Svo eftir smá rúnt ákvað ég að skella mér aðeins inn á Sólon. Eygló var þar og vonaði ég að Gummi væri ennþá þar. Ég labbaði að hurðinni, en þeir voru búnir að loka og henda öllum út, en þeir hleyptu mér inn eins og ekkert væri. Fínt að vera fastagestur.
Svo var ég þarna inni að spjalla við Eygló og fólkið alveg heillengi. Svo þegar allt Sólon staffið var búið að borða og ganga frá fórum við Eygló. Við skruppum á Subway og fengum okkur að borða. Við hittum Arnar, hnakkz0r og Eyþór. Svo fórum við bara heim. Eygló ætlaði að halda eitthvað eftirpartý en klukkan var orðin eitthvað 9 um sunnudagsmorguninn þannig við fórum bara heim að sofa. Við vorum ekki að meika að fara í eitthvað eftirpartý.
En í dag skellti ég mér bara í skólann. Svo fór ég með Helga á American Style og á Kringlukránna og fengum okkur bjór. Svo fórum við bara að skoða ýmislegt í Kringlunni og enduðum svo í Smáralind. Fínn dagur.
Núna í kvöld var ég bara heima. Ég varð að vera heima í allt kvöld út af þessari miðasölu. Það komu eitthvað í kringum 12 manns og sóttu og borguðu miðana sína. Særún sweetheart kom til mín og veitti mér félagsskap í einmanaleikanum hérna heima. Takk fyrir það, elskan.
En allavega, ef þú átt eftir að sækja og borga miðann þinn skaltu hafa hraðann á! Ósóttir miðar verða nefnilega seldir öðrum.
En núna ætla ég bara að fara að gera mig kláran fyrir svefninn. Ég fór allt of seint að sofa í gær þannig ég ætla að bæta mér það upp núna í nótt, svo ég verði ekki dauður líka á morgun.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (