Deila á Facebook
« Lau og sun 24. - 25. mars | Aðalsíða | Í mál við Hótel Sögu? »

LAN bannað í Borgó!
Skrifað mánud. 26. mars 2007 - 19:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Nú um daginn bönnuðu skólastjórnendur Borgarholtsskóla fyrirhugaða LAN-samkomu, sem nemendafélag Borgarholtsskóla (NFBHS) ætlaði að halda næstu helgi, í samstarfi við nokkra nemendur í skólanum (þ.á.m. mig).

Afturhaldssemin og forræðishyggjan í þessari blessuðu skólastjórn er orðin gríðarlegt áhyggjuefni. Hvað heimildir, málstuðning og rökfærslur varðar hafa þau ekkert í höndunum sér til málsbóta. Það er ekki nóg að leggja bann á slíka samkomu og segja bara: „Því okkur FINNST þetta leiða til aukinnar tölvufíknar!“. Það eru bara eintómir fordómar.

Ég viðurkenni nú alveg að til séu netfíklar sem eiga erfitt með samskipti við fólk í daglegu lífi og reyna að forðast mannleg samskipti í raunveruleikanum, en það er ekki vegna LAN-samkoma sem haldnar hafa verið í gegnum tíðina! Það eina sem heldur í bláþráð eðlilegra samskiptavenja hjá þessum einstaklingum er þrýstingur frá foreldrum, vinum og svona LAN-samkomur. Á þessum samkomum „sækir líkur sér líkan heim“, eins og sagt er, og finnur viðkomandi þ.a.l. einhvern til að spjalla við, sem er með sömu áhugamál og hann sjálfur, sem er skv. skólastjórn, neikvæður samskiptamáti!

Hvað eruð þið skólastjórnendur að hugsa? Svo ég tali nú aðeins fyrir hönd þeirra sem eru ekki það miklar félagsverur í skólanum, þá er ekki margt sem félagslíf Borgarholtsskóla býður upp á fyrir þessa aðila. Bjórkvöld, klúbbastarfsemi, svo eitthvað sé nefnt? Þessir aðilar forðast að draga að sér athygli og vilja láta eins lítið fyrir sér fara og mögulegt er. Hvað er að því að gera þessum aðilum til geðs og gera eitthvað fyrir þá sem þeir hafa áhuga á og finna sig í?

Skólastjórnin lætur sér víst nægja að lesa bara einhverjar tuggur um netnotkun og netfíkn - sem á sér stað innan veggja heimilanna. Það sem þau gera sér ekki grein fyrir er það að slíkar LAN-samkomur eru mjög góð afþreying þar sem fólk hittist, spjallar og spilar tölvuleiki og hefur GAMAN SAMAN. Þetta er önnur stétt nemenda sem spilar tölvuleiki sér til skemmtunar í stað þess að „detta í það“, eins og venjan er í dag meðal unglinga.

En svona í lokin þá er það vísindalega sannað að tölvuleikjaspilarar ala af sér bestu skurðlæknana.




Athugasemdir ():