Langa helgin 18. - 22. apríl
Skrifað mánud. 23. apríl 2007 - 02:25Það hefur ekki komið blogg hérna inn lengi eða alveg síðan söngkeppnin var, sem er ekki nógu gott. Það mætti halda að ég væri giftur.
Það heitasta í dag í vinahópnum er að segja að aðrir innan hópsins séu giftir út af því að þeir eru komnir með konu/kærustu/dúllufélaga upp á arminn og sleppa þ.a.l. djammi, fara snemma af djamminu, blogga ekki lengi, láta ekki heyra í sér, o.s.frv. 
En það var mikið um að vera núna síðustu helgi en við strákarnir djömmuðum bæði miðvikudag, föstudag og laugardag. Svei mér þá löng helgi! M.a.s. það löng að maður á í erfiðleikum með að muna hvað gerðist eiginlega, þar sem það er svo ógeðslega auðvelt að rugla þessu öllu saman þar sem þetta er eiginlega alltaf alveg eins!
Á miðvikudaginn var náttúrulega djamm, þar sem daginn eftir var sumardagurinn fyrsti og það er auðvitað frídagur. Þannig hvað var þá annað í stöðunni en að skella sér á djammið og sletta aðeins úr klaufunum? Við tókum stefnuna í partý til Andra, þar sem hann var einn heima. Ég man bara þegar ég kom þarna voru Sigurþór litli bróðir Andra og Grétar úti í bílskúr að reykja, og þegar ég kom þarna með Jökli byrjaði Sigurþór með einhverja stæla við mig. Hann byrjaði að spila sig eitthvað voða stórt og sagðist ætla að berja mig ef ég færi inn. Hvað gerði ég? Að sjálfsögðu fór ég bara inn! Hann var líka heldur betur tekinn á teppið seinna um kvöldið af Andra bróðir sínum. 16 ára smápjakkur með kjaft við 22 ára gamla menn.
Þegar ég kom þarna inn fékk ég nokkrar beiðnir um að taka lagið með Helga, sem við tókum í söngkeppninni á Akureyri. Við tókum það fáránlega oft þarna um kvöldið og svo fórum við bara að syngja helling af öðrum lögum.
Þetta var ágætis kvöld, fyrir utan það að Gummi var edrú og nennti ekki að djamma. Hann kíkti samt aðeins inn til Andra en fór svo aftur. Svo kom hann aftur og skutlaði okkur niður í bæ og fór svo aftur. Svo kom hann aftur inn á Sólon. Hann var alltaf að koma og fara, ég skildi ekki alveg hvað hann ætlaði sér.
Á föstudaginn var auðvitað djammað aftur. Ég, Jökull, Grétar og Helgi vorum bara aðeins heima hjá Grétari og kíktum svo í afmælið til Huldu fyrrverandi. Jökull nennti ekki að drekka það kvöld þannig hann bauðst til þess að vera á bíl. Ég verð nú bara að segja að þetta afmælispartý hafi verið ágætt, þó við höfum komið aðeins of seint og misst af mesta fjörinu. Ég vil líka óska Huldu til hamingju með afmælið. Skvísan er orðin tvítug, loksins! Vúhú!
Eftir afmælið hjá Huldu fórum við Grétar bara tveir niður í bæ, þar sem Jökull og Helgi ákváðu að kíkja aðeins til Elínar, stelpu sem Helgi er að dúlla sér með. En það var víst aðeins meira en ein heimsókn þar sem eftir það fóru þeir bara heim og komu ekkert niður í bæ, eins og allavega Helgi hafði lofað.
Á laugardaginn skelltum við okkur á djammið enn og aftur. Í þetta skiptið var ég ógeðslega latur og orðinn svolítið þreyttur á djamminu en ég dreif mig samt sem áður eftir að hafa horft einn á The Perfect Man. Ég verð nú bara að segja að hún hafi verið ágætis afþreying þó þetta sé ekki beint mynd fyrir mína líka þá var hún bara skítsæmileg.
Eftir að hafa horft á þessa gelgjumynd skellti ég mér til Grétars. Til að byrja með vorum við bara tveir og byrjuðum að horfa á Intacto.
Hún fjallar um fólk sem tekur þátt í ýmsum leikjum og leggur ýmsa hluti undir, t.d. peninga, hús, bíla, líkamsparta, o.s.frv. Þessir leikir snúast bara út á hversu heppnir spilararnir eru, hvort maður vinni eða tapi. Sá sem vinnur fær allt. Dæmi um leiki eru t.d. þar sem smurt er einhverju gumsi í hárið á öllum spilurunum, þeim svo komið fyrir í herbergi og sitja öll í hring. Svo er slökkt ljósin og eldflugu sleppt í herbergi og á þeim sem eldflugan sest í hárið á, hann vinnur og fær allt sem hinir lögðu undir. Svo er bundið fyrir augun á þeim og hendur fyrir aftan bak og látin hlaupa í gegnum skóg, þar sem tré eru ófá, og sá sem nær að hlaupa fyrstur í gegnum skóginn án þess að lenda á tréi, vinnur. Það er ekkert lítið vont að lenda á svona stóru tréi á fullri ferð með bundnar hendur fyrir aftan bak, þar sem maður steinrotast. Að lokum sá sem vinnur alla leikina, fær hann að keppa við guðfaðirinn, og er það bara Rússnesk rúlletta. Eini munurinn á þessari rúllettu og þessari hefðbundu er sá að í staðinn fyrir 1 kúlu eru 5 og svo sá sem á að gera, á að skjóta andstæðinginn.

