Deila á Facebook
« Spider-Man 3 | Aðalsíða | Próf - Einbeitingin fjarar út! »

Prófin byrjuð
Skrifað sunnud. 6. maí 2007 - 22:42
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég þoli ekki þegar próftímabilið er gengið í garð og maður nennir bara engan veginn að læra! Maður reynir allt til þess að sleppa við að læra undir prófin, þá á ég við að maður fer seint að sofa, vaknar seint, fer að djamma í miðjum prófum, hangir í tölvunni, ofl. Ég fór t.d. að djamma um helgina og var að vakna kl 9 áðan. Svo ætla ég að vakna geðveikt snemma á morgun og læra allan daginn, en ég á ekkert eftir að sofna í kvöld, út af því að ég er nývaknaður þegar ég fer að sofa aftur. Það gengur náttúrulega ekki. Svo ætlaði ég að læra alla þessa helgi, en hvað gerði ég? Ég fór að djamma! Ég þarf að fara að taka mig á. Þið kannist kannski við þetta, þið sem eruð í prófum, eða er ég kannski einn um þennan fávitaskap?




Athugasemdir ():