Árshátíð Kringlukráarinnar
Skrifað laugard. 7. apríl 2007 - 04:35Jæja, þá er árshátíð Kringlukráarinnar yfirstaðin. Þema árshátíðarinnar var gangsterþema þannig maður þurfti að dressa sig upp eins og maður væri að leika í bíómynd frá 1930. Við gistum svo eina nótt á Hótel Örk í Hveragerði. Þetta var alveg æðislegt, eins og við var að búast!
Ég fór að djúsa á miðvikudeginum með strákunum þannig ég vaknaði allt of seint á fimmtudaginn og ekkert lítið hvað ég var þunnur og gjörsamlega handónýtur. Það var þá góða byrjunin á deginum.
Eftir að ég gat drullað mér á lappir skellti ég mér í það að taka mig til. Eygló ætlaði að fá far með mér þannig hún var endalaust að reka á eftir mér.
Ég fór út í búð og keypti mér áfengi og bland. Ég keypti vodkapela og kippu af litlum Tuborg. Mér fannst það alveg nóg þar sem það var náttúrulega fordrykkur og svo vín með matnum. Maður mátti náttúrulega ekki verða of fullur of fljótt.
Við lögðum af stað rétt rúmlega hálf 6 en við þurftum fyrst að koma við uppi á Esso Ártúnshöfða þar sem Ólöf ætlaði að vera í samfloti með okkur. Svo þegar við lögðum af stað vorum við fljót að stinga Ólöfu af þar sem hún keyrði ógeðslega hægt. Og nei, ég keyrði ekki það hratt þar sem ég keyrði bara 10 km/klst yfir hámarkshraða.
En bíltúrinn gekk vel fyrir sig. Við hlustuðum bara á iPodinn minn á leiðinni, þar sem ég var búinn að henda inn nokkrum góðum lögum þar inn á. Þegar við komum á Hótel Örk biðum við bara aðeins eftir Ólöfu en hún kom nokkrum mínútum á eftir okkur. Svo fórum við bara inn á hótelið með draslið okkar. Ég var með Eygló í herbergi og fórum við bara upp á herbergið og gerðum okkur klár.
Klukkan 7 var svo fordrykkur niðri. Þá voru allir mættir í sínu fínasta pússi, smökkuðu á kampavíni og spjölluðu saman. Það var alveg ótrúlegt að sjá hvað fólk tók þessu alvarlega og var gaman að sjá hvað fólk var flott í taujinu. Sumir samt flottari en aðrir.
Klukkan 8 var svo komið að matnum. Í forrétt var pinkulítill melónubiti í skeið með einhverri pinkulítilli kjötsneið og svo humarsúpa. Aðalrétturinn var mjög gott lambakjöt með einhverju meðlæti. Svo í eftirrétt var ís með súkkulaðisósu og rjóma. Þetta var alveg æðisleg máltíð allt saman!
Fyrir og eftir mat voru skemmtiatriðin. Ég, Sigga kokkur og Emil sungum Kringlukráarsönginn sem er bara Austurstrættislagið eftir Ladda með breyttum texta. Svo var Andri með atriði sem bar nafnið „Uppistand Dauðans“, þar sem hann hermdi eftir hinum ýmsu yfir- og starfsmönnum, ásamt fastakúnnum. Algjör snilld! Svo var happdrætti og kosning, en ég vann einmitt einhver kokteilglös í happdrættinu.
Þegar komið var að kosningunum, þá hneppti Dóri vinninginn fyrir búninginn hjá herrunum, enda var kallinn lang flottastur. Beta beibí hneppti svo titilinn flottasti búning hjá dömunum, enda var gellan ekkert smá flott. Hún og Sigga voru aðal gellurnar á svæðinu. Herra og frú Kringlukrá voru eins og vanalega Andri og Sigga kokkur. Titilinn mesta gribban fékk Sigga og svo mesti djammarinn fékk Andri.