Þetta er mjög góð mynd, þrátt fyrir að vera á spænsku. Það var bara svolítið erfitt að fylgjast með henni þegar fólk er með hávaða í herbergi við hliðina á manni, gítar, söngur og læti. Ég mæli samt hiklaust með þessari mynd. Það væri líka geðveikt ef það yrði gerð mynd svipuð þessari, þar sem það er ógeðslega gaman að myndum með svona leikjum, eins og t.d. Cube, þar sem 7 einstaklingar vakna inni í völundarhúsi/teningi sem hefur að geyma margar dauðagildrur. Myndin snýst svo út á það að þau reyna að sleppa út úr völundarhúsinu, jafnframt að reyna að halda sér á lífi. Einnig mjög góð mynd sem ég mæli hiklaust með! En það mætti gera fleiri svoleiðis myndir.
En eftir myndina fórum við bara fram og hittum fólkið. Þá voru komin: Helgi, Jói, Andri, Auður kærasta Jóa, Elín dúllan hans Helga og svo Rut systir Auðar.
Svo var komið að því að fara niður í bæ. Helgi var geðveikt ömurlegur og fór bara með stelpunum. Ég hugsaði með mér þarna að við myndum ekki sjá meira af honum um kvöldið og reyndist það rétt! Ég, Grétar, Jökull, Andri og Jói vorum þá bara 5 eftir og skelltum okkur í bæinn. Við byrjuðum samt á því að fara á Subway þar sem Jói og Andri fengu sér að borða. Ég man að mér var geðveikt mikið sagt að fara út, út af því að ég var með bjór þarna inni. Ég var að sjálfsögðu mjög kurteis og fór út án vandræða.
Eftir að hafa borðað skelltum við okkur niður í bæ. Jökull, Jói og Andri fóru á Hverfis en ég og Grétar skelltum okkur bara á Sólon. Það var náttúrulega brjálað að gera á Sólon og var röð nánast alveg niður laugarveginn. Ég og Grétar skelltum okkur bara í VIP röðina og vorum komnir inn eftir nokkra mínútna bið.
Ég er búinn að komast að því að ég er algjör djammfíkill og bæjarrotta. Ég get ekki drukkið án þess að fara niður í bæ, þar sem mér finnst alltaf eins og ég sé að missa af einhverju ef ég fer ekki niður í bæ. Svo þegar ég er kominn niður í bæ er allt ömurlegt en ég vill samt ekkert fara heim! Ég m.a.s. segi farinu mínu að fara heim og svo er ég bara einn niðri í bæ og allt ömurlegt. Ég skil mig ekki!!!
En í þessu tilviki fóru Grétar og Jökull heim. Sem betur fer var Gummi svo góður að gefa mér far heim í enda kvöldsins, en ég hefði ábyggilega labbað heim hefði hann ekki verið að vinna.
Eftir að það lokaði á Sólon skellti ég mér bara á röltið. Ég kíkti aðeins á Glaumbar, þar sem það var ömurlegt. Ég hitti samt Binna, Aron, Helgu ofl. fólk. Þau höfðu svo miklar áhyggjur af mér þar sem ég var ofurölvi og gat ekki staðið kyrr. Það er allt Gumma að þakka þar sem hann hélt mér á floti eftir að ég kom niður í bæ. Takk Gummi elskan.
