Mr. Bean's Holiday
Skrifað miðvikud. 11. apríl 2007 - 00:52Undanfarna daga er margt búið að vera á minni könnu, en ég skellti mér á djammið á sunnudaginn og skellti mér svo í bíó í gær.
Á sunnudaginn fór ég til Grétars og sótti hann og Jóa og við fórum til Helga. Þar voru ég, Helgi, Grétar, Andri og Jói. Þar voru allir að drekka nema ég og Jói, þar sem við ætluðum bara báðir að vera edrú á bíl. Ég var náttúrulega nýbúinn að vera veikur þannig ég ætlaði að sleppa því að detta í það strax. Strákarnir spiluðu bara Evolution Pro, sem er einhver fótboltaleikur, á meðan ég og Helgi fórum yfir textann og æfðum aðeins lagið fyrir söngkeppnina.
Svo þegar öllum langaði niður í bæ þurfti ég að skutla Jóa til Grétars til að sækja bílinn hans Jóa. Svo fór ég bara aftur til Helga og sótti Grétar. Jói kom svo og sótti Andra og Helga.
Ég og Grétar fórum bara beint niður í bæ. Ég lagði þarna einhverstaðar og við röltum yfir á Sólon. Það var brjálað að gera og var margt fólk bæði í VIP röðinni og venjulegu röðinni. Ég og Grétar skelltum okkur í VIP röðina og biðum. Dyravörðurinn sagði þá að það færi enginn inn nærrum því strax. Svo kom eitthvað fólk og því var öllu hleypt inn. Enginn inn, jee!
Svo að lokum var okkur hleypt inn. Grétar fór beint á barinn og ég fór bara upp. Þar hitti ég Hjalta og einhverja Live2Cruize gaura. Ég spjallaði dágóða stund við þá en fór svo að dansa. Þar voru allir saman komnir á dansgólfið og var Rikki að spila. Rikki var sko í ham þetta kvöldið.
Ég hitti ýmislegt fólk þarna um kvöldið, þ.á.m. Einar, Svenna, Mumma, Danna, Unni, Valdísi, Eygló, Önnu, ofl.
Svo í lok kvöldsins eftir mikinn dans sátum við bara niðri og vorum að spjalla. Ég var orðinn verulega þreyttur á því að vera edrú og að þurfa að umgangast allt fulla fólkið og stælana í því. Svo endaði það með því að Grétar ætlaði að vera rosa herramaður og gefa Eygló eld með kerti sem var á borðinu og sullaði öllum bjórnum sínum yfir mig og þá varð ég gjörsamlega brjálaður!
Ég stóð upp og sagði Grétari að drullast til þess að ná í pappír. Ég var náttúrulega í jakkafötunum mínum þannig ég var ekki í bestu fötunum til að sulla niður á en Grétar tók þessu eitthvað illa og fór. Ég var svo brjálaður að ég fór út og beint út í bíl, þar sem ég fann pappír í hanskahólfinu til að þurrka fötin. Það gekk ágætlega.
Svo keyrði ég að Sólon og náði í Helga. Ég hringdi svo í Grétar og spurði hann hvar hann væri en þá var hann farinn heim, þar sem honum leið svo illa eftir þetta óhapp. Skiljanlega, þar sem ég bókstaflega öskraði á hann inni á Sólon. Æjiiii, mér fannst hann hefði getað hugsað aðeins áður en hann ákvað að reyna að vera herramaður og kúl.
Rikka og Valdísi vantaði far þannig ég skutlaði þeim heim. Fyrst stoppuðum við á Subway og fengum okkur að borða. Strákarnir voru talandi um fótbolta alla leiðina og Valdís þoldi það ekki og sagðist vera óglatt en þeir trúðu henni ekki. Svo þegar við komum á Subway fór hún út úr bílnum og ældi.
Svo fengum við okkur að borða og svo skutlaði ég þeim bara heim.
Á mánudaginn svaf ég svo bara allan daginn. Ég átti að mæta í ræktina kl 10 um morguninn hjá einkaþjálfaranum mínum, Kojak, en við frestuðum því um einn dag.
Um kvöldið skelltum við Helgi okkur í bíó á myndina Mr. Beans Holiday.
Myndin fjallar um Mr. Bean, breskan fáráð sem vinnur í happdrætti ferð til Cannes í Frakklandi og tekst í byrjun á leið sinni að sundra feðgum. Á leið sinni í leit að föður drengsins kynnist hann Frakklandi, og eins og mörgum er kunnugt um hversu óheppinn Mr. Bean er þá verður sú ferð nokkuð skrautleg.

