Deila á Facebook
« Bíó & stúdíótími | Aðalsíða | Bara fyrir Katrínu! »

Helgin & lagið
Skrifað sunnud. 13. maí 2007 - 10:42
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja löng helgi að baki. Ég djammaði á föstudeginum en var svo bara að vinna á laugardaginn. Ég var að koma heim úr vinnunni núna áðan og ákvað því að skella mér bara í að blogga.

Á föstudaginn byrjuðum við strákarnir á því að fara í afmæli til Steina. Við vorum í svolitla stund þar og skemmtum okkur mjög vel. Íbúðin hans Steina er samt svo fáránlega lítil að það er ekki fyndið. Við vorum svona 20 manns þarna, frekar þröngt!

En svo seinna þegar við vorum orðnir ágætlega vel í því af öllum fría bjórnum hjá Steina, ákváðum við að kíkja í afmælið til Hjalta, sem haldið var á REX. Þegar við komum þangað var allt fólkið sem við þekkjum þar. Alveg frábærar veislur, Steini og Hjalti, og innilega til hamingju með afmælið.

Eftir veisluna hjá Hjalta á REX skelltum við okkur bara á Sólon. Seinna um kvöldið fórum við Helgi á Hlöllavagninn og lentum sko í ýmsu. Til að byrja með var einhver gaur sem átti ekki heimild fyrir bát þannig hann var geðveikt pirraður út í allt og alla og hótaði að lemja okkur Helga bara fyrir að vera þarna. Svo fór hann en labbaði svo stuttu seinna fram hjá okkur og þá kallaði Helgi: „Blessaður!“ og kom hann þá að okkur og byrjaði að ýta aðeins í Helga. Þá stóðum við báðir upp og byrjuðum að öskra á hann (svona eins og við værum líklegir til að ráðast á hann) og þá lét hann sig fljótt hverfa.

Svo löbbuðum við niður Laugarveginn og sáum þá bílinn hans Ómars Ragnars. Svo þegar við vorum að labba fram hjá honum kom einhver gaur og LYFTI bílnum hans! Þessi gaur leit ekkert út fyrir að vera sterkur þannig við Helgi ákváðum að prófa að lyfta bílnum. Helgi byrjaði og gat það ekki. Svo ég og gat ég það ekki heldur. Gaurinn var greinilega svolítið sterkari en hann leit út fyrir að vera. Svo prófaði Helgi aftur og gat loks lyft honum og ég prófaði auðvitað aftur og þá gat ég líka lyft honum. En svo var gamanið búið þar sem löggan kom og bað okkur um skilríki. Við Helgi vorum svolítið á móti því fyrst að gefa þeim upplýsingar um okkur og sögðumst ekki hafa gert neitt af okkur, en þeir þurftu upplýsingarnar um okkur upp á skaðabætur ef bíllinn væri eitthvað skemmdur. Það endaði með því að við réttum þeim skilríkin okkar, þar sem þeir voru byrjaðir að hóta að handtaka okkur og taka okkur upp á stöð. Ég nennti ekki svoleiðis veseni!

En kvöldið var bara helvíti fínt. Ég vil þakka strákunum kærlega fyrir frábært kvöld og vil ég þakka sérstaklega einum manni sem hélt mér, fátæklingnum, á floti þarna um kvöldið. Þú veist hver þú ert!

Í lok kvöldsins skutluðu Sveinbi Superman og Magga mér bara heim, þar sem Grétar var farinn og ég var búinn að týna öllum strákunum. Ég fór bara beinustu leið í rúmið. Ég drakk samt nokkur vatnsglös áður en ég fór að sofa, svo ég yrði ekki þunnur daginn eftir. Ég tók myndavélina með þarna um kvöldið og tók nokkrar myndir þannig ég þarf að skella myndunum inn. Svolítið vesen þar sem Photoshop er ónýtt hjá mér þannig ég þarf að setja það upp aftur og ég hef engan tíma til þess fyrr en eftir prófin (þriðjudag).

