Föstudagur - Hnetupartý
Skrifað laugard. 24. mars 2007 - 19:06Í gær lá leið okkar strákanna í eitthvað Hnetupartý sem haldið var á Pravda. Í boði voru 25 kútar (var mér sagt). Það var ágætt.
Um daginn fór ég í klippingu og litun. Ég fékk mér einum lit dekkra en venjulega og ætlaði að fá mér nokkrar svona vínrauðar strípur í það, en mamma var svo hrædd um að það myndi mistakast að hún hafði strípurnar ógeðslega dökkar þannig þær sjást varla.
En um kvöldið byrjuðum við bara að taka okkur til þar sem við ætluðum að vera mættir kl 8 á Sólon að borða áður en við færum í þetta Hnetupartý. Það stóðst ekki alveg þar sem við lögðum af stað niður í bæ kl 9 - og þá áttum við eftir að borða!
Við skelltum okkur þá bara á Skalla og fengum okkur eitthvað djúsí þar. Með í för voru: Ég, Grétar, Helgi, Jói og Gunni. Ég og Helgi vorum þeir einu sem fengum okkur að borða. Ég fékk besta hamborgara sem ég hef smakkað á ævi minni þarna. Enda mestu mistök að fá sér annan hamborgara áður en við fórum.
Svo komum við á Pravda og var ógeðslega löng röð þar fyrir utan. Helgi þekkti Danna, gaurinn sem var að halda þetta, og plöggaði okkur inn í VIP. Svo þegar við komum inn var bara farið beint á barinn og fengið sér frían bjór.
Gummi og Gaui bróðir hans voru þarna og settumst við hjá þeim.

Svo seinna um kvöldið þegar bjórinn var búinn skellti ég mér til Ingvars, sem er að vinna á barnum á Pravda, og lét hann skrifa á sig drykki fyrir mig, þar sem hann skuldaði mér pening. Sem sagt eftir bjórinn var þambað Jägermeister í CULT - og var það lúmskt helvíti!
Eftir að við vorum búnir að sitja nóg skelltum við okkur bara upp að dansa. Það sem okkur Gumma fannst best við Pravda var það hversu góð tónlistin þarna á efri hæðinni er.
Ég hitti margt fólk, þ.á.m. Betu fyrrverandi hans Jökuls og vinkonur hennar, Fróða, Guðjón nafna minn, Svenna, Möggu, Fannar, Bjarna, Mumma, Markús, Katrínu, ofl. fólk. Ég hitti svo einn í lokin á Sólon sem ég þekkti ekki neitt en hann hætti ekki að hrósa mér fyrir þessa síðu.
Takk fyrir það, kallinn. 
En eftir Pravda skelltum við okkur bara á Sólon. Ég átti mjög erfitt með fyrst til að byrja með að fara af Pravda þar sem tónlistin þar er svo góð. En það tókst að lokum.
Ég verð nú bara að segja að það var ógeðslega leiðinlegt á Sólon. Þetta er oftast svona á föstudögum, þar sem það er alltaf allt annað fólk á Sólon á föstudögum en er á laugardögum.
Um kvöldið fór Helgi bara heim án þess að láta okkur vita. Greyið er víst með svaka hita núna þannig hann ætlar ekki að djamma með okkur í kvöld. Ég sagði honum bara að hætta þessu væli og taka eina hitastillandi, sem lækkar hitann. Spurning hvort hann geri það?
En í lok kvöldsins var ég orðinn verulega verulega fullur. Ég var náttúrulega búinn að vera að þamba frían bjór á Pravda og eftir það fór ég yfir í Jägermeister í CULT og voru drukknir endalaust margir svoleiðis. Ég verð nú bara að segja að sá drykkur er mjög lúmskur! Ég drakk endalaust af svoleiðis og fann ekkert á mér - fyrr en í lok kvöldsins á Sólon og lá við að ég hefði dáið.
Það endaði bara með því að ég og Grétar tókum leigubíl heim og splæsti Grétar fyrir okkur. Takk fyrir það, Grétar minn.
Veskið mitt þoldi ekki fleiri úttektir um kvöldið. 
En núna í kvöld ætla strákarnir að kíkja til mín og við ætlum að slappa aðeins af áður en við skellum okkur í bæinn.
Segjum þetta ágætt í bili.

Helgi, ég, Gaui og Gummi

Athugasemdir (