Hlölli í hádeginu
Skrifað fimmtud. 15. mars 2007 - 15:31Ég fór til Kollu frænku minnar uppi á Hlölla uppi á Höfða áðan. Ég settist þar niður, fékk mér nokkrar sígarettur og spjallaði við m.a. Maju frænku mína, Kollu frænku mína (eiginkona Hlölla (já Hlölli sjálfur)) ofl. Ég varð bara að búa til færslu um hvað Kolla frænka mín er mikið hörkukvendi.
Ég sat þarna og fylgdist með þeim vinna. Þetta var náttúrulega hádegistraffíkin og var allt brjálað að gera. Kolla var í lúgunni að afgreiða á fullu og það var ótrúlegt hversu mikið álag hún þoldi. Hún veitti bestu þjónustu á skyndibitastað, sem ég hef séð á ævi minni.
Þegar hún var búin að afgreiða fremstu lúguna, fór hún í næstu, og hún afgreiddi m.a.s. hina á meðan þessir í lúgunni voru að finna kortið sitt. Svo þegar seinni lúgan var búin þá kallaði hún til bílanna fyrir aftan bílinn í seinni lúgunni og spurði þá hvort þeir vissu hvað þeir vildu. Þegar þeir komu að lúgunni fengu þeir glóðvolgan bátinn í bílinn. Bara góð þjónusta!
Ég vissi alltaf að frænka mín væri hörkukvendi og mjög dugleg en þetta var bara góð áminning á það. Það var svo gaman að horfa á hana, þar sem hún er ógeðslega hress og skemmtileg manneskja. Hún lætur heldur enga vaða yfir sig.
Það var t.d. einn maður í lúgunni sem pantaði bara einn bát. Kolla spurði hann þá: „Ætlaru ekkert að gefa henni að éta?“, en þá var hún að meina konu mannsins sem sat við hliðina á honum í bílnum. Þetta var bara fyndið og endaði með því að maðurinn keypti bát handa konu sinni.
Því næst kom strákur í lúguna og spurði hvort hún ætti litla kók, í staðinn fyrir stóra, en hún sagði þá bara: „Nei, þú verður bara að hella restinni“. Ég gjörsamlega sprakk úr hlátri.
Kolla er besta frænka sem maður gæti hugsað sér. Alltaf svo góð og elskuleg við alla. Ekki er heldur slæmt að við eigum sama afmælisdag.
Ég vildi bara tileinka Kollu frænku minni þessa færslu og segja að ég elska þig og heimurinn væri ekki hinn sami án þín!

Athugasemdir (