Deila á Facebook
« Árshátíð Kringlukráarinnar | Aðalsíða | Mr. Bean's Holiday »

Veikindi
Skrifað sunnud. 8. apríl 2007 - 18:45
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ligg bara hérna heima veikur og hef gjörsamlega ekkert að gera. Ég hef víst gripið flensuna í Hveragerði um daginn og hefur mér farið síversnandi eftir heimkomu.

Verst er að mamma og pabbi trúa ekki að ég sé veikur, en það er ekki að ástæðulausu sem ég sleppti djammi á bæði föstudag og laugardag. Ef ég geri það, þá er eitthvað mikið að!

Ég hef ekki getað fengið mér sígarettu eftir að ég varð veikur þar sem mig langar bara ekkert í. Skrítið? Kannski þetta sé bara upphaf endis reykingaferils míns?

Eins og flestir sem þekkja mig vita byrjaði ég í svaka átaki um daginn. Byrjaði hjá einkaþjálfara og byrjaði að borða hollara og reglulegra. Sumir segja að þetta séu bara fráhvarfseinkenni frá óhollustunni, þar sem í staðinn fyrir djúzý beikonborgara (slef!) þá fæ ég mér í dag súkkulaðipróteinsjeik (ekki svo mikið slef).

Ég er líka byrjaður að taka sportþrennu á hverjum degi, en það inniheldur 1 lýsistöflu, 1 fjölvítamíntöflu og 2 L-Karnitín töflur. Það er ekkert sérlega jákvætt að þegar maður byrjar að taka þetta að þá verði maður veikur.

Mömmu datt í hug áðan að gera mig að algjöru fífli og láta mig falla fyrir einhverju „heilsuráði“. Hún sagði mér að það nýjasta í dag í heilsubransanum væri að stinga hvítlauk í eyrun og það myndi drepa allar bakteríur. Ég eins og auli gerði það og var með í sirka hálftíma, en svo fór mig bara að svíða og verkja í eyrunum. Ég spurði mömmu út í það og þá sagði hún að þetta væri þá byrjað að virka. Djöfulsins kjaftæði!

En jæja, skóli aftur á miðvikudaginn og söngkeppnin á laugardaginn næsta. Þá er bara að vona að maður verði orðinn frískur fyrir þann tíma. Ef ekki, þá er það bara læknir og sýklalyf á þriðjudag!




Athugasemdir ():