Helgin ofl. - Endalaust álag!
Skrifað þriðjud. 3. apríl 2007 - 21:56Viti menn, ég hef barasta ekki haft neinn tíma til að blogga. Það er vægast sagt búið að vera allt brjálað hjá mér sl. daga.
Ég fór að vinna um helgina, föstudag, laugardag og sunnudag. Það var ágætt, ekkert allt of mikið að gera. Það var hins vegar svolítið brjálað á sunnudeginum en það var einfaldur Laddi þá.
En eftir vakt á sunnudaginn skelltum við okkur á Ölstofuna og fengum okkur nokkra svellkalda, eða þeir - ekki ég. Ég var samviskusami samverjinn og skutlaði liðinu heim eftir á.
Á mánudaginn var svo byrjað í svaka átaki. Pabbi splæsti á okkur einkaþjálfara og læti og var fyrsti tíminn okkar í gær. Það gekk ágætlega fyrir sig, þrátt fyrir að ég hafi farið á klósettið á miðri æfingu og ælt. Ég bjóst ekki við svona erfiðri æfingu, þar sem það var sko ýtt okkur út á ystu nöf, þ.e. látið okkur gera 3-5x í viðbót eftir að maður var gjörsamlega búinn. En aftur á móti þá er ég ekki með neitt þol!
En svo um kvöldið skelltum við Helgi okkur bara í pool og fékk ég mér nokkra öllara, þar sem maður er kominn með fráhvarfseinkenni frá drykkju. Hehe, segi svona. Við hittum Gunna og Axel, vini Jóa, og spiluðum 1-2 leiki við þá. Svo fórum við bara heim.
Svo í dag fór ég upp í Hafnarfjörð og keypti prótein fyrir 10.000 kr. Maður verður jú að vera duglegur að drekka próteinsjeik í takt við matarprógrammið sem við erum í.
Eftir það fór ég til Hemma frænda til að athuga með textann sem hann ætlaði að þýða fyrir okkur Helga. Hann var nú eiginlega bara tilbúinn þegar ég kom, þar sem það eina sem var eftir var að fínisera textann aðeins. En djöfulsins snillingur er hann frændi minn. Ég vil bara þakka honum kærlega fyrir þetta!
Núna eru sirka 10 dagar í þessu blessuðu keppni þannig við Helgi verðum að fara að spíta í lófana hvað varðar æfingar ofl.
Gaurarnir sem sjá um söngkeppnina vilja fara að fá textann í hendurnar til þess að RÚV geti ritskoðað hann. Alveg lágmark að gefa okkur aðeins lengri tíma, þar sem við unnum jú bara keppnina á fimmtudaginn síðasta og við höfum ekki haft neinn tíma til þess að vinna í þessu um helgina, þar sem við vorum báðir að vinna.
En það stendur nóg á minni könnu næstu dagana/vikurnar. Einkaþjálfun, söngæfingar, heimasíðugerð, heimanám fyrir skólann, ofl. Ég hélt þetta væri páskaFRÍ - ekki páskaÁLAG. En hvað um það!
En núna í kvöld ætlum við strákarnir að hittast og fara yfir textann saman og hugsanlega fá okkur smá bjór.

Athugasemdir (