Deila á Facebook
« Prófin byrjuð | Aðalsíða | Hvað skal kjósa? »

Próf - Einbeitingin fjarar út!
Skrifað fimmtud. 10. maí 2007 - 12:20
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég er hér heima að læra fyrir Sögupróf og er gjörsamlega einbeitingarlaus. Það er aðallega vegna þess að þessir yndislegu kennarar settu fyrir hlutapróf í síðustu vikunni fyrir lokapróf, þannig maður lærði eins og hestur fyrir þau og er hálf búinn eftir það. En ég spjallaði aðeins við félaga minn og við komumst báðir að því að lokapróf væri af hinu illa, en símat væri af hinu góða.

Málið er að þegar það er símat yfir önnina, ss. sífellt mat á frammistöðu nemenda yfir önnina, leggur maður harðar að sér en ef maður fer bara í lokapróf og fær bara einn dag til þess að læra fyrir helvítis prófið. Að vísu er búið að troða einhverri annareinkunn inn í þetta, sem tekur mið af frammistöðu á hlutaprófunum yfir önnina, og kemur það 50% á móts við lokaprófseinnkunina, sem er einnig 50%.


Segjum að maður standi sig rosalega vel yfir önnina og fái mjög hátt á öllum hlutaprófunum og endi með að fá 9 í annareinkunn, en nái svo ekki nógu góðri einbeitingu til að læra fyrir lokaprófið vegna prófkvíða og stress, og fái 4 á lokaprófinu. Þá ertu bara fallinn út af því að lokaprófseinkunnin náði undir 4,5 - þó meðaltal af annareinkunn og lokaprófseinkunn hafi verið 6,5. Þetta er svo glatað að ég á bara ekki til orðs!

Einnig það að þegar það er ekki símat og maður veit að það er ekki verið að mæla frammistöðu manns yfir önnina, gerir maður ekki neitt yfir alla önnina. Svo í lokaprófinu springur maður út af því að maður þurfti að læra allt efni annarinnar á einum degi! Það eru til mörg dæmi um það!

Aron kennari í Borgó kom samt með alveg brilliant hugmynd einhverntíman, og það var að sleppa öllum lokaprófum og hafa bara hálfgerð „kaflalokapróf“ yfir önnina. Sem sagt maður lærði einn kafla á einhverju X tímabili og tæki svo próf úr honum - og eftir það þyrfti maður ekkert að spá meira í þeim kafla! Svo næsta kafla, svo næsta, o.s.frv. Svo væri bara meðaleinkunnin tekin úr öllum „kaflalokaprófunum“ og það væri lokaeinkunnin manns. Þetta er mjög sniðugt og leggur áherslu á að maður leggi hart að sér og læri jafnt og þétt yfir önnina!

Hvað finnst ykkur annars um þetta?




Athugasemdir ():