Deila á Facebook
« Mr. Bean's Holiday | Aðalsíða | Ég er floginn! »

Ekkert flug & engin gisting?
Skrifað miðvikud. 11. apríl 2007 - 19:29
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag var fyrsti skóladagurinn eftir þetta æðislega páskafrí. Þetta var alveg frábær dagur og verður enn betri í kvöld þegar við Helgi fáum að æfa flutning okkar uppi í skóla í kerfinu inni í sal.

Ég byrjaði bara á því að mæta í tíma eins og ég geri venjulega. Svo þegar skólinn var að verða búinn skrapp ég inn í herbergi nemendaráðs og spurði hvort við Helgi gætum fengið salinn í skólanum til þess að æfa fyrir söngkeppnina. Það var víst ekkert mál, þannig við erum að fara að æfa þar á hverju kvöldi fyrir keppnina. Það er allt annað að æfa í stereo kerfi í sal heldur en kareoke. Maður heyrir svona sirka hvernig þetta verður í keppninni þegar maður æfir sig í kerfi.

En það var nú gott að ég fór til nemendaráðsins, þar sem ég spurðist fyrir um flugmiðana okkar til Akureyrar og GSM símunum sem okkur var lofað þegar við unnum keppnina í Borgarholtsskóla. Þá kom í ljós að það hefði ekkert verið búið að panta flugmiða né gistingu. Mér brá nú heldur betur við að heyra það og bað þau um að gera það, og þau fóru strax í að panta flug.

Það var víst Ásta, formaður nemendaráðsins, sem átti að sjá um að panta flug og gistingu, en gerði það greinilega ekki. Svo þegar ég hringdi í hana frekar ákafur þá kenndi hún hinum í nemendaráðinu um. Alveg frábær vinnubrögð!

Það var að vísu ekkert mál að panta flug, en allt annað mál með gistinguna. Þau hringdu út um allt til að leita að gistingu en það var uppbókað á öllum hótelum og gistiheimilum. Þeim var þá farið að detta í hug að leigja húsbíl og taka bara einn góðan rúnt á þetta, en mér leist ekki alveg nógu vel á það.

Ég hringdi þá í Helga og spurði hann hvort hann þekkti einhverja á Akureyri sem væru til í að leigja okkur eitt eða tvö herbergi, en hann þekkti engan. Svo stuttu seinna hringir hann og segist vera búinn að redda 120 fermetra íbúð handa bara okkur tveimur. Húsasmiðjan á víst íbúð á Akureyri og er að leigja hana út, þannig við fáum íbúðina og nemendafélagið borgar. Algjör snilld!

Svo varðandi GSM símana okkar þá fáum við þá bara mjög fljótlega. Birgir Örn, sem er algjör snillingur, sagðist fara bara strax í málið og redda þessum símum. Þetta eru víst einhverjir geðveikir Nokia símar. Hann sýndi okkur sinn sem er alveg eins. Djöfull er þetta allt að smella loksins saman!

En núna áðan fór ég bara í ræktina. Ég skaust heim úr skólanum og mixaði djús með kreatíni úti í, þar sem ég á alltaf að taka kreatín fyrir og eftir æfingar. Svo dreif ég mig í ræktina. Við tókum þá bak og tvíhöfða, en það kom mér frekar mikið á óvart þar sem við tókum brjóstkassa og þríhöfða í gær. Við vorum alveg að drepast úr harðsperrum og vorum ekki alveg að meika að taka efri part annan daginn í röð, en það var nú ekki það erfitt.

En núna er ég bara nýkominn úr ræktinni og ljósum og fer að fara upp í skóla að æfa með Helga. Reynir, varaformaður nemendaráðs, var samt að hringja og það er víst eitthvað vesen að tengja þetta, þannig það er spurning hvort við getum æft í salnum. Ég vona það samt svo innilega, þar sem þetta verður þúsund sinnum betur æft ef við gerum það.

En segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():