Deila á Facebook
« Vændi orðið löglegt? | Aðalsíða | Á fleygiferð inn í framtíðina? »

Dónaleg tölfræði
Skrifað fimmtud. 22. mars 2007 - 20:54
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég er í áfanga í skólanum sem heitir STÆ413. Þetta er tölfræðiáfangi þar sem við erum að vinna að mestu leyti í Excel. Í dag fengum við hópverkefni sem kom okkur frekar mikið á óvart.

Við áttum að labba um skólann, tvö og tvö, og spyrja fólk um kyn, aldur og á bilinu 1-10 hvað þeim finndist karlar klæmast mikið. Einnig áttum við að fá sömu upplýsingar um hvað viðkomandi fannst konur klæmast mikið.

Ég skil ekki alveg tilganginn í þessari spurningu. Höfundum bókarinnar hefur greinilega þótt rosalega fyndið að setja eitt svona verkefni, þar sem það var mjög vandræðalegt að spyrja fólk í skólanum að þessu.

Bókin heitir Tölfræði með tölvum og eru höfundar hennar þau Ásrún Matthíasdóttir, Sveinn Ingi Sveinsson og Stefán Árnason. Verkefnið er nr. 9 og er á bls. 143 ef þið viljið kíkja á þetta.

Það fer ekki á milli mála að allir séu með klám á heilanum.




Athugasemdir ():