Deila á Facebook
« Próf viku fyrir lokapróf? | Aðalsíða | Helgin 27. apríl - 1. maí »

Sjóveikur landkrabbi
Skrifað fimmtud. 26. apríl 2007 - 23:12
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég satt að segja veit ekki alveg hvað er um að vera hjá mér. Ég vaknaði í morgun nokkuð sprækur eins og vanalega og dreif mig í skólann. Svo eftir smá stund í skólanum fór mig að svima og varð svona eins og þegar maður er sjóveikur. Mér varð samt ekki flögurt eða neitt svoleiðis, en mér leið eins og það væri að líða yfir mig!

Ég gat varla keyrt heim vegna þess að mér leið ömurlega og var alveg að líða út af, en ég gerði það nú samt og skellti mér í rúmið og fór að sofa. Ég svaf í einhverja 2-3 tíma og dreif mig svo aftur í skólann. Mér leið nú ekkert betur eftir þennan svefn, þar sem mig svimaði rosalega í skólanum eftir hann.

Eftir þennan langa tíma sem ég fór í, fór ég loks heim. Mér leið mjög undarlega, þó ekki eins og mér hafði liðið um morguninn. Mér leið ekki eins og það væri að líða yfir mig, þó ég væri með bullandi svima og það væri eins og ég væri nýbúinn að sigla frá Akureyri!

Ég ætla að fara á morgun til læknis og panta tíma í allsherjar rannsókn núna fljótlega, þar sem mamma sagði mér að það væri ekki óalgengt í okkar fjölskyldu að fá ýmsa slæma kvilla, eins og heilaæxli ofl. Þetta var sko ekki til þess að láta mér líða betur!

Ég borðaði ekki lítið í dag, ég svaf að vísu bara í 6 tíma (7 venjulega) en ég fór beint heim að sofa eftir á og lagaðist ekkert eftir meiri svefn, þannig svefn getur varla verið vandamálið. Ég tók bílveikistöflu áðan en það lagaði ekki neitt, mig svimar alveg jafn mikið!

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað þetta gæti verið?




Athugasemdir ():