Deila á Facebook
« Smá lægð og smá breytingar | Aðalsíða | Íslensku vefverðlaunin 2005 - Spá »

Súpukjöt
Skrifað miðvikud. 23. nóvember 2005 - 18:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ágætur dagur í dag.

Djöfull er ég ruglaður. Ég er búinn að hlæja að þessu í allan dag. Málið er að í gær þá sagði ég Guðrúnu vinkonu minni að ég væri að borða pizzu. Henni langaði líka í þannig ég sagðist ætla að senda henni hana í tölvupósti. Kvikindið sem ég er. Ég tók mynd af pizzunni og sendi henni hana í tölvupósti. Hehehe. Djöfull varð hún pirruð. Ég gat ekki gert henni þetta þannig ég fór kl 3 um nótt með pizzu til hennar og við horfðum á O.C. og rosa gaman.

En í dag vaknaði ég kl 11, dreif mig svo í Þýsku. Þegar helmingurinn af tímanum var búinn, þurfti ég að fara út af því að ég var að fara að syngja með kórnum í salnum í hádegishléinu... fyrir allan skólann! Já, það var í raun ekkert mál, bara gaman og hressandi.

Eftir það fór ég í próf í Félagsfræði og á því prófi voru bara krossar og þeir voru 30 talsins. Hann orðaði allar spurningar svo skemmtilega, "hvað af þessu á EKKI við um þessa kenningu?" og eitthvað svona... alltaf þetta "ekki" sem ruglaði mann mikið.

Svo í ensku fengum við að horfa á myndina Oldschool með Will Ferrell í aðalhlutverki. Sá maður er snillingur og er þetta snilldar mynd. Mæli hiklaust með henni.

Eftir skóla fór ég til Gulla bílvirkja, þar sem "regluleg athugun ljósið" er kviknað hjá mér. En hann var ekki við þannig ég fór bara heim.

Hvað er málið með fólk og súpukjöt? Þegar mamma og pabbi hafa súpukjöt og þessa ógeðslegu kjötsúpu í matinn, segja þau alltaf "ohh ég fæ vatn í munninn!". Ég skil þau ekki. Mér finnst þetta ekkert sérstakt. Myndi miklu frekar kjósa lambafillé eða svínasteik með puru. Ég sé allavega ekki sportið í þessu.

En já, varðandi síðuna. Ég er alltaf að fikta og bæta. Núna bætti ég við þannig að núna er hægt að gera broskalla. Yay!
Þetta á eftir að lífga aðeins upp á síðuna.

Ég er að fara að fjárfesta í 17" eða 18" felgum og tók allar felgurnar sem kæmu til greina og photoshoppaði þær á bílinn minn. Hérna er útkoman. Megið endilega segja hvað ykkur finnst flottast. Chrome eða gunmetal?

Lag dagsins:
Black Eyed Peas - Don't Lie




Athugasemdir ():