Lau og sun 24. - 25. mars
Skrifað mánud. 26. mars 2007 - 04:44Á heildina litið var þetta bara ágætis helgi. Við strákarnir kíktum út á bæði föstudag og laugardag. Á föstudag kíktum við í partý en á laugardag hélt ég smá partý.
Á laugardaginn hélt ég smá „partý“ - sem gekk bara mjög vel fyrir sig. Þeir sem mættu voru: Helgi, Gummi, Gaui bróðir Gumma, Grétar, Steini, Palli, Rafn, Jói, Gunni, Svenni, Jökull og Solla kærastan hans. Svo seinna um kvöldið kom Auður kærastan hans Jóa og vinkona hennar.
Þetta var í rauninni ekkert partý, bara smá samkomustaður fyrir okkur strákana en Gummi mistúlkaði mig smávegis og skírði sig á MSN: „Partý Heima Hjá Gaua.is!“, þannig síminn minn stoppaði ekki allt kvöldið þar sem fólk var að spyrja hvort ég væri með partý og hvort það mætti koma. Því miður fólkens, þá vorum þetta bara við strákarnir.
En um kvöldið tengdi Gummi myndatökuvélina sína við sjónvarpið og horfðum við á myndböndin úr bústaðnum núna síðast. Það var mjög gaman. Ég er samt svona gaur sem vill hafa allt ósnert og ég þoli ekki breytingar. Eins og þegar ég kom að Gumma inni í herberginu mínu vera að rífa sjónvarpið úr sambandi og að tengja vélina, þá brá mér svolítið. Ég viðurkenni alveg að hafa öskrað „Neiiiiiiiiiiiiiiiiii“ inni í mér, en svo þurrkaði ég tárin og hjálpaði honum. Hehehe.
En þetta kvöld var mjög fínt - þrátt fyrir mikinn skort á góðri umgengni hjá sumum. Það voru dósir út um allt, sullublettir og snakk út um allt. Ég samt, áður en við fórum niður í bæ, byrjaði aðeins að taka til, til þess að ég yrði ekki allan morgundaginn að taka til.
Það sem mér fannst samt leiðinlegt þarna um kvöldið var umgengnishátturinn hjá fólkinu, þ.á.m. hjá Jökli, aðal partýhaldaranum sjálfum. Ég er ekki frá því að honum hafi þótt svolítið sjálfsagt að hann sullaði út um allt út af því að fólk gerði það alltaf heima hjá honum þegar hann hélt partý. Ef þetta var ekki viljandi gert hjá honum og hafi einungis atvikast vegna of mikillar drykkju, þá biðst ég afsökunar, en bara svo hann viti það þá veit ég hvernig honum leið þegar hann hélt alltaf partý, þar sem ég upplifði það þarna í gær. Tillitsemin var í lágmarki hjá nokkrum aðilum og brussugangurinn í hámarki. Ég skal með ánægju leyfa ykkur að haga ykkur svona þegar ég eignast mína eigin íbúð, en þangað til þá fer ég fram á tillitsemi og nærgætni í sambandi við hús foreldra minna. Djöfulsins væl er í mér! Eigið þið nokkuð tissjú?
Eftir þetta „brjálaða partý“ héldum við bara niður í bæ. Helgi var edrú, þar sem hann var „veikur“. Greyið þurfti að fara tvær ferðir til þess að koma öllum niður í bæ. Það fóru allir niður í bæ, nema Rafn, þar sem hann á barn! Haehoaehoae, nei djók! En kallinn drakk víst aðeins of mikið í þessum blessaða drykkjuleik sem við fórum í, þannig hann fór bara heim.
Ég get ekki sagt að ég hafi skemmt mér vel í bænum. Helgi fór snemma heim vegna veikinda, Gummi fór með Lindu á Oliver, Steini hvarf með Írisi, Palli hvarf, Jói og Gunnu hurfu og svo fóru Jökull og Solla bara heim að sofa eftir partýið þannig þau fóru ekkert niður í bæ. Ég var sem sagt bara með Grétari og Jónasi niðri í bæ. Við kíktum aðeins á Pravda til að athuga hvort Ingvar væri að vinna, en hann var ekki að vinna - þó hann hafi sagst vera að vinna um kvöldið. Við fórum þá bara aðeins á Viktor og svo aftur á Sólon og vorum þar til lokunar. Ég var að heyra núna að Ingvar hafi verið á litla barnum. Ekki furða að Grétar og Jónas hafi ekki fundið hann.
Ég er kominn með svo mikið ógeð á bænum að ég hugsa að ég taki mér bara svolitla djammpásu. Spurning um að fara bara aftur í partýgírinn sem við vorum alltaf í þegar ég var vinur Kamils, Gumma og Danna. Fara bara í partý til einhvers sem maður þekkir voða lítið og fara svo bara heim eftir það.
En eftir að Sólon lokaði fóru ég, Grétar og Jónas bara út og röltum niður á Hlöllavagninn, þar sem ég lánaði Grétari fyrir bát. Svo röltum við bara í leigubílaröðina. Þar hittum við Guggu fyrrverandi mína og Fannar fyrrverandi Eyglóar. Hún var náttúrulega bara í einu orði „Gugga“. Það þarf nú ekki að segja meira um það.
Þegar við vorum komnir með leigubílnum heim til Grétars, fór Grétar inn og ætlaði að láta mömmu sína borga fyrir leigubílinn. Ég nennti ekki að bíða eftir því og borgaði bara allan leigubílinn. Svo fórum við aðeins heim til mín að spjalla og svo fóru þeir bara heim til sín.
Mig minnir að ég hafi rekið þá heim út af því að ég pirraðist eitthvað þegar Grétar tók bjór úr ísskápnum án míns leyfis. En svona er Grétar þegar hann er fullur. Lítur bara á allt sem sjálfsagðan hlut. Það er ekkert nýtt. Hann ætlaði nú fyrst að drekka bjór sem einhver úr partýinu hafði skilið eftir, en ég bannaði honum það og fyllti það gjörsamlega mælinn þegar ég leit af honum í smá stund og leit svo aftur á hann og sá þá að hann var kominn með minn bjór í hendurnar og var í þann mund að opna hann.
En eftir þetta fór ég bara að sofa.

