Helgin - Partý Aldarinnar!
Skrifað mánud. 12. mars 2007 - 04:27Um helgina héldum við strákarnir partý og bar partýið heitið „Partý Aldarinnar“. Ég hélt þetta í raun ekki en ég hjálpaði þeim með þetta allt saman, þ.e. auglýsinguna, miðana, miðasölu, ofl. Ég fann m.a.s. nafnið upp. En ég ætla að byrja á því að rifja helgina aðeins upp.
Á föstudaginn skellti ég mér með Grétari á árshátíð hjá leikskólum, sem haldin var á Broadway. Ég var ekki alveg að nenna að fara þar sem ég gat ímyndað mér að þetta væri ömurlegt en ég var búinn að lofa Grétari að koma þannig ég gat ekki farið að svíkja hann.
Við byrjuðum á því að mæta upp í 10-11 þar sem rútan kom. Svo fórum við upp í Spöng og á fleiri staði til að sækja fleira fólk. Svo fórum við heim til Lilju leikskólastjóra í fordrykk, þar sem við fengum eitthvað ógeðslegt hvítvínssull. Við vorum í svona klukkutíma þarna en svo kom rútan loks sem keyrði okkur niður á Broadway.
Þegar við vorum nýkomnir inn vorum við bara í anddyrinu að heilsa upp á fólk. Grétar sagði að þetta líktist mest dýragarði þar sem það var svo skrítið fólk þarna. Ein konan þarna leit út eins og maður, einn gaurinn þarna kom í rifnum gallabuxum, rifnum bol, með sítt skítugt ógreitt hár og órakaður. Ég hélt fyrst að þetta væri útigangsmaður og að honum yrði ekki hleypt inn, en ég hafði rangt fyrir mér - honum var nefnilega hleypt inn! Guð minn almáttugur!
Ég var farinn að finna svolítið á mér eftir hálfan bjór hjá Grétari og svo nokkur glös af hvítvínssullinu. Ég var ekki búinn að borða neitt yfir daginn þannig ég var gjörsamlega að drepast úr hungri þegar við komum. Við Grétar skelltum okkur á barinn. Ég fékk mér að vísu ekki neitt þar sem ég ákvað að bíða eftir að ég væri búinn að borða. Ég ætlaði heldur ekkert að vera fullur þarna um kvöldið, þar sem ég nennti ekki að vera þunnur daginn eftir.
Í forrétt var sjávarréttarsúpa og í aðalrétt var svo önd, bæði ala Broadway. Maturinn var algjört lostæti og var vel þess virði fyrir 3000 kr. Svo á milli mála (forréttar, aðalréttar og eftirréttar) skruppum við í reykingahornið þar sem við hittum ýmislegt hresst fólk. Eftirminnilegasta fólkið var þrítug kona og stóra systir hennar. Við fórum að ræða um klámráðstefnuna, Hótel Sögu, feminista ofl. skemmtilegt.
Grétar var alltaf að splæsa á mig á barnum þar sem hann var að reyna að bæta mér það upp að hafa dregið mig á þetta dæmi. Þetta var samt allt í lagi, þó ég hefði viljað hafa hina strákana þarna líka.
Kynnir á árshátíðinni var Felix Bergsson. En á ballinu voru Geirfuglarnir að spila. Þeir stóðu sig með ágætum en á meðan maturinn var spilaði dúettinn „Hundur í óskilum“. Þetta er náttúrulega snilldar nafn á hljómsveit/dúett og voru skemmtiatriðin þeirra ekkert síðri en nafnið. Skemmtilegir náungar. Svo kom einhver Bjarni töframaður sem ætlaði að drepa mig ofl. úr leiðindum.
En þetta var ágætlega vel heppnað. Ég endaði með því að vera allt of fullur (allavega meira en ég hafði áætlað) og fór niður í bæ - sem ég ætlaði sko ekki að gera! Ég ætlaði eftir Broadway að fara heim en Grétar talaði mig til og fékk mig með sér niður í bæ. Um þetta leyti var ég hættur að drekka, þar sem ég nennti ekki að vera þunnur næsta kvöld.
Við félagarnir löbbuðum alla leið frá Broadway niður á Sólon. Það var sko ekki gaman! Það var ógeðslega hvasst og mjög mikið slabb á leiðinni, þannig við vorum alveg rennandi blautir í fæturnar þegar við komum loks á Sólon.
Jói hleypti mér og Grétari inn í VIP. Takk fyrir það, kallinn! En svo þegar við komum inn og heilsuðum upp á strákana tók Gaui bróðir Gumma þéttingsfast í kjálkann á mér. Ég hefði örugglega ekki fundið fyrir þessu hefði ég ekki verið nýbúinn að labba alla leið frá Broadway og væri ekki gjörsamlega gaddfreðinn í andlitinu, en það mátti halda að hann og Steini hefðu verið á svínalyfjum® þarna um kvöldið.
