Helgin 27. apríl - 1. maí
Skrifað miðvikud. 2. maí 2007 - 03:11Ætli ég verði ekki að blogga svo þið haldið ekki að ég sé dauður. Ég verð líka að blogga núna þar sem næsta hálfa mánuðinn mun ég blogga mjög lítið út af prófatörni! En það er bara svolítið mikið að gera hjá mér, en fyrir utan það er ég bara hress! Ég var að vinna alla helgina en fór svo á djammið með strákunum á mánudaginn, þar sem það var nú rauður dagur daginn eftir og auðvitað var bærinn opinn alla nóttina!
Á föstudaginn var ég bara að vinna. Ég átti að byrja 6 og var kominn 10 mínútur í upp í Kringlu, en á leiðinni fékk ég verstu magapínu sem ég hef fengið á ævi minni! Það kom svona stingur í magann og ég átti erfitt með að anda. Ég fór allur að svitna og leið hræðilega. Ég var vel að spá í því að snúa við og hringja í yfirmann minn en ég harkaði það bara af mér, lagði uppi í Kringlu og eymdi af sársauka í bílnum. Svo varð ég að drífa mig þar sem ég var að verða of seinn, þannig ég bara fór út úr bílnum og upp með lyftunni. Á leiðinni hvarf þetta bara, sem betur fer, og gerði ekkert vart við sig eftir það.
En þetta var ágætis kvöld/nótt. Um kvöldið var ég bara að þjónast úti í sal. Það var leikhús þetta kvöldið og þá var auðvitað brjálað að gera. Mamma, pabbi og vinir þeirra komu í mat áður en þau fóru í leikhúsið, en verst var að þau voru ekki sett á mitt svæði þannig ég fékk ekkert að þjóna þeim. En ég fékk í staðinn að þjóna 26 starfsmönnum Glitnis banka. Þau voru mjög kurteis og skemmtileg - ekkert vesen á þeim og gekk allt snuðrulaust fyrir sig!
En um nóttina var ég bara á barnum. Beta beibí var veik þannig Hafdís var bara yfir. Ég, Andri og Hafdís vorum bara á barnum. Eygló átti að vera með mér á barnum en elskan var veik, þannig það þurfti að fá Andra til að vinna fyrir hana.
En um kvöldið kom Grétar og heilsaði upp á mig. Ég opnaði bara reikninginn minn fyrir hann þannig hann gat skrifað að vild á mig, en þar sem hann er einn besti vinur minn treysti ég honum alveg fyrir því. En Helgi og Andri kíktu líka í smá stund en fóru fljótt aftur. Grétar var þá smá eftir en fór fljótlega heim út af ofdrykkju.
Svo eftir vakt tókum við bara til og borðuðum samlokur. Svo eftir það fór ég bara heim að sofa. Gummi vaktstjóri bað mig nefnilega um að mæta klukkutíma fyrr næsta dag, þannig ég varð að fara að sofa snemma.
Á laugardaginn vaknaði ég í kringum 3 og dreif mig þá í sturtu og gerði mig kláran fyrir vinnuna. Ég átti að mæta kl 4 og var kominn tímanlega upp í vinnu. Ágætis kvöld en eins og hinn daginn var ég bara um kvöldið að þjónast úti í sal og svo á barnum um nóttina. Beta var þá orðin hress og mætti, og guð hvað það var gott að fá hana. Ótrúlegt hvað maður saknar hennar, enda ekki búinn að hitta hana síðan á árshátíðinni. En um nóttina var ég, Davíð og Beta bara á barnum. Davíð alltaf að komast meira og meira inn í vaktarplanið, sem er bara góður hlutur - frábær strákur!
Grétar kom aftur og heilsaði upp á mig. Ég opnaði auðvitað aftur reikninginn minn fyrir hann þannig hann gat skrifað á mig. Hann var bara þarna alla nóttina og beið eftir mér. Hann átti eitthvað erfitt með að komast inn til að byrja með, þar sem dyravörðurinn gaf honum bara örfáar mínútur til þess að tala við mig, en ég talaði svo við dyravörðinn og reddaði þessu þannig Grétar fékk að vera alla nóttina inni.
