Uppstigningarfyllerí
Skrifað fimmtud. 17. maí 2007 - 23:59Ég bauð strákunum heim í gær, þar sem við ákváðum að drekka bjór og horfa á Beerfest. Þeir sem komu voru: Gummi, Grétar, Jökull, Halli, Helgi, Andri, Palli og Ómar. Eins og ég sagði sátum við bara, sötruðum bjór og horfðum á sjónvarpið.
Seinna um kvöldið, þegar myndin var búin, ákváðum við að taka einn Póker leik. Ég, Halli, Jökull, Palli, Gummi og Grétar spiluðum bara og voru hinir strákarnir bara eitthvað að dandalast inni í herberginu mínu. Póker leikurinn var algjör snilld og var þetta í fyrsta skipti sem ég fór í reallife Póker eftir að ég varð húkkt á Póker í tölvunni. Við tókum nokkra leiki, en enduðum svo bara á All-In, þar sem allir lögðu allt sitt undir, og endaði Gummi á því að vinna allt saman.
Um leið og við vorum búnir að spila byrjuðum við bara að taka spilapeningana saman. Ég labbaði eitthvað fram í eldhús með tóma bjóra og kem svo aftur inn í stofu, og heyri ég þá ekki Grétar vera að segja Gumma svolítið sem Helgi gerði og bað okkur um að sleppa því að segja Gumma það. Ég veit ekki alveg hvað fékk Grétar til að segja þetta allt í einu, þar sem hann hafði þagað um þetta í langan tíma, en mér finnst núna bara ágætt að hann hafi gert það, þar sem Helgi sagði okkur þetta og bað okkur alls ekki um að segja Gumma þetta, og kom mér, Grétari og Jökli þannig í slæma stöðu sem leiddi til þess að vera vorum ömurlegir að fela þetta fyrir Gumma. Það slæma við þessa stöðu sem Helgi kom okkur í, er það að við hefðum líka verið ömurlegir ef við hefðum sagt Gumma þetta strax, þar sem við hefðum í raun verið að svíkja hann, en farið á bak við Gumma - sem er ekki gott! Þetta er erfið staða og ráðlegg ég engum að koma sér í þessa stöðu! Við hefðum auðvitað bara átt að segja við Helga að annað hvort myndi hann segja Gumma þetta strax eða þá að við myndum segja honum þetta, þar sem við áttum til að byrja með aldrei að sitja á þessu leyndarmáli og þ.a.l. að fara á bak við VIN OKKAR!
Strax eftir þetta var mikill hiti í leiknum, þar sem Gummi var mjög sár og pirraður, sem er alveg skiljanlegt. Hann fór með Palla niður í bæ en við hinir fórum með Halla. Helgi hafði farið á undan okkur með Andra niður í bæ, þar sem hann vildi ekki spila Póker með okkur.
Á leiðinni niður í bæ byrjaði Grétar með eitthvað helvítis kjaftæði, þar sem hann fór að draga það í efa að ég væri besti vinur hans. Grétar sagði eitthvað að Helgi hefði komið honum frá því að hengja sig og væri því besti vinur sinn, en Jökull kom þá með helvíti gott innslag í umræðuna: „Gaui er klárlega besti vinur þinn, þar sem þú varst oft að lemja og stríða honum á yngri árum en samt er hann ennþá vinur þinn!“. Hehehe, ég skipti mér lítið að þessari umræðu og skil eiginlega ekki hvernig þessi umræða hófst, en það er alveg satt að Grétar var hundleiðinlegur við mig á árum áður, og einn af þeim sem lamdi og stríddi mér mest, og kemur mér mjög á óvart að ég skyldi vera vinur hans ennþá!