En um kvöldið hitti ég Vigfús, sem var einu sinni besti vinur minn, og Loft sem var með okkur í grunnskóla. Djöfull kom Vigfús mér á óvart þar sem hann er búinn að vera að lyfta stanslaust í tvö ár og er núna orðinn helmassaður - sem hann var ekki áður fyrr.
En eftir djammið skelltum við Helgi og Grétar okkur á Nonnabita (ojj!) og fengum okkur að borða. Aðal grínið var þegar Helgi harði ætlaði að splæsa á línuna en fékk svo synjun á kortið vegna engrar heimildar. Svo prófaði hann að borga fyrir einn bát en fékk einnig synjun á það. Það endaði með því að ég þurfti að borga fyrir þá báða tvo. Hahaha, fyndið!
Á Nonnabitum hitti ég Gumma og Siggu, sem eru að vinna með mér á Kringlukránni. Ég var aðeins að spjalla við þau þegar Helgi vildi bara fara núna STRAX. Ég sagði honum að bíða aðeins en þá fóru þeir Grétar bara og skildu mig einan eftir. Ég kláraði bara spjallið við þau. Svo seinna fór Gummi og ég og Sigga vorum bara ein eftir. Ég hringdi þá bara í mömmu og bað hana um að sækja okkur, þar sem ég tímdi ekkert að taka leigubíl.
Mamma kom að lokum og skutlaði Siggu í Grafarholtið og ég fór bara heim að sofa. Ég gerði svolitlar varúðarráðstafanir áður en ég fór að sofa og það var að drekka 3 vatnskönnur af vatni og tannbursta tunguna vel bara til þess að verða ekki þunnur næsta dag - og viti menn, það virkaði!
Laugardagurinn var sko aðal djammið. Við strákarnir vorum að halda PARTÝ ALDARINNAR og get ég sko með sanni sagt að þetta var nánast fullkomið partý!
Ég vil bara byrja á því að segja að mér finnst mjög leiðinlegt að Helgi, Grétar og Jökull hafi ekki getað verið með okkur á Sólon. Mér finnst ennþá leiðinlegra að Grétar og Jökull hafi ekki komið þarna um kvöldið, en við hverju er að búast þegar maður er haldinn svefnsýki á hættulega háu stigi og þegar maður er á föstu? Þetta sagði sig bara sjálft!
En Gummi kom og náði í mig eftir að ég var búinn að gera mig kláran. Eftir það náðum við í Gaua bróðir hans og Steina. Við skelltum okkur svo á Sólon og fengum okkur að borða. Arnar, sem er að vinna á Sólon, fékk sér að borða með okkur.

Til að byrja með pöntuðum við Mojito í fordrykk - bara út af því að Ernu fannst svo leiðinlegt að gera svoleiðis. Við urðum að vera geðveikt vondir og leiðinlegir og panta 4 svoleiðis stykki. Um leið og við fengum drykkina pöntuðum við matinn. Það fyndna var að ég spurði þjóninn hvort hann þyrfti ekki blokk til þess að skrifa pöntunina niður - en nei nei, hann sagðist vera með heila! Það endaði með því að Steini fékk kolvitlausan mat.
Þegar við vorum búnir að fá matinn pöntuðum við kók til þess að þurfa ekki að drekka Mojito með matnum. Þjónninn kom með 4 kókflöskur á bakka til okkar og um leið og hann var að láta mig fá mína flösku missti hann helvítis bakkann yfir mig þannig ég var allur í kók ógeði! Þetta var náttúrulega alveg típískt!
Þjónninn baðst afsökunar og kom með tusku til þess að þurrka mig. Ég náði mest öllu kókinu úr jakkafötunum en bolurinn var dauðadæmdur. Ég fór þá niður á klósettið og hringdi í pabba. Bento, sem var vaktstjóri þarna um kvöldið, bauðst til þess að borga leigubíl fyrir nýja skyrtu, en ég afþakkaði það. Þess í stað kom pabbi með nýja skyrtu handa mér. Takk kærlega fyrir það, pabbi. Þetta reddaðist sem betur fer.
En eftir að við vorum búnir að borða ákváðum við að drífa okkur yfir á Hverfisbarinn. Við borguðum matinn á Sólon og fengum allir sitthvor 2 skotin og 20% afslátt í skaðabætur. Ég var hálf pirraður yfir því að hafa ekki fengið matinn ókeypis út af þessu óhappi en sú reiði rann fljótt af mér. Þarna var ég búinn að drekka Mojito og 2 skot af Opal.
