Deila á Facebook
« Helgin 16. - 18. mars | Aðalsíða | Vændi orðið löglegt? »

Innihaldsríkt samtal
Skrifað miðvikud. 21. mars 2007 - 18:16
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég átti svei mér innihaldsríkt samtal við Helga nú rétt í þessu. Hann hringdi í mig og við fórum bara eitthvað að spjalla. Svo spurði hann mig hvernig það hefði verið í vinnunni í gær og fórum við eitthvað að ræða um það. Svo beindust samræðurnar að einhverjum Rúnari sem á að vera að vinna með mér. Ég kannaðist því miður ekki við neinn Rúnar.

Samtalið fór eitthvað á þessa leið...

Helgi: Hann heitir Rúnar!
Ég: Ég man ekki eftir neinum Rúnari sem er að vinna með mér.
Helgi: Jú, hann er að vinna þarna!
Ég: Ertu alveg viss?
Helgi: Já!
Ég: Ég man ekki eftir neinum Rúnari.
Helgi: Hann er samt að vinna þarna!
Ég: Ég skal bara checka á því.
Ég: Neibb, það er enginn Rúnar að vinna hjá okkur.
Helgi: Jú víst!
Ég: Nei, það er enginn Rúnar á vaktaplaninu.
Helgi: Hann er samt að vinna þarna!
Ég: Nei, það getur ekki verið! Ertu ekki að tala um Ragnar?
Helgi: Nei, hann heitir Rúnar!
Ég: Það stenst bara ekki.
Helgi: Jú víst! Mannstu um daginn þegar ég fór á Kringlukránna á fund út af utandeildinni?
Ég: Já...?
Helgi: Já, þá var hann að vinna!
Ég: Það er enginn Rúnar að vinna þarna. Ef hann er ekki á vaktarplaninu er hann ekki að vinna þarna!
Helgi: Víst, þegar ég kom þarna var hann að fara með einhverja diska inn í eldhús og eitthvað.
Ég: Jááá, hann! Hann heitir Steinar!
Helgi: Nei, hann heitir Rúnar!
Ég: Nei, hann heitir Steinar og er kallaður Steini.
Helgi: Nei, hann heitir Rúnar!
Ég: Nei, bróðir hans heitir Rúnar en hann heitir Steinar!
Helgi: Nei, bróðir hans heitir Sævar!
Ég: Nei, þeir eru tvíburar og einn heitir Steinar og hinn Rúnar. Þú ert að rugla þeim saman!
Helgi: Nei!

*** Svo eftir svolitla stund ***

Ég: Ahh, hann heitir Þorsteinn!
Helgi: Nei, hann heitir Rúnar!
Ég: Já, hann heitir Þorsteinn Rúnar!
Helgi: Það getur vel verið!

Erum við að tala um innihaldsríkasta samtal sem til er? Það fyndna er það að við vorum báðir að tala um sama manninn þarna í lokin - nema það að við vissum hvorugur hvað hann héti!




Athugasemdir ():