Eftir allt þetta var bara farið upp í herbergi og lagað á sér hárið og þambað. Ég hafði verið með hattinn allt kvöldið þannig ég varð að laga á mér hárið, þar sem ég ætlaði ekki að vera með hattinn á ballinu. Það var að sjálfsögðu partý hjá Betu og Siggu, en þær höfðu með sér 2L af vodka, ginflösku, Absynth 70% og 2 kassa af Burn, og voru sko ekkert smá grand á því.
Svo byrjaði ballið og einhver trúbador hélt uppi dansi hjá fólkinu. Þeir sem voru hvað duglegastir á dansgólfinu voru hiklaust: ég, Beta, Sigga, Eygló, Emil og Inga. Hinir hurfu bara snemma um kvöldið og höfðu ekkert djammþol. Ég er náttúrulega í landsliðinu í djammi þannig ég var á fótum alla nóttina.
Eftir að trúbadorinn hætti að spila setti ég bara iPodinn minn á. Við dönsuðum smá við hann en fljótlega gáfumst við bara upp og fórum upp til Betu og Siggu í eftirpartý. Það var frábært. Svo varð Beta svo þreytt að við ákváðum að leyfa henni og Siggu að fara bara að sofa, þannig við fórum út úr herberginu.
Ég fór þá yfir til Andra og Hrannar (Hrönn í eignarfalli) kærustunnar hans og var þar þangað til kl 8-9 um morguninn. Þetta var samt bara einhver góður hálftími. Það voru allir gjörsamlega búnir á því! Eygló dó í rúminu þeirra og Andri dó á golfinu. Ég náði að drulla mér inn í rúm áður en ég dó, en ég var líka gjörsamlega búinn á því. Ég fór þá bara inn í herbergi og lagði mig án þess að drekka dropa af vatni. Djöfulsins heimska!
Svo var ég vakinn af Eygló kl 11-12 um hádegið. Við áttum þá að skila herberginu af okkur um hádegið þannig við þurftum að drífa okkur. Ég var náttúrulega fullur ennþá eftir að hafa sofið í 3 tíma og hausinn minn var við það að springa. Ég fékk 2 verkjatöflur hjá Betu beibí og svínvirkuðu þær við hausverknum.
Svo þegar allir voru búnir að taka sig saman var farið og borðað í EDEN. Ég var ekki viss hvort ég ætti að keyra, þar sem ég var alveg á því að hefði löggan stoppað mig og látið mig blása, hefði ég misst prófið á staðnum.
En djöfulsins subbumatur er þarna í EDEN. Við vorum sirka 6 þarna að fá okkur að borða og það tók svona hálftíma að fá þetta afgreitt. Það eina á matseðlinum voru hamborgarar og var lítið um að velja. En svo þegar þetta var loksins tilbúið var bara hámað þetta í sig. Þetta voru fáránlega sveittir hamborgarar eins og sannkallaður þynnkumatur á að vera. En þetta mætti nú vera aðeins fínni staður. Hvað væri flottara en meðal flottur veitingastaður í Eden, en ekki einhver subbuleg borgarabúlla. En hvað um það!
Eftir matinn brunuðum við Eygló svo bara í bæinn. Frábær ferð og vil ég bara þakka öllum kærlega fyrir mig!
En núna er ég orðinn vel slappur. Kominn aftur með þessa helvítis beinverki, hósta og hálsbólgu. Ég má alls ekki vera veikur þegar söngkeppnin verður næstu helgi, þar sem ég verð að taka þessu alvarlega og gera þetta almennilega! Ég fer beinustu leið til læknis ef þetta kvef fer ekki að drulla sér í burtu!
Segjum þetta annars bara ágætt í bili. Súrt samt að ég hafi ekki tekið neinar myndir frá árshátíðinni, en ég verð bara að fá að setja tengilinn seinna inn ef myndirnar verða settar inn á netið.

Athugasemdir (