Deila á Facebook
« Helgin 27. apríl - 1. maí | Aðalsíða | Prófin byrjuð »

Spider-Man 3
Skrifað föstud. 4. maí 2007 - 16:08
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég skellti mér í bíó í gær á sérstaka sýningu fyrir stjórnendur netsamfélagsins Huga. Þeir buðu okkur á Spider-Man 3, sem verður heimsfrumsýnd núna í kvöld. Við sáum sem sagt myndina á undan flestum öðrum í heiminum - sem er nokkuð kúl.

Þegar ég tilkynnti um komu mína sendi ég vefstjóra Huga skilaboð og bað um tvo miða, en þar sem Hugi var bara að bjóða stjórnendum Huga þurfti maður að koma með mjög góða ástæðu fyrir því af hverju maður ætti að fá fleiri en einn miða. Ég sagði í skeytinu: „Ef ég fæ ekki miða mun heimurinn farast“ og virðist það hafa verið nógu góð ástæðu, því um leið og ég kíkti á skráningarlistann voru tveir miðar komnir á mig. Ég bauð þá Grétari með.

Spider-Man 3 fjallar að sjálfsögðu um Peter Parker, vinalegu ofurhetjuna, sem hjálpar borgaryfirvöldum við að halda glæpum í lágmarki ásamt því að bjarga fólki sem er í sárri neyð. Í þetta skiptið mætir köngulóarmaðurinn þrem nýjum óvinum, og eru það nýi goblininn, sandmaðurinn og nýja furðuveran Venom, sem hefur svipaða eiginleika og Spider-Man.


Peter Parker verður fyrir þessu einkennilega svarta venom slími, sem festist að lokum við hann. Slímið, sem kom upprunalega utan úr geimnum, hefur þá eiginleika að breyta persónuleika hýsilsins og verður Peter þ.a.l. mjög árásargjarn, uppstökkur, sjálfsöruggur og töff (eða það heldur hann). Þar að auki breytir hann hárgreiðslunni sinni og verður allt í einu emo, sem fer honum nú mun betur en nördalega greiðslan sem hann er alltaf með.

Peter Parker orðinn emo


Myndin kemur samt verulega á óvart, svona þegar maður veit ekki hverjir verða vondu karlarnir. Hún er samt mjög góð og hélt mér spenntum mest allan tímann, fyrir utan rólegu atriðin þar sem hann var að tala við kærustuna sína, Mary Jane, eða frænku sína, May. Þau atriði voru frekar niðurdrepandi. En myndin er svolítið löng þannig það gæti komið fyrir að maður líti á klukkuna 1-2x en að öðru leyti er þetta bara mjög góð mynd. Af öllum þrem myndunum myndi ég segja að þessi væri skást, þar sem það eru margir vondir karlar í þessari, auk þess að bardagaatriðin eru mjög flott og vel gerð. Einnig finnst mér sandmaðurinn svo skemmtilegur og á einkennilegan hátt, svolítið töff.

Ég gæti alveg vel hugsað mér að sjá hana aftur en slíkt hið sama get ég því miður ekki sagt um hinar myndirnar. Ég passaði mig samt mjög mikið á því að koma ekki með spoiler í þessa umfjöllun mína, þar sem það eyðileggur myndina fyrir öllum. Ég sleppti því að segja hverjir vondu karlarnir eru, hvernig þeir urðu „ofurmenni“, hverjir dóu, o.s.frv. Það er því ykkar að velta því fyrir ykkur hvort Spider-Man 4 verði gerð eður ei.

4/5

Eftir myndina fórum við Grétar bara að rúnta. Við sáum einhverjar stelpur á rúntinum og ákváðum að djóka aðeins í þeim og elta þær hvert sem þær fóru, en ég held okkur hafi bara tekist að hræða úr þeim líftóruna. En það var ákveðin spenna í þessu og skemmtanagildi þannig við héldum áfram. Við héldum áfram að elta þær þangað til þær keyrðu að einstefnu hjá ráðhúsinu og reyndu að stinga okkur af. Við fórum þá bara fram úr þeim og stoppuðum fyrir framan þær. Að lokum keyrði stelpan fram hjá dauðhrædd á svipinn, en þá var vinkona hennar farin úr bílnum. Hehehe!

En í dag var nú ekki margt gert. Ég sem ætlaði að vera svo duglegur að læra fyrir Náttúrufræðina á þriðjudaginn, en allt kom fyrir ekki og ég sló þessu bara upp í leti. Ég vaknaði samt mjög snemma og fór í klippingu og strípur. Já, þið heyrðuð rétt... STRÍPUR! Kallinn er orðinn strípukollur aftur. Úje, I like it!

Svo seinna um morguninn fór ég til læknis til þess að forvitnast um þennan einkennilega svima sem ég fékk um daginn. Þetta var þá ekkert, bara einhver vökvi inni í einhverri pípu í eyranu. Læknirinn lét mig bara fá leiðbeiningar til þess að losna við þetta með ákveðnum æfingum og sleppti mér eftir það.

Núna eftir sirka hálftíma er ég að fara á æfingu, þar sem það verður tekið á því. Á síðustu æfingu skokkaði ég, reykingarmaðurinn sjálfur, í 20 mínútur. Eftir það vorum við teknir í smá box og spark kennslu. Vonandi verður það eitthvað svipað núna, en það kemur bara í ljós!

Yfirmaður minn á Kránni sendi mér SMS áðan og bað mig um að vinna á barnum frá 7-12 í kvöld, og þar sem ég vann svo lítið í síðasta mánuði og fékk svona lítið útborgað núna, ákvað ég að jánka við því tilboði. Þannig ég verð að vinna smá í kvöld. Svo eftir það ætla ég annað hvort að fara að læra, spila póker eða rúnta. Kannski ég bjóði bara Ásgerði á rúntinn, sem hún missti af í gær, ef hún er ekki að vinna þ.e.a.s.

En núna ætla ég að fara að taka mig til fyrir æfinguna og vinnuna. Svo er það bjórdrykkjudagur á morgun, þar sem ég er búinn að lofa Ásgerði að dansa við hana niðri í bæ. Ég ætti ekki að vera í vandræðum með það, en það er svolítið fyndið að ég sé byrjaður að lofa manneskju sem ég hef ekki einu sinni séð í persónu - bara á myndum.

Segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():