Deila á Facebook
« Fyrsti vinnudagurinn | Aðalsíða | Hvítasunnuhelgin »

Ekki skánar það
Skrifað miðvikud. 23. maí 2007 - 00:36
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Annar dagurinn í nýju vinnunni liðinn og ég get nú ekki sagt að það hafi eitthvað batnað. Það var nú ekkert slæmt fyrsta daginn en það skánaði nú ekkert í dag, þar sem ég gerði nú alveg tvö mistök, en batnandi manni er best að lifa - right?

Til að byrja með skrifaði ég bandvitlaust vörunúmer á afhendingarbeiðnina og svo í seinni mistökunum ætlaði ég að reyna að vera kúl eins og allir strákarnir og sleppti tveim síðustu tölunum í vörunúmerinu og það var þá vitlaust líka. En þetta eru nú ekki það alvarlega mistök. Bíðum bara þangað til ég fæ lyftaraprófið og rústa óvart öllum staðnum. Þá fyrst verða mistök!

En fyrir utan þetta og það að Helgi hafi farið öfugum megin fram úr um morguninn var þetta bara ágætis dagur. Ég náði góðum svefni kvöldið áður og var því vel upplagður.

En í kaffitímanum bjó Helgi til einhvern miða, þar sem nöfn allra starfsmannanna í portinu voru. Svo voru nöfnin röðuð og þeir sem voru neðstir þurftu alltaf að fara út að afgreiða í miðjum kaffitímum þegar það kæmu kúnnar. Það að Helgi setti mig neðst á listann pirraði mig svolítið en svo var mér alveg sama, þar sem ég hef bara gott af því að öðlast alla þá reynslu sem í boði er.

Eftir vinnu fór ég á fund hjá Jökli, þar sem við strákarnir hittumst og ræddum um skipulag vesturferðarinnar, sem verður 8. - 10. júní nk. Ég, Gummi, Palli, Halli, Jökull, Grétar, Gaui bro, Andri og Helgi förum alveg pottþétt en svo er eitthvað lið sem bætist við, eins og t.d. kærustur Helga og Jökuls, einhverjar stelpur, o.s.frv. Maður verður nú að drífa sig að fara að redda sér fríi í vinnunni svo maður komist nú örugglega með.

En núna ætla ég að fara að sofa, þar sem það er vinna eldsnemma í fyrramálið. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():