Deila á Facebook
« Í mál við Hótel Sögu? | Aðalsíða | Konur og gamalt fólk í umferðinni »

Söngkeppni Borgarholtsskóla
Skrifað fimmtud. 29. mars 2007 - 01:07
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, ætli ég verði ekki að blogga um söngvakeppnina í Borgarholtsskóla sem var núna í kvöld. Ég söng og Helgi spilaði á gítar og mættum við þarna galvaskir og sýndum hvað í okkur bjó. Það endaði með því að við unnum keppnina þannig við erum á leiðinni í söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri 14. apríl.

Ég og Helgi vorum mættir heim til mín kl 4 til þess að æfa okkur. Bergdís íslenskukennari var svo góð að gefa mér frí í tíma. Við tókum nokkrar umferðir áður en við skelltum okkur upp í skóla. Helgi fór fyrst heim til sín og sótti nótur og fékk sér svo að borða.

Þegar við komum upp í skóla var löng bið. Við mættum kl hálf 6 og keppnin byrjaði ekki fyrr en kl 8, þannig við þurftum að bíða í 2 og hálfan tíma eftir því að keppnin byrjaði. Við fengum að taka eina æfingu uppi á sviði og var það ekkert mál!

Helgi og ég


Það voru 10 atriði allt í allt sem þurftu að taka general prufu fyrir keppnina sjálfa þannig biðin var svo sem skiljanleg, en samt leiðinlegt að bíða og biðin hjálpaði sko ekki upp á stressið.

Við vorum nr. 4 í röðinni og þegar það kom að okkur fór stressið alveg með mig. Ég náði samt að byrja á réttum tíma og söng þetta bara ágætlega vel, þó ég segi sjálfur frá, og ruglaðist ekki neitt. Helgi stóð sig einnig mjög vel og ruglaðist ekki neitt heldur. Þetta var mjög vel heppnað hjá okkur.

Eftir öll atriðin var tekin 10-15 mín pása svo dómnefndin gæti ákveðið úrslitin. Ég skellti mér bara út að reykja í þessu magnaða spennufalli sem ég var í eftir flutninginn okkar.

Eftir að pásan var búin fóru dómararnir upp á svið og tilkynntu úrslitin. Í þriðja sæti var Gréta María, sem söng lagið Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt eftir Pál Óskar. Í öðru sæti var einhver strákur, sem Friðrik Ómar sagði vera sætan. Hann var með eitthvað frumsamið lag, mjög flott. Svo í fyrsta sæti vorum við Helgi. Þegar Regína Ósk tilkynnti fyrsta sætið söng hún byrjunina á laginu: „Í fyrsta sæti er Everytime our eyes meet... Guðjón og Helgi“. Svo sagðist hún hafa starað allan tímann á mig henni fannst þetta svo flott. Það er ekki slæmt að heyra þetta frá sjálfri Regínu Ósk!

Í fyrstu verðlaun var flug, gisting og matur á Akureyri, og svo GSM símar. Við fengum samt ekki GSM símana þarna þannig það er spurning hvort við fáum þá bara þegar við förum til Akureyrar. Pæling sko!

En núna erum við Helgi sem sagt á leiðinni til Akureyrar 14. apríl nk. Svekkjandi samt að þetta sé einmitt helgin sem við ætluðum með strákunum í bústað, en við þurfum víst að hætta við það. Einnig megum við ekki flytja þetta lag á ensku og verðum því að þýða þetta á íslensku. Þetta lag er ekki til á íslensku þannig við þurfum að láta þýða þetta fyrir okkur (eða gera það sjálfir) svo við getum flutt það í keppninni. Við megum heldur ekki skipta um lag.

En eftir keppnina þurftum við að fara upp í Verzló í myndatöku og viðtal. Við fórum upp í Verzló en þá var enginn þar til þess að taka við okkur og biðum við heillengi úti í kuldanum. Svo náðum við í einhvern gaur og hann vísaði okkur niður í myndatökuna. Þar vorum við Helgi látnir snúa baki í bak og svo voru teknar nokkrar myndir af okkur. Vá, frægir gaurar!

Eftir myndatökuna vorum við leiddir upp í Ármúla til þess að taka viðtal við okkur. Þegar við komum þangað var látið okkur fá ferðatölvu með Word skjali opnu með einhverjum spurningum sem við áttum að fylla út. Á meðan við vorum að því fóru strákarnir þarna að sækja lagið af netinu og fóru að syngja það. Hehehe, það var fyndið.

Eftir það skutlaði Helgi mér bara heim. Við tókum svo vinningslagið fyrir foreldra mína, systir, Fríðu frænku og Ástu. Svo fór Helgi bara heim eftir það.

En það var mjög gaman að taka þátt í þessu og var þetta frábær keppni. Ég vil bara þakka kærlega fyrir mig og þakka Helga endalaust fyrir að hafa verið með mér í þessu.




Athugasemdir ():