Eftir að við lokuðum tókum við bara til og fengum svo pizzur. Sigga kokkur var svo góð að leyfa okkur að fá pizzur í þetta skiptið og vorum við mjög þakklát fyrir það. Svo kláruðum við bara að borða, læstum pleisinu og kíktum á Sólon.
Það var nú beint ekki skemmtilegt en ágætt að kíkja aðeins. Svo vorum við bara svolitla stund niðri í bæ, þar sem okkur fannst svo gaman að fylgjast með fulla fólkinu. Við lentum m.a.s. í því að sjá einhvern Íslending henda inn flösku í bíl til útlendinga og þ.a.l. smalla rúðunni í bílnum. Einn útlendingurinn stökk þá út og ætlaði að lemja Íslendinginn sem gerði þetta, en þá hjálpuðu allir Íslendingarnir Íslendingnum og endaði útlendingurinn á því að hlaupa niður Laugarveginn með hóp af Íslendingum á eftir sér. Greyið strákurinn.
En eftir þetta fórum við bara heim. Við hittum samt aðeins Hafdísi, sem er að vinna með mér á Kránni, og spjölluðum aðeins við hana. Hún vildi að ég skutlaði einhverri vinkonu hennar upp í Garðabæ, sem var því miður ekki hægt, þar sem ég átti ekkert bensín. En hefði ég átt bensín hefði ég auðvitað gert henni þann greiða.
Eftir þetta fórum við Grétar bara heim.
Á sunnudaginn skellti ég mér á rúntinn með Eygló og Gumma. Við skelltum okkur í smá stund inn á Kringlukránna, en þar sem þau voru að loka þá gátum við ekki verið lengi. Ég fékk þá bara take-away Pepsi og Gummi take-away bjór. Við röltum út hjá stiga inngangnum og sáum þá að það var opið fyrir fólk, sem fór út að reykja í hléinu í bíóinu, og ákváðum að svindla okkur inn. Við röltum þarna inn, en þar sem myndin var löngu byrjuð var þetta frekar augljóst, og ég var svo hræddur um að það yrði gómað okkur, þar sem einhver starfsmaður í bíóinu stóð þarna fyrir framan einhvern salinn og horfði stíft á okkur. Við fórum þá bara inn í einhvern sal og enduðum við á því að fara í salinn með Blades of Glory, en því miður hafði Gummi farið á hana fyrr um kvöldið, þannig hann þurfti að sjá seinni helminginn tvisvar sama kvöldið. Hahaha.
En þetta var algjört rugl hjá okkur að gera þetta, þar sem það er örugglega ágætis sekt fyrir að gera þetta, en sem betur var ekki böstað okkur. En myndin var mjög góð og fyndin, og finnst mér mjög leiðinlegt að hafa ekki séð fyrri helminginn, en ég verð víst bara að horfa á hann seinna.
Eftir bíóið skelltum við Gummi okkur bara á Sólon, en Eygló nennti ekki inn, þannig hún sagðist ætla að sækja okkur eftir að það lokaði á Sólon. Ég og Gummi lentum þá bara á skemmtilegu spjalli við Ívar vaktstjóra. Eftir smá stund á Sólon kom Eygló og skutlaði okkur bara heim.
Á mánudaginn var djamm. Ég klæddi mig fyrir kvöldið í mitt fínasta púss (svört skyrta, hvít axlabönd, svartar buxur og hvítir skór). Eygló var svo góð að lána mér Carlsberg kippu þannig ég gat drukkið þetta ágæta kvöld. Takk fyrir það, Eygló mín.
Við strákarnir vorum búnir að ákveða að hittast heima hjá Gaua bróðir hans Gumma, og kom Grétar og sótti mig um kvöldið. Hann ætlaði víst að vera edrú á bíl út af því að hann var að fara að þrífa bíl næsta morgun. Duglegur drengurinn!
En við sóttum Jökul og brunuðum svo til Gaua bro. Þegar við komum þangað voru: Gaui bro, Gummi og Palli þarna. Þeir sátu bara þarna og voru að spila póker (texas hold 'em) og buðu okkur að spila með. Ég kann náttúrulega ekki neitt í þessu þannig ég var ekki með, en svo eftir nokkra bjóra endaði ég á því að vera með. Ég skildi ekki neitt í þessu og var með eitthvað spjald þar sem á stóð hvað væri best að vera með. Hehehe, æfingin skapar meistarann.