En núna á laugardaginn fór ég bara að vinna. Þrátt fyrir að hafa þambað nokkur vatnsglös kvöldið áður þá vaknaði ég samt ógeðslega þunnur. Kvöldið var ágætt en það var gjörsamlega dautt frá 5-10. Það voru svona sirka 5 manneskjur í salnum. Við vorum nánast að rífast um hver fengi næsta kúnna svo við hefðum eitthvað að gera. En nóttin var ágæt þar sem ég var bara á barnum. Grétar, Jónas, Helgi og Elín komu og kíktu á mig en fóru svo fljótt aftur.

Ég lenti á rosalega leiðinlegum kúnnum þarna um kvöldið! Það var eitt par, karl og kona, sem komu til mín á barinn og pöntuðu hjá mér bara vodka í vatni. Ég gerði það, lét þau fá það og rukkaði þau svo fyrir. Seinna fara þau til Evu, sem var með mér og Davíði á barnum, og segja að þetta sé bara vatn sem ég hafði látið þau fá, en Eva misskilur þau og heldur að þau séu að biðja hana um vatn. Þannig hún lætur þau fá vatnsglas og fer svo aftur að afgreiða aðra. Þá kemur parið alveg snarvitlaust til mín og bölvar mér í sand og ösku fyrir að hafa svindlað tvisvar sinnum á þeim. Ég segi þeim að fyrsta glasið (vodki + vatn) hafi í raun og veru verið vodki og vatn og að ég hafi ekki gert annað glasið sem Eva gerði (bara vatn). Mig var á þessum tímapunkti farið að langa verulega að öskra á þau og spyrja þau hvort þau væru heimsk, en ég sleppti því sem betur fer. Ég hellti þá TVÖFÖLDUM vodka í vatni fyrir framan þau og lét þau fá. Eftir það var konan sátt en karlinn ekki, þar sem hann hélt því ennþá fram að þetta væri bara vatn! Þarna var ég hættur að hlusta á þessa vitleysu í honum, en það mest fyndna var það að hann hótaði að láta reka mig, þar sem ég átti að hafa svindlað þrisvar sinnum á þeim. Hahaha, farðu fyrst og láttu athuga í þér bragðlaukana!

Svo var önnur kona sem bað mig um aðstoð og ég var að sinna öðrum kúnna, þannig ég sagði: „Augnablik“ og hélt áfram að klára að afgreiða hinn kúnnann. Svo þegar ég sný mér að konunni er hún alveg brjáluð og segir eitthvað: „Ég bað um aðstoð, þú sagðir bara augnablik og snérir þér svo eitthvað annað!“ og þá ég sagði henni bara að ég hefði verið að sinna öðrum kúnna. Hún var ekki beint sátt og var með helvítis stæla og leiðindi. Svo bað hún um tusku og hrifsaði hana af mér. Ég þoli ekki svona fólk!

En það eftirminnilegasta þarna um kvöldið var þegar það var einhver miðaldra maður sem bað mig um að gera besta kokteilinn sem ég kunni. Honum líkaði hann m.a.s. það vel að hann gaf mér 750 kr. tips! Þetta var frægi drykkurinn þeirra Gumma og Skúla á Sólon, og heitir hann Aygo, fyrir utan það að ég notaði ekki Baccardi Limon né Peach Tree, en hann smakkaðist samt mjög vel.

En svo lokuðum við bara, borðuðum pizzur og ég kíkti aðeins á Sólon eftir vinnu. Ég fer ekki sko ekki aftur niður í bæ eftir vinnu, þar sem ég endaði með að skutla Elvari og Júlla heim. Elvar þurfti m.a.s. að sulla Subway í bílinn minn. Djöfulsins subba! En takk fyrir kókið, Gummi minn. Og djöfull var leiðinlegt þarna!

En svona að lokum vil ég bara segja að ég var búinn að lofa ykkur laginu sem ég tók upp í stúdíó um daginn, en þetta er Eurovision lagið með breyttum texta. Þetta lag var afmælisgjöf til bróður eiginmanns Jónu, systir Grétars, en hann var fimmtugur einmitt núna á laugardaginn, og vil ég bara óska honum innilega til hamingju og vona að lagið hafi vakið einhverja lukku.


Segjum þetta ágætt í bili. Ég kem svo með myndirnar frá föstudeginum um leið og ég hef tækifæri til, ásamt því að laga myndaalbúmin sem eru biluð.

Uppfært 14/05/07:

Myndirnar eru komnar inn!




Athugasemdir ():