Ég, Binni, Aron og Helga röltum á Pizza Pronto, þar sem Helga er að vinna þar. Ég var vongóður um að fá ókeypis pizzu með að fara þarna með þeim en það gerðist ekki. Ég átti náttúrulega ekki krónu með gati þannig ég var svolítið svangur og svekktur. Ég gerðist algjör aumingi og fór á Hlöllavagninn og fékk mér að borða þar. Ég held án djóks að ég verði að fara að smyrja mér samlokur til þess að hafa með mér á djammið svo ég þurfi ekki að fara blankur á Hlölla og leyfa samviskunni að naga mig til dauða. Djöfulsins ræfill!
En eftir þetta rölti ég upp laugarveginn. Ég sá einhverja bræður vera að rífast og annan gaur sem hélt einum bróðurnum svo hann myndi ekki ráðast á bróðir sinn. Hehehe, algjör steypa! Hver í andskotanum ræðst á bróðir sinn? Alveg merkilegur andskoti sem þetta áfengi getur gert mann ruglaðan!
En um leið og ég beindi athygli minni að þessu rifrildi, þá hitti ég Ásu vinkonu Jökuls. Hún var mjög hress með vinkonu sinni og bauð mér að koma með þeim eitthvert. Ég rölti aðeins með þeim upp laugarveginn þegar ég sá gráan BMW og kannaðist eitthvað við hann. Ég var náttúrulega mjög fullur og gat ekki séð í gegnum hliðarframrúðuna út af filmum en mér datt í hug að þetta væri annað hvort einhver dópjarl eða Gummi, og þetta reyndist vera Gummi. Ég kvaddi þá bara Ásu og vinkonu hennar og staulaðist inn í bíl til Gumma.
Hann hafði þá tekið tvo laugarvega í það að leita að mér. Djöfulsins auli er ég að hverfa alltaf svona og láta fólk svo leita að mér.
Sorry, Gummi minn, og takk fyrir það að hafa ekki farið bara strax heim. Ég met það mikils, þar sem ég hefði líklegast dáið í einum dósapokanum hjá Kiyosumi vini mínum. 
En allavega, nú bráðlega taka lokaprófin í skólanum við og þá verður það frekar grátt, þar sem þá fer maður ekki út úr húsi út af lærdómi. En núna næstu helgi er ég bara að vinna. Fínt að taka sér smá djammpásu og vinna í staðinn, þar sem maður á núorðið ekki fyrir bót á rassinum á sér.
En svona í lokin langaði mig að sýna ykkur myndaseríu frá því ég var 14 ára og alveg þangað til núna. Ég var eitthvað í tölvunni að skoða myndir frá því ég var pinkulítill og fannst þetta svo fyndið að ég ákvað að búa til smá seríu og smella hingað inn. Sem betur fer voru lukkutrölls-einkennin (2003) fljót að láta sig hverfa!

Frá 2000-2004 er ég með minn eðlilega háralit (músagrárauðbrúnt ógeð) og ekki er það spennandi háralitur, þannig ég fékk mér strípur. Ég var með strípur í mínum háralit þangað til núna í fyrra þegar ég ákvað að breyta til og prófa aftur að vera dökkhærður. En núna langar mig aftur að breyta til, þar sem það er ekki flott að vera dökkhærður þegar maður getur ekki orðið almennilega brúnn. Ég fór því að spá í að fá mér strípur aftur þannig ég spyr ykkur bara... strípur aftur eður ei?

Úr kvikmyndinni Intacto

Smellið til að sjá stærri mynd

Athugasemdir (