Bara fyrir Katrínu!
Skrifað miðvikud. 16. maí 2007 - 20:24Jæja, Katrín vinkona mín er orðin hundleið á því að ég skrifi bara blogg um helgardjömmin mín, sem er ekki alveg rétt. En frábrugðið frá henni Katrínu, vinn ég ekki við tölvur og er þess vegna ekki alltaf fyrir framan þær. 
En það er nú ekki margt búið að vera um að vera hjá mér. Ég fór í síðasta prófið mitt í gær þannig ég er búinn í prófunum. Mér gekk bara ágætlega í öllum prófunum og veit skv. kennurunum að ég er búinn að ná flestum.
Ég er búinn að vera mjög duglegur í ræktinni, þó ég sé ekki nógu duglegur að éta prótein. Það er svo skrítið að ég get drukkið sjeikana uppi í Veggsport með bestu lyst, en sjeikarnir sem ég fæ hér heima... ég kúgast bara af þeim! Annað hvort er ég að blanda þetta eitthvað vitlaust eða þá að það er bara svona gott bragð af próteininu uppi í Veggsport. Ég er með NOW prótein hérna heima en þau eru með ShapeWorks uppi í Veggsport.
Svo er sumarbrjálæðið að renna í garð, þar sem ég byrja í Húsasmiðjunni á mánudaginn. Einnig byrja ég á fullu að vinna í húsinu mínu, þannig það verður voða lítill tími aflögu. Ásamt Húsasmiðjunni og húsinu mínu verð ég að vinna á Kringlukránni um aðra hverja helgi og svo restin af tíma mínum fer líklegast í að vinna í Topp5.is og sofa. Þetta verður algjört brjálæði!
Það var annars voða rólegt hjá mér í gær eftir síðasta prófið að ég settist fram og horfði á When A Stranger Calls. Sú mynd fjallar um einhverja barnfóstru, sem er að passa hjá einhverjum ríkum lækni, og lendir svo í því að einhver dularfullur ógnvekjandi maður byrjar að hringja í hana á fullu.

Mér fannst þessi mynd arfaslöpp, þar sem hún minnti mig mjög mikið á Scream myndirnar. Þetta var líka bara svona týpísk wannabe hrollvekja, þar sem maður gat spáð fyrir fram um hvað myndi gerast næst. Mér fannst hún allavega mjög léleg!
1/5
En núna í kvöld ætla strákarnir að kíkja til mín og ætlum við að horfa á Beerfest og drekka bjór á meðan. Svo er spurning hvort maður fari í póker eftir það og kíki jafnvel aðeins niður í bæ. Ég er samt að fara upp í hús snemma á morgun, þannig ég get ekki verið lengi.
En já, segjum þetta bara ágætt í bili. Var þetta nógu gott, Katrín?
En það er nú ekki margt búið að vera um að vera hjá mér. Ég fór í síðasta prófið mitt í gær þannig ég er búinn í prófunum. Mér gekk bara ágætlega í öllum prófunum og veit skv. kennurunum að ég er búinn að ná flestum.
Ég er búinn að vera mjög duglegur í ræktinni, þó ég sé ekki nógu duglegur að éta prótein. Það er svo skrítið að ég get drukkið sjeikana uppi í Veggsport með bestu lyst, en sjeikarnir sem ég fæ hér heima... ég kúgast bara af þeim! Annað hvort er ég að blanda þetta eitthvað vitlaust eða þá að það er bara svona gott bragð af próteininu uppi í Veggsport. Ég er með NOW prótein hérna heima en þau eru með ShapeWorks uppi í Veggsport.
Svo er sumarbrjálæðið að renna í garð, þar sem ég byrja í Húsasmiðjunni á mánudaginn. Einnig byrja ég á fullu að vinna í húsinu mínu, þannig það verður voða lítill tími aflögu. Ásamt Húsasmiðjunni og húsinu mínu verð ég að vinna á Kringlukránni um aðra hverja helgi og svo restin af tíma mínum fer líklegast í að vinna í Topp5.is og sofa. Þetta verður algjört brjálæði!
Það var annars voða rólegt hjá mér í gær eftir síðasta prófið að ég settist fram og horfði á When A Stranger Calls. Sú mynd fjallar um einhverja barnfóstru, sem er að passa hjá einhverjum ríkum lækni, og lendir svo í því að einhver dularfullur ógnvekjandi maður byrjar að hringja í hana á fullu.

Mér fannst þessi mynd arfaslöpp, þar sem hún minnti mig mjög mikið á Scream myndirnar. Þetta var líka bara svona týpísk wannabe hrollvekja, þar sem maður gat spáð fyrir fram um hvað myndi gerast næst. Mér fannst hún allavega mjög léleg!
1/5En núna í kvöld ætla strákarnir að kíkja til mín og ætlum við að horfa á Beerfest og drekka bjór á meðan. Svo er spurning hvort maður fari í póker eftir það og kíki jafnvel aðeins niður í bæ. Ég er samt að fara upp í hús snemma á morgun, þannig ég get ekki verið lengi.

Athugasemdir (