Deila á Facebook
« Próf - Einbeitingin fjarar út! | Aðalsíða | Bíó & stúdíótími »

Hvað skal kjósa?
Skrifað fimmtud. 10. maí 2007 - 13:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er nú komin upp síða sem segir þér hvað þú átt að kjósa, þannig maður þarf varla að hugsa lengur. Það voru nemendur af félagsvísinda- og hagfræðideild Háskólans á Bifröst, sem settu þessa síðu upp. Mér finnst þetta til að byrja með allt of fáar spurningar til þess að þetta sé marktækt, og ekki er nema von að ef maður er mjög ósammála öllu þarna, þá verður niðurstaðan VG, og ef maður er ekki með neina skoðun á neinu þarna, þá verður niðurstaðan Samfylkingin. Það ætti ekki að koma neinum á óvart. En niðurstöðurnar hjá mér voru ekki flokkurinn sem ég styð. Skrítið?




Athugasemdir ():