Þegar við komum á Hverfisbarinn voru Helgi, Rikki, Andri, ofl. komnir. Við settumst bara niður og byrjuðum að þamba bjór. Fólk var ekki alveg á mínútunni en staðurinn var fljótur að fyllast. Ég og Gummi byrjuðum bara í dyrunum að taka á móti miðum hjá fólkinu. Svo seinna um kvöldið kom dyravörður sem sá um það.

Svona fyrst um kvöldið var tjaldið niðri og horft var á boltann. Svo var tjaldið sett upp og tónlistin var sett í gang. Heiðar Austmann og Rikki G voru DJ'ar þarna um kvöldið og var brjáluð stemmning á dansgólfinu.
Það voru nokkur atvik um kvöldið sem voru mér eftirminnilegust. Þau voru:
2: Þetta með dansinn og Elísabetu (hægra megin) var fyndið. Hehe, hún sagðist hafa verið að æfa samkvæmisdansa en trúði ekki þegar ég sagði henni að ég hefði verið að æfa líka. Ég sannfærði hana svo þegar við tókum saman nokkur vel valin spor í m.a. cha cha, sömbu og jive. Hehe, það var mjög skemmtilegt. Fínt líka að prófa annan dansfélaga en Eygló.
3: Já, kærasti Hlínar (þessi lengst til vinstri) kom upp að mér og hrósaði mér fyrir ljóðið sem ég samdi um kærustuna hans fyrir svolitlu síðan. Hehehe, þetta er svo kjánalegt þegar ég hugsa um þetta að ég á ekki orð. Ég var samt ágætlega fullur þarna þannig ég varð ekkert vandræðalegur. En þið getið lesið um þetta allt hérna. Virkilega kjánalegt og lærði ég að gera aldrei nokkurn tíman eitthvað svona aftur. En kærastinn hennar er virkilega fínn gaur og heilsa ég honum alltaf núna þegar ég sé hann.
4: En þetta með Helga og að ætla að berja einhvern gaur. Það er náttúrulega ekkert nýtt! Það byrjuðu allavega einhver leiðindi á milli þeirra og reyndi ég að leysa þau en það tókst ekki. Gaurinn ætlaði bara að berja Helga og Helgi ætlaði að berja gaurinn. Gaurinn var alltaf að biðja Helga um að kýla sig en hann vildi það ekki. Það endaði með því að Gunni, vinur hans Jóa, ætlaði að kýla gaurinn en ég sagði honum bara að sleppa því. Hehehe! Þetta leystist þannig að Helgi fór bara með mér á Sólon og sleppti þessu alveg.
5: Þegar ég var ekki að ná að verða fullur já. Sama hvað ég drakk mikið af bjór náði ég ekki að verða almennilega fullur! Það var ekki fyrr en Alfreð bauð mér upp á skot og bauð mér að velja hvað sem er. Ég vildi náttúrulega verða fullur þannig ég bað barstúlkuna um að gefa mér eitthvað sem myndi drepa mig. Viti menn, hún kom með tvöfalt skot af brennivíni. Ég skellti því í mig og þá loksins tókst mér að vera fullur - m.a.s. aðeins OF fullur. Takk fyrir skotið, Alfreð minn.
6: Ég sat þarna í sófanum við hliðina á Palla og Ívar og Bylgja sátu á móti okkur. Ég var eitthvað að leika mér með myndavélina og tók óvart mynd undir borðið. Það var ekki viljandi gert - þó perralega séð megi líta á það þannig. En þeir sem þekkja mig vita alveg að ég myndi aldrei gera svoleiðis hlut viljandi. En þegar á myndina var litið dóum við Palli úr hláturskasti en það endaði með því að Bylgja var ekki sátt og bað mig um að eyða myndinni. Að sjálfsögðu gerði ég það.
7: Þetta með Rakeli, fyrrverandi hans Ívars, er svolítið skondið. Eftir að ég skrifaði í gestabókina hennar að við ættum afmæli sama dag, þá kemur hún alltaf til mín þegar hún er í glasi og spyr mig hvort ég eigi afmæli 13 des eins og hún. Hehehe, það er alltaf jafn fyndið.
8: Þetta með að vera einn á Sólon var nú bara út af því að Helgi var graður og ég var of fullur. Gummi var farinn þarna og ég og Helgi vorum bara einir. Svo hitti Helgi einhverja stelpu sem vinnur á Sólon og fór að spjalla við hana. Eftir að þau byrjuðu að spjalla saman náði ég ekki meiri athygli hjá Helga, þannig ég endaði bara einn þarna. Það var hundleiðinlegt. Ég hitti samt Eygló, Söndru og einhverja þarna um kvöldið. En eftir að Sólon lokaði settist ég bara þarna niður og slappaði af.