En um leið og við komum niður í bæ skelltum við okkur beint á Sólon. Um leið og ég kom þangað inn, hitti ég Lindu, fyrrverandi hans Gumma, sem drama'ið heima hjá mér snérist út á. Þetta stefndi sko ekki í logn. Hún kom til mín, knúsaði mig og dró mig upp með sér, þar sem hún splæsti á mig skoti og bjór. Mér leið mjög illa út af þessu þarna með Gumma og var á þeirri hugsun að stinga bara af, en ákvað vegna gífurlegs edrúisma bara að bíða, taka skotið, drekka bjórinn og finna svo strákana - sem ég líka gerði.
Ég fór niður og sá þá Gumma og Helga vera að spjalla saman í rólegheitunum. Mér sýndist svona á þeim að þeir væru að sættast, þar sem þeir eru svo rosalega góðir vinir að það væri synd að eyðileggja vináttuna með einhverju svona bulli. Það hefur einu sinni gerst hjá mér, þar sem það átti engan rétt á sér, og það bara mátti ekki gerast aftur. Grétar vildi ólmur skipta sér af en ég og Jökull héldum honum frá því.
Eftir að Gummi og Helgi höfðu sæst ákváðu Helgi, Jói, ég og Grétar að fara að fá okkur að borða. Við enduðum á Hlöllabátum Ingólfstorgi, þar sem Hlöllavagninn var ekki á staðnum. Á leiðinni byrjaði einhver helvítis rígur á milli Grétars og Helga, þar sem þeir voru að metast um hver gæti lamið hvern (eins og alltaf) og endaði það með því að þeir skildu við hvorn annan, ósáttir.
Eftir þetta allt saman röltum við Grétar bara aðeins á Sólon, þar sem við hittum Gumma og Lindu, þar sem Gummi splæsti á okkur alla skoti, bjór og Aygo. Úff, Gummi, þú ert æði! En svo stuttu seinna fór hann bara með Lindu heim, þar sem hún var orðin frekar full, greyið.
Á þessum tímapunkti vorum við Grétar bara einir (eða Einar eins og Gummi segir alltaf). Á þessum tímapunkti var Grétar farinn að haga sér mjög undarlega, en það var eins og hann væri búinn að taka línu af kókaíni beint í nösina. Hann var orðinn ofvirkur, með stæla við allt og alla í kringum sig og þóttist vera kóngurinn í bænum. Hann byrjaði m.a.s. að atast í einhverjum saklausum strák þarna á dansgólfinu, fór upp að honum og byrjaði að dansa utan í honum ÚT AF ENGU. Gaurinn var ekki beint að fíla þetta og ýtti honum aðeins frá sér og þá kom Grétar og þrusaði honum (ýtti honum harkalega) í burtu.
Stuttu seinna ákváðum við bara að fara heim en ég vildi eiginlega vera lengur, þar sem það er svo ógeðslega gaman að djamma! En við ákváðum samt að fara og röltum niður Laugarveginn. Við röltum að Glitnisbanka, þar sem ég notaði debetkortið mitt og kom okkur inn í hlýjuna. Eftir að ég var búinn að koma mér ágætlega fyrir þarna inni fer Grétar út og fer að rífa kjaft við eitthvað fólk þarna fyrir utan. Eftir að ég kem út spyr gaurinn mig hvort ég sé vinur hans. Eftir að ég jánka við því segir hann mér að koma mér í burtu með hann. Ég labba þá á eftir Grétari og byrja að tala við hann. Þetta var þá eitthvað bláókunnugt fólk sem honum fannst bara mjög sniðugt að vera með stæla við. Guð minn almáttugur!
En stuttu seinna kom mamma hans Grétars og sótti okkur. Við erum náttúrulega báðir skítblankir og eigum varla fyrir bótum í buxurnar og urðum því að fá mömmu Grétars til þess að ná í okkur. Skelfilegt alveg!
En ég held þetta sé að verða komið gott. Ég gerði svo ekkert merkilegt í dag, fór bara upp í húsið mitt að vinna og fór svo heim. Svo núna á morgun ætla ég að skella mér á LAN'ið hjá Oddi og vera þar yfir helgina. Ví ví ví, svo langt síðan ég hef farið á LAN!

Athugasemdir (