Deila á Facebook
« Trúleysinginn | Aðalsíða | Próf viku fyrir lokapróf? »

Skólinn og ræktin - Auddi Blö!
Skrifað miðvikud. 25. apríl 2007 - 23:59
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Dagurinn í dag var bara ágætur, þrátt fyrir miklu þreytu. Ég fór í nokkur próf sem ég var ekki búinn að læra allt of vel undir, en ég held ég hafi bara staðið mig ágætlega á þeim. Ég fór í munnlegt dönskupróf sem mér gekk víst bara frábærlega í, þar sem dönskukennarinn minn hrósaði mér. Ég er samt með norska hreiminn enn í mér þannig ég skil ekki hvað var svona frábært við þetta.

Eftir skóla fór ég bara heim og fékk mér kreatín fyrir æfingu. Ég er að reyna að halda mér eftir matarplaninu, en það er bara helvíti erfitt þegar maður hefur ekki lyst til þess að borða og kastar upp á æfingum út af því að maginn ræður ekki við svona vatnssull allan daginn. Þessu verður líkaminn greinilega að venjast - og gæti það tekið sinn tíma!

Æfingin gekk ágætlega fyrir sig. Ég tók lappir og axlir og var það ekkert lítið sem ég var píndur. Ég gerði t.d. 2x12 reps með bolta við bakið og svo átti ég að beygja mig niður. Þar er ekki öll sagan sögð, þar sem í viðbót átti ég að halda á sitthvorum 17,5 kg lóðunum í höndunum á meðan. Þið getið vel ímyndað ykkur hversu erfitt þetta var!

Eftir æfinguna skellti ég mér bara í ljós til að reyna að fá smá brúnku, en það er nú ekki beint að takast. Þessir ljósabekkir eru svo daufir, eða allavega andlitslamparnir, að maður finnur varla hita í andlitinu! Ef ég ætti einhvern pening myndi ég nú ekki fara í ljós í líkamsræktarstöð, heldur myndi ég frekar fara á alvöru ljósastofu - en maður verður að láta þetta duga í auraleysinu.

Eftir að ég var búinn í ljósum skellti ég mér í sturtu, og hvern haldiði að ég hafi séð þá? Auðunn fokking Blöndal! Ég er að vísu ekki 100% viss um að þetta hafi verið hann, þar sem ég var ekki með gleraugun á mér á því augnabliki, en hann var lítill og sköllóttur eins og hann, og hann talaði eins og Auðunn Blöndal. Hann var einnig að flýta sér geðveikt mikið eins og Auðunn Blöndal, en hann tók sneggstu sturtu sem ég hef orðið vitni að á minni lífsleið.

En núna í kvöld er ég bara búinn að hanga í tölvunni. Helgi var að segja mér í dag að hann ætlaði að reyna að redda einhverjum bíómiðum svo við strákarnir gætum farið í bíó í kvöld, en hann ætlaði með kærustunni sinni, Jóa og kærustunni hans, þannig það er spurning hvort hann hafi beilað bara á mér, þar sem ég væri bara sambandslaus aukahlutur (hehe fyndið orð). Ég hef bara ekkert heyrt í honum síðan í dag. Ég öskra bara á hann á morgun.




Athugasemdir ():