Deila á Facebook
« Innihaldsríkt samtal | Aðalsíða | Dónaleg tölfræði »

Vændi orðið löglegt?
Skrifað miðvikud. 21. mars 2007 - 21:47
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Án þess að vera búinn að kynna mér málið mikið þá er víst búið að lögleiða vændi hér á landi. Ég veit alveg minnst um þetta mál en ég heyrði að það mætti kaupa og selja vændi en salan mætti ekki vera til framfærslu.

Hvernig er hægt að selja vændi án þess að það sé til framfærslu? Hverjir ætla að ganga úr skugga um það að „starfsemin“ sé ekki notuð til framfærslu? Hvernig er annars hægt að fá pening fyrir slíkri starfsemi án þess að nýta það til framfærslu? Ef það er ókeypis, þá heitir það víst ekki vændi - sem gefur auga leið!


Ég veit ekki hvort það gildi önnur lög um karlkynsvændi, en segjum að ef ég væri ung kona á framabraut, þá mætti ég sem sagt „selja“ líkama minn gegn greiðslu en ég mætti ekki nota greiðsluna í mat og aðrar nauðsynjar? Hvernig er það hægt? Í hvað ætti greiðslan að vera notuð í annað en mat og nauðsynjar til að framfæra sjálfum sér? Kannski í getnaðarvarnir eða tíma hjá kynsjúkdómalæknum?

Það er ekki eins og vændiskonur séu að þessu til gamans. Ekki eins og þær tilheyri forstjórastöðum í stórfyrirtækjum og geri þetta bara svona aukalega fyrir smá extra pening. Hvað er Alþingi að spá?!

Ég les mjög margar bloggsíður og fréttavefi daglega en hef ekki ennþá séð neinn minnast á þetta þannig ég giska á að þetta sé ekkert sérlega heitt málefni. Ég leitaði út um allt á Vísi og Mbl en fann ekkert um þetta. Það eina sem ég sá um þetta var bara brot úr Kastljósinu í fyrradag.

En vændi hefur í raun alltaf verið löglegt, það hefur bara verið bannað að selja það. Kaup á vændi hafa víst alltaf verið lögleg. En hvernig er hægt að kaupa eitthvað sem ekki er selt?




Athugasemdir ():