Fimmtudagur - Sólon
Skrifað föstud. 16. mars 2007 - 16:58Í gær var bara farið á Sólon. Við ætluðum að hlusta á trúbadorinn fyrst til að byrja með en það var bara troðfullt uppi þannig við settumst bara niðri.
Ég, Gummi, Helgi, Steini, Andri, Linda og Íris ætluðum á Sólon. Helgi ætlaði að hringja strax eftir æfingu en fór víst óvart að sofa eftir æfingu. Það endaði með því að ég fór bara einn á Sólon.
Ég hitti þar Gumma, Steina, Gaua bróðir Gumma, Lindu og Írisi. Þau sátu niðri í sófunum og höfðu það notalegt. Ég var bara edrú þannig ég fékk mér bara kók en allir hinir voru að drekka.
Við sátum í dágóðan tíma þarna niðri, drukkum og spjölluðum saman. Það var mjög fínt. Svo komu Gunni og vinur hans, en þeir stoppuðu bara stutt.
Eftir nokkra bjóra og mikið spjall ákváðum við að kíkja upp á trúbadorinn. Við fundum laust borð þannig við settumst bara við það.
Mér leið hálf kjánalega þarna um kvöldið þar sem Gummi og Linda eru að deita og svo voru heitir straumar á milli Steina og Írisar. Við Gaui bróðir Gumma vorum bara þarna tveir sem tilheyrðum ekki öðrum aðila - ef svo má að orði komast.
Í lok kvöldsins byrjaði svaka drama vesen en þar sem aðilinn bað mig um að hafa hljótt um það mun ég gera það. Þ.a.l. fer það ekki hér á bloggið. Hins vegar hefði dramaið snúist um mig hefði það pottþétt farið hér inn!
Takk annars fyrir mig, allir. Þetta var fínt kvöld!

Athugasemdir (