Deila á Facebook
« Baráttufélag karla? | Aðalsíða | Partý Aldarinnar »

Feministar ganga of langt... aftur!
Skrifað fimmtud. 8. mars 2007 - 19:25
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Eins og ég hef tekið fram marg oft áður þá hvílir ekki mikill feministi í mér, þó ég sé jafnréttissinni mikill. En feministastéttin sígur lægra og lægra í áliti hjá mér með hverjum deginum sem líður og hverjum feministakjaftinum sem opnast. Í þetta skipti gagnrýndi einn feminazistinn forsíðuna á auglýsingabækling frá Smáralind.

Í dag sendi Smáralind frá sér auglýsingabækling sem prýddi unga stúlku á forsíðunni. Einn feministi, nánar tiltekið Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, tók sig til og skrifaði um forsíðuna og sagði stúlkuna vera í þekktri klámmyndastellingu og að hún væri tilbúin að láta taka sig aftan frá. Ég verð nú bara að smella pistlinum hingað inn, en hún tók hann út stuttu eftir að hún birti hann og fékk neikvæðar athugasemdir út af honum.

Fermingarklám Smáralindar

Auglýsingabæklingur frá Smáralind var borinn í hús í dag. Á forsíðunni má sjá unga stúlku á háum hælum í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.

Forsíðumyndin blandar saman sakleysi barnæskunnar (stúlkan er umkringd böngsum og loðdýrum) við tákn úr klámi (líkamsstellingin, opni munnurinn og háu hælarnir). Útkoman verður hin saklausa hóra, hin hreina mey sem í einni svipan verður klámmyndadrottning. Er slík notkun á táknum, sem eru flestum fullorðnum vel kunnug, viðeigandi á bækling sem er ætlaður fermingarbörnum?

Á öðrum stað í auglýsingablaðinu eru myndir af þekktri söngkonu sem máluð er eins og Barbie-dúkka. Í texta segir: „Barbie loves MAC er ný litalína sem kemur aðeins í takmarkaðan tíma sérstaklega hönnuð fyrir allar lifandi dúkkur.“ Eru stúlkurnar, sem eru um það bil að fara að fermast, aðeins lifandi dúkkur?

Skilaboðin sem auglýsingablað Smáralindar sendir ungum stúlkum eru þessi: Verið undirgefnar kynlífsdúkkur.

- Guðbjörg Hildur Kolbeins

Ok, leyfið mér að pústa aðeins. Til að byrja með er þetta lítil saklaus ung fermingarstúlka sem er að teygja sig eftir bangsanum sínum. Hvað er svona klámfengið eða klámlegt við það spyr ég nú bara? Það fer ekki á milli mála hvað höfundur pistilsins hefur á heilanum - ekkert annað en saurugar hugsanir. Hver sér svona út úr þessari mynd? - sérstaklega þegar um er að ræða stúlku á fermingaraldri! Það eru eflaust nokkrir en það er bara staðreynd að það gera engir aðrir en þeir sem eru sjúkir og með klám á heilanum og sjá allt sem klám - sbr. feminista!

Maður hefði nú haldið að doktor í fjölmiðlafræði myndi ekki koma með eitthvað svona. En vel menntað og háttvirt fólk getur samt sem áður verið sjúkt uppi í hausnum - en þetta er einmitt skýrt og gott dæmi um það.

Mér finnst þetta svo ógeðslegt að ég á varla til orð. Þetta hefði kannski horft aðeins öðru við hefði stúlkan á myndinni verið fullorðin kona, þó fásinna hefði verið, en þetta er bara barn!

