Allir í ljósum!
Skrifað miðvikud. 7. mars 2007 - 00:42Ég og Helgi ætluðum í ljós í kvöld en það gekk nú ekki eins vel og við höfðum áætlað. Helgi kom og sótti mig og var planið hjá honum að skella sér í ljós fyrir æfingu.
Við skutluðumst fyrst til Valentínu með nokkra partýmiða. Svo spurði ég hann hvort hann væri búinn að panta tíma einhverstaðar og var svarið við því neikvætt. Ég hringdi þá upp í SMART og ætlaði að panta tíma en þau áttu ekki tíma fyrr en kl eitthvað í kringum 11, sem var allt of seint.

Við skutluðumst þá upp í Húsahverfi, þar sem Dofri er stundum að vinna. Það var líka allt fullt þar þangað til kl eitthvað 10. Það var líka allt of seint en við heilsuðum þó upp á Töru, sem var að vinna þegar við komum, Guggu og Jón Kristinn, sem voru einnig þarna. Það var klikkað fyndið að rekast á þau öll þarna og var þetta geðveikt kjánalegt þannig við sprungum úr hlátri.
En þá var ferðinni heitið upp í Megasól í Grafarholti, en það var allt fullt þar líka. Við furðuðum okkur á því af hverju það væru engin bílastæði laus. Við löbbuðum svo fram hjá Sport Café og heyrðum fagnaðaróp. Þá voru milljón manns þar inni að horfa á Liverpool-Barcelona, en einmitt þegar fagnaðarópin voru hafði Eiður Smári skorað. Leikurinn fór svo 1-0 fyrir Barcelona.
En þetta var hálf glatað kvöld, þar sem við komumst ekki í ljós. Spurning um að reyna aftur á morgun og panta þá tíma fyrir fram?

Ljósatöffari

Athugasemdir (