Þetta var ágætt kvöld fyrir utan það að það var ein stelpa sem hrækti framan í mig þarna um kvöldið. Helgi var eitthvað að kyssa vinkonu stelpunnar og þá byrjaði stelpan eitthvað að muldra um Helga: „Djöfull er hann ljótur og ógeðslegur“ en þá fauk í mig og endaði með því að ég sagði henni að halda kjafti. Hún byrjaði þá að rífa kjaft og ég á móti og endaði það með því að hún hrækti á mig. Ég sagði þá að hún væri á leiðinni út. Ég náði í dyravörð sem gerði ekki rassgat annað en að spjalla við hana. Ég náði svo í Fribba, vaktstjóra, sem gerði heldur ekki rassgat. Það fauk verulega í mig þegar það var ekkert gert í þessu. Það endaði svo með því að stelpan baðst innilegrar afsökunar á þessu og taldi mér trú um hversu leiðinlegt henni þætti þetta. Ég fyrirgaf henni þá. Hún var heldur ekkert að djóka með afsökunarbeiðnina, þar sem hún kom seinna til mín og sagði mér aftur að hún sæji geðveikt eftir þessu.
Eftir það var mér hent út. Ég bað Benna dyravörð um að fá að bíða inni en hann leyfði mér það ekki og sagði mér að fara út. Verst er að fríhelgarnar mínar eru einmitt á helgunum þar sem Benni og Fribbi eru að vinna, þannig þeir verða alltaf að vinna þegar ég fer að djamma.
En eftir að ég fór út af Sólon rölti ég bara niður á Hlöllavagninn. Helgi hringdi eitthvað og spurði hvar ég væri og sagðist hann ætla að koma þangað en hann kom ekkert. Svo hringdi hann aftur og bað mig um að láta sig vita þegar hann færi heim. Ég var ennþá svolítið pirraður út í hann þarna þannig ég lét hann ekki vita.
Ég sleppti því að fá mér Hlöllabát þar sem ég nennti ekki að bíða í þessari löngu röð. Ég labbaði niður á lækjartorg þar sem ég vonaðist til að geta tekið skutluna heim, en ég fann ekki höfuðstöðvar hennar, þannig ég gat það ekki. Ég fór þá aðeins í rónahornið® og settist þar niður á meðan ég reyndi að redda mér heim. Ég hringdi í nokkra en það var annað hvort nei eða þá að þau svöruðu ekki símanum. Ég vonaði nú að Grétar væri á fótum þar sem hann vaknaði 2 um nótt og hefði alveg eins getað verið að hann væri vakandi í tölvunni eða eitthvað - en hann svaraði ekki.
Það endaði bara með því að ég tók einsamall leigubíl heim og fór svo beint að sofa.
Þetta er búið að vera ágætlega löng færsla hjá mér og fer þetta að verða komið gott. En í kvöld talaði ég við Særúnu og spjölluðum við ágætlega lengi saman. Eftir það símtal hefur mig aldrei langað að drepa mig jafn mikið. Ég var kominn á botninn. Vinir mínir fúlir út í mig og Særún hatar mig. Vá hvað mér leið hræðilega! Mér hefur ekki liðið svona illa lengi lengi.
En þetta er orðið ágætt í bili. Þið eruð snillingar ef ykkur tekst að lesa þetta allt saman.
Myndir frá Partýi Aldarinnar:

Við strákarnir að borða á Sólon áður en við fórum á Hverfis. Steini, Gaui bróðir Gumma, Gummi og ég

Gummi dyra...miðavörður!
Svona fyrst um kvöldið var tjaldið niðri og horft var á boltann. Svo var tjaldið sett upp og tónlistin var sett í gang. Heiðar Austmann og Rikki G voru DJ'ar þarna um kvöldið og var brjáluð stemmning á dansgólfinu.
Það voru nokkur atvik um kvöldið sem voru mér eftirminnilegust. Þau voru:
- 1: Við strákarnir vorum allir í jakkafötum.
- 2: Þegar ég dansaði við Elísabetu.
- 3: Þegar kærasti Hlínar kom upp að mér og hrósaði mér.
- 4: Þegar Helgi ætlaði að berja einhvern gaur þarna.
- 5: Þegar ég var ekki að ná að verða fullur.
- 6: Þegar ég tók óvart mynd undir borð af hlébarðasokkabuxunum hennar Bylgju og við Palli vorum að springa úr hlátri yfir myndinni.
- 7: Þegar Rakel, fyrrverandi hans Ívars, kom upp að mér og spurði mig hvort ég ætti ekki afmæli 13. des.
- 8: Þegar ég var einn á Sólon.

Athugasemdir (