Á fleygiferð inn í framtíðina?
Skrifað fimmtud. 22. mars 2007 - 23:32Í kvöld birtist myndbrot í Kastljósinu af meintum ökuníðingi keyra um á hæst 288 km hraða á mótorhjóli af gerðinni Suzuki GSXR K6 1000cc.
Ég ætla nú ekki að fara að fullyrða neitt að þetta hafi verið Skúli Steinn þarna á hjólinu, þar sem ég þekki þennan strák og hef ekkert slæmt um hann að segja. Einnig er ég ekki alveg klár á því hvort þetta hafi í raun og veru verið hann þarna á hjólinu. Það fást því miður engar sannanir um það, hvorki númeraplata né mynd af ökumanninum birtust í myndbrotinu.

Sérfræðingar innan deilda Rannsóknarlögreglunnar eru samt engir vitleysingar þegar kemur að svona málum. En í myndbandinu sést lykillinn að hjólinu og lyklakippan meðfylgjandi, sem hefur m.a. að geyma númer hjólsins. Eins hefði ökumaður steypubílsins, sem hann keyrði fram hjá á fleygiferð, getað séð númerið/búninginn hjá ökuníðingnum. Það hlýtur að vera hægt að bendla þessu broti við einhvern. Ég trúi ekki öðru, þar sem þetta viljum við ekki hafa á götunum okkar - er það nokkuð?
Ég verð nú að segja að mér finnst mjög heimskulegt af ökumanni mótorhjólsins í slíku gáleysi að keyra svona hratt, þar sem þetta hefði nú getað farið mikið verr. Hann mætir þarna nokkrum bílum á feikna hraða og tekur fram úr steypubíl á 150 km hraða, sem er sko ekki lítil ferð. En það hefði nú getað farið verr. Verst er að Skúli (þó þetta hafi ekki endilega verið hann) viðurkennir ekki að hann geti lent illa í því á mótorhjólinu sínu og segist kunna vel á það og hafa fulla stjórn á því. Þó Skúli sé kannski klár á mótorhjól þá er enginn heilvita maður að fara að segja mér það að það séu litlar líkur á því að missa stjórn á mótorhjóli - svo ég tala nú ekki um á 288 km ferð!
Fyrir neðan er myndbrot af útlenskum strákum að leika sér að ná háhraða bíls og lenda svo óheppilega í því að mávur flýgur fyrir bílinn og klessist á framrúðuna - sem hefur með þær afleiðingar að framrúðan brotnar. Þessi mávur er hvað u.þ.b. 5 kg og strákarnir eru á sirka 260 km hraða. Ökuníðingurinn á Garðvegi var á 188 km hraða og er mótorhjólið sirka 33x þyngra en þessi blessaði mávur. Þar að auki hefur ökumaður mótorhjólsins ábyggilega vegið 90-100 kg. Samtals er þunginn sirka 266 kg. Skv. útreikningum mínum á ~100 kg manni, 166 kg mótorhjóli og á 288 km hraða, jafngildir það 76.608 kg eða ~76 tonn! Það er svolítið þyngra en menn héldu, er það ekki annars?
[YouTube]http://www.youtube.com/watch?v=t9fXkEoyM50[/YouTube]
Það er alveg augljóst að hraðakstur er ekki farinn af götum Íslands og mun ekki gera það í bráð - þrátt fyrir hert átak Lögreglunnar gegn slíkum brotum í umferðinni og strangari viðurlögum (þ.á.m. svipting, sektir, o.s.frv.) við þeim. Það sýndi nú sig og sannaði í kvöld í kastljósinu. Ég sá þetta myndband nú svolitlu áður en það birtist í Kastljósinu í kvöld en það var sett á netið fyrir u.þ.b. 1 mánuði síðan.
Hér er svo myndbrotið úr Kastljósinu í heild sinni.

Rétt að byrja...

Athugasemdir (