Mér finnst bara ekkert skrítið að hún hafi tekið pistilinn út. Hún hlýtur að hafa gert sér grein fyrir því þarna að lokum hvað hún skrifaði og tekið hann út í kjölfarið af því hversu mikið hún skammaðist sín. Kannski aðeins of seint? Hvað var hún annars að spá með þessu spyr ég nú bara? 14 ára stúlka - kynlífsdúkka - klámmyndadrottning - saurugar myndlíkingar? Það sést alveg greinilega að höfundur er ekki með neitt annað en klám á heilanum. Mér finnst nefnilega ekkert athugavert við þessa mynd og get (GAT!) ég engan veginn tengt hana við klám. Ég fór nú ekki að sjá neitt klámfengið út úr þessu fyrr en ég las þennan pistil. Hverjum er það að kenna? Feministum að sjálfsögðu!

Ég er búinn að komast að niðurstöðu: Feministar eru fordómafullir og öfgakenndir! En hverjir vissu það svo sem ekki fyrir?

Höfundur er held ég alveg búinn að eyðileggja allt mannorð sitt á netinu og kannski búinn að laska það vel í lífinu, þar sem hún kom jú undir nafni í Fréttablaðinu. En hver fer að lesa annað efni (jafnvel taka mark á í lífinu) eftir manneskju sem kemur með svona barnakláms-myndlíkingar-sora á netið? Myndi maður taka mark á skoðunum barnaníðings? Ekki ég allavega! Þó öllum sé frjálst að tjá sínar skoðanir þá er mér einnig frjálst að hunsa þær!

Mér finnst að höfundur ætti að skrifa opinbera afsökunarbeiðni til forstöðumanna Smáralindar fyrir að draga verslunarmiðstöðina gjörsamlega í forarpytt, stúlkunnar fyrir að hafa lítillækkað hana opinberlega og einnig lesenda auglýsingabæklingsins.

Ímyndið ykkur alla athyglina sem greyið stúlkan á eftir að fá. Hún voða ánægð með að fá að sitja fyrir á forsíðunni á þessum auglýsingabæklingi og njóta mikillar athygli út á það en nú er búið að merkja hana sem undirgefna kynlífsdúkku. Að vísu er ekki tekið mark á því, þar sem þetta er siðlaust og ómerkilegt - en enn og aftur, hverjum er það að kenna? Feministum!

En varðandi „klámtáknin“ sem hún talar um í pistli sínum; líkamsstellingin, opni munnurinn og háu hælarnir.

Hver tengir þessa tilteknu líkamsstellingu við klám? Þarf maður ekki oftast að beygja sig til þess að sækja hluti sem eru á gólfinu? - sem hún er einmitt að gera! (sækja bangsann sinn). Ég skal hafa það hugfast næst þegar ég þarf að sækja hlut á gólfinu að ég gæti verið að feta í fótspor klámstjarna! Hvað ef maður gengur á höndum, labbar á fjórum fótum, situr, liggur, o.s.frv. Það er hægt að tengja þetta allt við kynlíf.

Passið ykkur einnig næst að geispa eða hósta ekki eða opna munninn á ykkur ekki neinstaðar! Ekki einu sinni þegar þið fáið ykkur bita af pylsunni sem þið kaupið á Bæjarins Bestu. Þið eruð þá að fremja athæfi sem feministar skilgreina sem klám, þar sem allir vita að klámleikkonur stinga skaufum upp í munninn á sér og þurfa til þess að opna munninn á sér! Einnig má líkja pylsunni við skaufa á karlmanni!

Gangið einnig úr skugga um það að hent sé rándýru pinnahælunum sem þið keyptuð í Steinar Waage fyrir brúðkaup frænku ykkar! Nú hljóta allar skóbúðir að fara á hausinn vegna þess að sala á háhæluðum skóm hefur snarlækkað. En það er einungis vegna þess að ekki vill maður vera fín á einhvers konar samkomu í háhæluðum skóm og vera kennd við hóru og undirgefna kynlífsdúkku - er það nokkuð?

En svona í alvöru, hverjir hugsa svona? Sjúkt fólk og feministar!

Myndin sem birtist á forsíðu auglýsingabæklings Smáralindar má svo sjá hér:





Athugasemdir ():