Seinna um kvöldið var ég farinn að vera svolítið fullur. Mér byrjaði að leiðast hrikalega þannig ég dottaði í sófanum, en þegar ég var vakinn eftir það þá var ég svona 10x fyllri en ég hafði verið. Ég var gjörsamlega á rassgatinu! Ég hafði víst verið að tala við Ásgerði vinkonu mína og grátbeðið hana nánast um að koma með mér að dansa í bænum. Hahaha!
En þetta var frábært kvöld heima hjá Gaua bro, og vil ég bara þakka kærlega fyrir mig. Við verðum endilega að gera þetta oftar, þar sem póker er nú alls ekki hundleiðinlegur þegar maður kann hann. En ég sé alveg að þetta væri 100x skemmtilegra ef ég kynni þetta og þess vegna langar mig að læra þetta!
En seinna um nóttina fórum við bara niður í bæ. Grétar var edrú á bíl og skutlaði mér og Jökli. Sara, vinkona Gumma, sótti hina og skutlaði þeim niður í bæ.
Ég var alveg gjörsamlega á rassgatinu þegar við komum niður í bæ. Ég man að ég stóð þarna í VIP röðinni og blikkaði alla dyraverðina, hehehe, og var mér hleypt inn á endanum. Svo fór ég bara inn og fékk mér strax vatnsglas. Svo bara upp að dansa!
Eftir mikinn dans og mikinn hamagang, var ég hættur að vera svona ógeðslega fullur, en ég ætlaði að bíða aðeins lengur og fékk mér því bara kók á barnum. Gummi elska splæsti því á mig.
Svo héldum við bara áfram að dansa.
Ég hitti mikið af yndislegu fólki en minnisstæðust er Guggu fyrrverandi. Hún var með Ólöfu vinkonu sinni þarna. Ólöf bað svo Guggu um að kaupa drykki handa henni og sér og fór þá Gugga á barinn og splæsti á mig einum drykk í leiðinni á kortinu hennar Ólafar. Hehehe, takk elskan.
Ég man að Helgi kom þarna en fór svo fljótt aftur. Hann ætlaði að skreppa á Hlölla og ætlaði svo að koma strax aftur, en ég hitti hann ekkert aftur um kvöldið. Sofnaðiru á Hlölla, Helgi minn?
Grétar fór svo kl 4 heim en bauð mér að hringja í sig þegar mig vantaði að komast heim. Svo fór Jökull stuttu seinna með Sollu kærustunni sinni, og var ég þá bara einn með Guggu. Það var allt brjálað að gera í dansinum!
Þegar Sólon lokaði röltum við Gugga bara út, en þar voru einhver slagsmál sem löggan svo seinna stoppaði. Stuttu seinna kom Grétar. Við fórum þá á bílnum á Hlölla og splæsti Gugga á mig að borða. Takk elskan.
Við hittum svo Gumma, Gaua bro, Palla, Mikka og einhvern gaur þarna. Þeir ætluðu að fá sér að borða á Hlölla en um leið og þeir komu í lúguna var búið að loka, þannig þeir fengu ekkert að borða.
Það voru einhverjir gaurar þarna sem höfðu verið með einhvern kjaft við Gaua og höfðu ýtt honum og eitthvað, þannig það var smá hiti í slagsmál, en það gerðist ekkert. Við röltum bara fram og til baka, þangað til við beiluðum bara á þessu öllu saman og fórum heim að sofa. Grétar skutlaði fyrst Gumma, svo Palla og að lokum mér og Guggu.
En nú í dag er ég bara búinn að vera rólegur. Ég vaknaði ekkert þunnur, enda svaf ég til að verða 9 í kvöld. Svo fórum við Grétar og Jökull bara á smá rúnt. Við fórum á Aktu Taktu og þurftum að bíða í svona 10-15 mínútur í lúgunni. Við vorum í fremstu lúgunni þannig okkur fannst þetta svolítið skrítið. Svo kom stelpan og afgreiddi okkur og þá sagði Grétar henni að við værum búnir að bíða geðveikt lengi eftir afgreiðslu. Þá gaf hún okkur öllum ís í miskabætur, hehehe.
Eftir það fórum við bara heim. En nú eru prófin byrjuð og verð ég að fara að sinna þeim, þannig ég segi þetta bara gott í bili.

Athugasemdir (