Bíó & stúdíótími
Skrifað fimmtud. 10. maí 2007 - 14:19Ég er búinn að vera að reyna að læra á fullu, en þar sem ég datt niður í bloggpyttinn, verð ég að segja ykkur aðeins frá myndinni sem ég sá um daginn og stúdíótímanum sem ég fór í nú í gær.
Nú um daginn fór ég með foreldrunum mínum á myndina Next, með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Hún fjallar um Las Vegas töframann, sem getur séð allt að 2 mínútur fram í tímann, sem eltur er af FBI sem vilja nota náðargáfur hans til þess að stoppa hryðjuverkamenn frá því að sprengja kjarnorkusprengju sem smyglað var inn í landið.
Þetta er ágætis mynd. Nicolas Cage klikkar sjaldan sem leikari og svo er Jessica Biel líka fáránlega heit í þessari mynd!
3/5
En nú í gær fór ég í stúdíó og tók upp Eurovision lagið hans Eika Hauks með breyttum texta. Jóna, systir Grétars, fékk mig til að syngja lagið sem afmælisgjöf til bróður eiginmanns hennar, sem verður fimmtugur núna á laugardaginn. Sniðugt að gera þetta, þar sem Eurovision keppnin er einmitt á laugardaginn þegar hann á fimmtugsafmæli.
En af hættu við að hann fái að heyra lagið áður en hann á afmæli, verð ég að bíða með að setja það á netið þangað til eftir afmælið. En ég hef ekkert heyrt annað hjá fólki en að þetta sé mjög flott og vel gert. En þið bíðið bara með eftirvæntingu þangað til um helgina.
En núna ætla ég að skella mér upp á Þjóðarbókhlöðuna að læra, þar sem ég get ekki lesið staf hérna heima. Allt of mikið af freistingum, þar helst tölvan!
Nú um daginn fór ég með foreldrunum mínum á myndina Next, með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Hún fjallar um Las Vegas töframann, sem getur séð allt að 2 mínútur fram í tímann, sem eltur er af FBI sem vilja nota náðargáfur hans til þess að stoppa hryðjuverkamenn frá því að sprengja kjarnorkusprengju sem smyglað var inn í landið.
Þetta er ágætis mynd. Nicolas Cage klikkar sjaldan sem leikari og svo er Jessica Biel líka fáránlega heit í þessari mynd!
3/5En nú í gær fór ég í stúdíó og tók upp Eurovision lagið hans Eika Hauks með breyttum texta. Jóna, systir Grétars, fékk mig til að syngja lagið sem afmælisgjöf til bróður eiginmanns hennar, sem verður fimmtugur núna á laugardaginn. Sniðugt að gera þetta, þar sem Eurovision keppnin er einmitt á laugardaginn þegar hann á fimmtugsafmæli.

Athugasemdir (