Konur og gamalt fólk í umferðinni
Skrifað fimmtud. 29. mars 2007 - 22:50Um daginn var ég einmitt að spá í einu sem einhver netverji var að tala um. Það var um það hvað konur og gamalt fólk kann ekki að keyra. Ég varð fyrir skemmtilegri, jafnt sem lífshættulegri lífsreynslu um daginn og svo aftur í dag.
Ég var að keyra fyrir nokkrum dögum heim úr skólanum. Ég keyri á aðalgötunni og sé að það er gamall maður að bíða eftir að komast út á aðalgötuna. Ég hægi ekkert á mér þar sem ég átti réttinn en svo lítur hann bara í hina áttina (umferðin á móti) og sér þ.a.l. ekki mig og fer út á akreinina. Ég nauðhemla og munaði engu að ég hefði keyrt á hann. Ég var verulega að spá í því að elta hann og öskra á hann, en þar sem ég er of góður sleppti ég því.
Í dag lenti ég svo í því að vera að keyra upp í skóla. Ég var að keyra inni á bílaplaninu að bílastæði á „aðalgötunni“. Svo þegar ég er kominn að svona gatnamótum þarna kemur stelpa á fleygiferð fyrir mig. Ég nauðhemla og eyddi, þökk sé henni, öllum nöglunum mínum! Það munaði heldur engu að ég væri búinn að keyra á hana.
Eftir þetta lagði ég hliðiná henni og beið eftir því að hún myndi fara úr bílnum. Eftir að hafa gefið sér langan tíma til þess að drulla sér úr bílnum, spurði ég hana hvort hún vissi ekki hvað hægri réttur væri. Hún sagðist bara hafa gleymt honum og baðst afsökunar. Ég sagði henni þá að ég hefði verið næstum því búinn að klessa á hana og þá baðst hún bara aftur afsökunar.
Ég var svo ógeðslega hneykslaður á þessu kæruleysi að ég spurði hana að lokum: „Hvort fékkst bílprófið í Cheerios eða Cocoa-Puffs pakka?“. Nei djók, ég spurði bara hvort hún væri nýbúin að fá bílprófið. Hún svaraði neitandi og strunsaði móðguð inn.
Nú er ég alveg staðfastur á því að meirihluti kvenfólks og gamals fólks kunni bara ekki að keyra! Af hverju þarf kvenkynið ekki að fara í tvöfalt fleiri ökutíma en við karlkynið?
Hér eru nokkrar sannanir fyrir því að konur kunni ekki að keyra...

Jahá...

Einmitt...

Þetta er náttúrulega bara aulalegt!

Hvernig er þetta hægt???

Ha???

Og þetta er hægt hvernig???

Þessi kvenmaður þarf augljóslega meiri æfingu í að keyra í gegnum hringtorg!
Athugasemdir (