Mér fannst myndin bara alls ekki nógu góð. Mér fannst hana vanta ferska og nýja brandara, en þeir sem voru notaðir í myndinni voru flestir úr þáttunum hans góðkunnu. Einnig fannst mér söguþráðurinn alveg út í hött og í raun alveg drepleiðinlegur. Á tímabili var maður farinn að segja: „týpískt“ þegar hann gerði einhver klunnaverk og steig feilspor í þessari ferð sinni, þar sem það var reynt að kreista einhverja örlitla fyndni úr hinum mest glötuðu atriðum.
Á heildina litið var myndin ekki góð en var hins vegar ágætis afþreying, þó flest klunnaatriðin hafi verið svo týpísk að manni fannst þau svo fjarri raunveruleikanum að þau voru bara ekkert fyndin. Ég hefði ekki borgað 900 kr. fyrir að sjá þessa í bíó heldur hefði ég hugsanlega bara leigt hana á DVD þegar hún kæmi. Jafnvel ekki?
2/5
Í morgun vaknaði ég hálf 10 og skellti mér í ræktina. Við tókum brjóstkassann og þríhöfðann og vorum gjörsamlega búnir eftir á. Eftir æfinguna sagði hann okkur að gera eina armbeygju en við gátum ekki gert hana, þó hún væri nú bara ein. Svo mikið var nú tekið á. Ég átti m.a.s. í erfiðleikum með að klæða mig úr bolnum eftir æfinguna.
Svo eftir æfinguna fékk ég mér bara próteinsjeik og skellti mér eftir á í ljós. Svo fór ég bara beinustu leið heim og dó í nokkra klukkutíma fyrir kvöldmat.
En núna í kvöld fór ég til Helga og við æfðum okkur smávegis fyrir söngkeppnina. Það fór ekki betur en svo að ég missti röddina hálfpartinn í miðjum æfingum, sem er ekki góðs viti. En atriðið okkar verður vel æft og erum við búnir að þýða textann, ásamt því að bæta við röddun, hækkun ofl. skemmtilegu. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út allt saman. En það eru stífar æfingar framundan, þar sem keppnin er jú næsta laugardag.
En það sem pirrar mig frekar mikið í sambandi við þessa keppni er hvað Borgarholtsskóli er búinn að veita okkur lítinn stuðning í þessu öllu saman. Við áttum bara að þýða lagið sjálfir, þó einn kennari hafi stigið upp og hjálpað okkur. Borgarholtsskóli var ekki með neinn aðila tilbúinn til að þýða lagið fyrir okkur, vitandi það að 80% af lögunum í keppninni væru ófrumsamin lög á ensku. Svo fengum við ekki verðlaunin okkar þegar við unnum keppnina, en við áttum að fá GSM síma og flugmiða til Akureyrar. Ég spurði nokkra í nemendaráðinu hvenær við fengjum GSM símana og hvort við færum á föstudegi eða laugardegi til Akureyrar. Þeir bara vissu ekki neitt! Ég tala nú ekki um myndatökuna strax eftir keppnina í Borgó, en okkur var bara sagt að mæta upp í Verzló þar sem myndi verða tekið á móti okkur af ljósmyndara. Við biðum í hálftíma í kuldanum fyrir utan Verzló. Erum við að tala um skipulagsleysi á háu stigi eða? Þetta er bara illa skipulagt og asnalegt, og gef ég nemendaráðinu og þeim sem stóðu að þessari keppni, feitan mínus fyrir að standa svona illa að þessu eftir skólakeppnina sjálfa!
En núna ætla ég að fara að sofa. Skólinn að byrja aftur á morgun og það er sko langur dagur, stanslaust frá 8-4 og svo ræktin og söngæfing strax eftir það. Guð hvað ég er feginn að hafa hætt í Idolinu á sínum tíma, þar sem það hefði verið 10x meira álag en þetta!
Segjum þetta ágætt í bili.

2/5Í morgun vaknaði ég hálf 10 og skellti mér í ræktina. Við tókum brjóstkassann og þríhöfðann og vorum gjörsamlega búnir eftir á. Eftir æfinguna sagði hann okkur að gera eina armbeygju en við gátum ekki gert hana, þó hún væri nú bara ein. Svo mikið var nú tekið á. Ég átti m.a.s. í erfiðleikum með að klæða mig úr bolnum eftir æfinguna.

Athugasemdir (