Deila á Facebook
« Náði öllu! | Aðalsíða | Fyrsti vinnudagurinn »

Tölvuhelgi hjá Oddi
Skrifað mánud. 21. maí 2007 - 02:59
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég kíkti á tölvuLAN hjá Oddi bróðir Grétars þessa helgi. Það voru einhverjir 20 gaurar þar að LAN'a og vorum við Jökull og Grétar einir af þeim.

Það var mjög rólegt á föstudaginn. Ég vaknaði örlítið seint og skellti mér svo bara í ræktina. Það var tekið vel á því enda alveg búinn eftir æfinguna. Svo lá leið mín bara til Odds.

Þetta var ágætt LAN en ég verð nú bara að segja að mér finnst aðrir tölvuleikir ekkert það spes. Ég prófaði jú Call of Duty, Battlefield 1942 og TrackManiaUnited, en ég get bara ekki skemmt mér eins vel í þessum leikjum og ég geri í Counter-Strike. En ég gat nú ekki bara spilað Counter-Strike þannig ég prófaði hina leikina, líka út af því að það er illa séð að vera að taka pláss og rafmagn þarna og vera svo ekkert að taka þátt á LAN'inu.

Ég var annars bara rólegur á föstudeginum, drakk ekki neitt og kíkti heldur ekkert niður í bæ. Strákarnir voru líka bara rólegir. Helgi, Halli og Andri kíktu á LAN'ið en Gummi var bara að vinna á Sólon, þannig það var ekkert gert nema spilað tölvuleiki.

Á laugardaginn vaknaði ég seint, eins og alltaf um helgar. Klæddi mig bara, skellti mér í sturtu, borðaði kvöldmat og skellti mér aftur á LAN'ið.

Seinna um kvöldið ákvað ég að fara heim og taka mig til fyrir djammið. Ég hoppaði í sturtu, lagaði á mér hárið og hlammaði mér í sófann þar sem tók við heljar SMS herferð til að reyna að redda mér til strákanna og/eða niður í bæ. Allt kom fyrir ekki og það var ekki nokkur leið að redda mér til strákanna eða niður í bæ.

Ég varð þá geðveikt bitur og líka hálf pirraður, þar sem þetta var eina kvöldið eftir prófin þar sem ég gat fagnað því að hafa náð öllum áföngunum! Síðan er næsta vika vinna frá 8-6 alla daga, svo vinnuhelgi, svo önnur vinnuvika og svo djamm! En það er eftir 2 vikur - þannig þið hljótið að skilja hvers vegna ég varð svona leiður að komast ekki í bæinn að djamma!

Svo seinna komu Jökull og Grétar til mín, þar sem þeir nenntu ekki í bæinn. Ég lá bara í sófanum á nærbuxunum þegar þeir komu og var sko ekki að nenna að gera neitt, þar sem ég var sokkinn niður í einhverja helvítis sjálfsvorkunn. En strákarnir náðu mér loksins upp úr henni og ég klæddi mig.

Ég kom með þá frábæru hugmynd að rifja upp 9. og 10. bekk og drekka fyrir utan 10-11. Við gerðum það og hittum Ingva, sem var að vinna í 10-11. Hann var mjög hress og leyfði okkur m.a.s. að drekka inni í 10-11, þar sem það var frekar kalt úti. En við hittum líka Egil, sem var með mér og Grétari í grunnskóla, og svo Gísla vin hans.

Svo enduðum við heima hjá Grétari, þar sem við Jökull tókum einn leik í Counter-Strike. Við veðjuðum upp á kippu af bjór hvor myndi vinna hvern, þar sem Jökull er miklu betri þegar hann er fullur og ég er miklu betri þegar ég er edrú. Við vorum þarna báðir blindfullir og endaði það með því að ég vann. Þetta var samt mjög tæpt!

En þetta var frábært kvöld og þakka ég Jökli og Grétari kærlega fyrir að hafa rifið mig upp úr þessum biturleika og dregið mig með sér eitthvert. En ég vildi samt að ég hefði ekkert drukkið þegar ég vaknaði næsta kvöld, þar sem ég var fáránlega þunnur og var engan veginn að meika það að fara frammúr!

En ég er að spá í að drífa mig að fara að sofa, þar sem á morgun tekur við strangur dagur, þar sem það er fyrsti dagurinn í nýju vinnunni minni, Húsasmiðjunni. Svo strax eftir vinnu fer ég í ræktina þannig ég þarf að vera úthvíldur, sem ég verð ekki. Líka það að ég vaknaði kl 10 áðan þannig það er spurning hvort ég nái að sofna eitthvað?

Bætt við 21.05.07 03:13

Ég var að komast að því rétt í þessu að ég er ótrúlega háður MSN. Það crashaði hjá mér áðan og eftir það gat ég ekki opnað það aftur, og ég hugsaði að ég yrði að láta alla vita af því að MSN væri bilað hjá mér, þannig ég hugsaði um að setja bara „MSN bilað! “ í Personal Message í MSN, en það tók mig nokkrar mínútur að fatta að ég gæti það ekki út af því að ég gæti ekki opnað MSN!




Athugasemdir ():