Á sunnudaginn vaknaði ég frekar ferskur kl 8. Ég var sem betur fer ekkert þunnur, þar sem ég drakk svona 10L af vatni áður en ég fór að sofa.
En um 6 leytið áttum við Helgi að mæta á æfingu uppi í Borgarholtsskóla, þar sem við erum að fara að taka þátt í söngvakeppni Borgarholtsskóla nk. miðvikudag. Nei nei, ég þurfti auðvitað að sofa æfinguna af mér. Fari það fjandans til!
Stuttu eftir að ég vaknaði kom Helgi til mín og ætlaði að hjálpa mér að taka til og æfa með mér lagið fyrir söngvakeppnina. Á meðan Helgi lék sér bara að spila á gítarinn tók ég til allt draslið eftir partýið kvöldið áður. Svo spjölluðum við bara um allan andskotann og ákváðum að lokum að fara í bíó á myndina 300. Gummi og Steini ætluðu að koma með en út af því að þeir voru búnir að sjá 300 myndina svona 300 sinnum ákváðu þeir að hætta við.
Við Helgi ákváðum þá bara að fara tveir í bíó. Ég kláraði bara að laga til og svo lögðum við af stað upp í Álfabakka kl 10. Myndin byrjaði ekki fyrr en kl 10:30 þannig við vorum á góðum tíma.
Þegar við komum var röð út að dyrum. Ég var svo handviss um að allir væru að fara á 300 en Helgi sagði að Wild Hogs væri nýjasta og heitasta myndin þannig allir væru að fara á hana, en ég trúði því ekki. Ég spurði þá fólk fyrir framan okkur hvaða mynd þau væru að fara á og sögðu allir: „300“.
Hehehe, svo stóðum við í röðinni og ég sagði eitthvað: „Vá hvað það kemur svona uppselt á 300 miði á miðasölugluggann eftir smá og við þurfum að fara á Wild Hogs í staðinn“ og þá sagði Helgi: „Hjúkket að Gummi verður geðveikt brjálaður þá“. Hehehe, það hefði verið svolítið súrt - en samt svolítið fyndið á sinn hátt.
300 er leikstýrð af Zack Snyder, byggð á skáldsögu Frank Millers um stríð Spörtu og Persa og endurgerð af myndinni The 300 Spartans. Í stuttu máli fjallar myndin um Spartverja og stríð þeirra við Persa 480 árum f.Kr. Tildrög stríðsins voru m.a. vegna þess að Leonidas, konungur Spörtu, myrti saklausa sendiboða Persa, en hann neyddist að lokum til þess að verja Spörtu fyrir innrás Persa, og lokaði þ.a.l. Laugaskarði (e/gr. Thermopylae) með sínum 300 manna her, sem samanstendur af 300 öflugustu hermönnum Spörtu. Persar, undir forystu Xerxes, reyna svo að komast í gegnum her Leonidasar til þess að leggja Spörtu í eyði.

Eins og þeir sem fróðir eru um sögu Grikklands ættu að vita þá var Sparta aðal hernaðarríkið á Grikklandi. Á meðan Aþeningar sáu um allt sem kom við listum, menningu, menntun o.s.frv., sáu Spartverjar um hernað. Við fæðingu voru veikburða börn borin út en þau sem lifðu af voru tekin í burtu frá mæðrum sínum og fjölskyldu við 7 ára aldur og gert að þjóna Spörtu í hernaðarlegum tilgangi þess. Eina hlutverk þeirra í lífinu var að standa undir hernaðarlegri skyldu þeirra með því að verjast og berjast.
Myndin er virkilega góð og vel gerð. Ég fór á myndina með þvílíkar væntingar og varð ég ekki fyrir neinum vonbrigðum. Leikararnir fá allir topp einkunn, þá aðallega Gerard Butler sem leikur Leonidas, konung Spörtu, en hann leikur hann af stakri prýði. Myndatakan í myndinni á sér líka sérstakt lof og sést það allra helst í bardagasenunum - sem eru framúrskarandi góðar. Myndin á sér svolítinn aðdraganda af myndum á borð við The Gladiator og Lord Of The Rings en að mínu mati er hún mun betri en þær myndir allar til samans. Það fer ekki á milli mála hvort þetta sé besta myndin á árinu, þar sem hún fer leikandi með þann titil.
5/5
En eftir bíóið skelltum við okkur bara heim. Nú er ég verulega að spá í að fara að sofa, þar sem klukkan er orðin allt of margt! En ef þið eruð búin að sjá myndina, hvernig fannst ykkur hún?
En svona í lokin langaði mig að benda ykkur á hljómsveitina Apocalyptica. Þetta er hljómsveit sem samanstendur af þrem cello-spilurum og einum trommuleikara. Virkilega flott lög með þeim og má m.a. nefna lagið Path sem er eitt af mínum uppáhalds.
P.S. Bömmer að hafa misst af Gus Gus!

Helgi á góðum degi

5/5En eftir bíóið skelltum við okkur bara heim. Nú er ég verulega að spá í að fara að sofa, þar sem klukkan er orðin allt of margt! En ef þið eruð búin að sjá myndina, hvernig fannst ykkur hún?

Athugasemdir (