Hvítasunnuhelgin
Skrifað þriðjud. 29. maí 2007 - 02:24Það eru margir búnir að vera að ýta á mig að fara að blogga, þannig ég ákvað bara að drífa í því að skrifa eitt stykki blogg í einum grænum. Svona núna þegar ég skrifa þetta veit ég ekki alveg hvar ég á að byrja, en þar sem ég er þekktur fyrir að láta allt flakka á þessum blessaða bloggi þá held ég bara því striki.
Áður en helgin rann í garð bauðst mér að vinna með Gumma á barnum á Sólon, þannig ég ákvað að redda mér fríi á Kringlukránni og prófa að taka tvær vaktir á Sólon í staðinn. Aðal ástæðurnar fyrir því var út af því að Gummi var þá að vinna með mér og það að mig langaði að prófa nýtt umhverfi. Ég er samt með bullandi samviskubit yfir því að hafa reddað mér fríi í vinnunni minni til þess að vinna á öðrum stað. Það er eitthvað sem maður leggur ekki í vana sinn, en þetta var nú bara í þetta skipti. Ég vona að þetta sé á einhvern hátt fyrirgefanlegt.
Vaktin á föstudaginn var svolítið frábrugðin laugardagsvaktinni, þar sem á föstudaginn vorum við Gummi á barnum niðri. Hann er svo ógeðslega stór þannig alla nóttina var ég hlaupandi þvers og kruss út um allan bar til að afgreiða þyrsta kúnnana. Barinn uppi er frábrugðinn af því leytinu að hann er mun minni og það er bara hægt að vera á einum stað að afgreiða, þ.e. Gummi tók fólkið nær dansgólfinu og ég tók fólkið sem var nær stiganum. Báðar hliðarnar á barnum voru með sömu drykkjunum þannig maður þurfti ekki alltaf að vera að hlaupa út um allt til að ná í eitthvað.
En mér brá ekkert smá þarna um föstudagskvöldið þegar við vorum á barnum niðri. Áður en klukkan sló tólf, hver haldiði að hafi bara mætt á svæðið?? Enginn annar en yfirmaður minn á Kringlukránni! Ég hef aldrei séð hann þarna áður og fannst mér mjög skrítið að sjá hann þarna, en ég heilsaði honum bara og afgreiddi hann bara eins og alla hina kúnnana.
Á laugardaginn fór ég bara aftur að vinna á barnum með Gumma. Fribbi vaktstjóri á Sólon leyfði mér og Gumma fyrst til að byrja með ekki að vera uppi, þar sem salan þar var svo mikilvæg. Hann sagði mig vera óreyndan barþjón og eitthvað en ég var fljótur að leiðrétta það og lofaði honum góðri sölu ef við fengjum að vera uppi, og endaði það með því að hann leyfði okkur að vera uppi, og var salan bara mjög góð hjá okkur Gumma. Vanir menn hér á ferð!
Eftir vaktina skelltum við okkur til Halla, þar sem Halli, Jökull, Viddi og Palli voru. Þeir voru allir blindfullir að spjalla bara. Við Gummi stoppuðum nú ekki lengi, en það endaði bara með því að Halli fór að kúra með einhverri stelpu og ég skutlaði bara Gumma og Palla heim. Svo fór ég bara heim að sofa. Næsta kvöld var mikilvægt, þar sem það var fríkvöldið okkar Gumma og ætluðum við sko að taka vel á því!
Á sunnudaginn bauð ég strákunum bara heim til mín. Þeir sem mættu voru: Gummi, Jökull, Helgi, Halli, Palli, Jói, Ómar, Elín og einhver vinkona hennar. Ég, Gummi og Jökull byrjuðum bara að drekka fyrst og spiluðum smá póker. Svo kom allt hitt fólkið og við settumst bara frammi í sólstofu, þar sem var drukkið, spjallað og spilað.
Seinna um kvöldið ákváðum við að skella okkur í bæinn, en það beiluðu allir á bænum nema ég, Gummi, Helgi og Palli.
Þegar taxinn kom ætluðum við að hætta við hann út af því að Elín kærasta Helga ætlaði að skutla okkur niður í bæ, þannig ég ákvað að sleppa því að vera fífl og fór út og borgaði leigubílstjóranum start- og biðgjaldið. Svo fór ég bara aftur inn, en þá ætluðu strákarnir allt í einu að taka taxann!
Eftir að við komum niður í bæ var bara farið beint inn á Sólon. Ég man að ég fór beint á barinn og fékk mér að drekka. Ég hitti margt frábært fólk þarna um kvöldið. Ég man líka að ég var niðri hjá klósettunum og það var einhver stelpa sem tók þátt í Ungfrú Ísland, sem kannaðist eitthvað við mig. Helgi sagði mér að drullast til að fara að tala við hana, en ég lagði ekki í það. Svo uppi á dansgólfinu manaði einhver mig til að fara að dansa við Ungfrú Ísland stelpurnar. Það var bara mjög gaman!
Þetta var frábært kvöld, en það vantaði nú Grétar, Jökul og Halla. Líka það að við strákarnir vorum ekki eins mikið saman niðri í bæ og við ætluðum að vera, en það er aðallega hægt að kenna kvenkyninu um það.
En í eitt af þessum skiptum sem ég týndi öllum fór ég bara á barinn með Svenna, þar sem hann splæsti á mig bjór. Takk fyrir það, Svenni minn.
Þar hitti ég stelpu, Lovísa að nafni, sem var að versla sér eitthvað á barnum. Ég veit ekki alveg hvernig samtalið byrjaði en ég held nú að ég hafi átt smá þátt í að hefja það.
Við stóðum bara þarna og spjölluðum saman. Það endaði einhvern veginn með því að við ætluðum að skála í botn, en hún var með fullan bjór og ég hálf tóman, þannig hún vildi að við skiptum um glös. Ég gerði það að sjálfsögðu, svo byrjuðum við að þamba og kláruðum á nákvæmlega sama tíma. Þrátt fyrir svolítið sull á sjálfan mig tókst mér samt að klára bjórinn... og þetta voru sirka 4 sekúndur.
Eftir á fórum við bara að dansa. Ég kenndi henni að tvista og hún kenndi mér að dansa sveitadansinn, þar sem hún er frá Egilsstöðum. Ég skemmti mér frábærlega með henni, frábær stelpa!
Eftir að það lokaði á Sólon tókum við Gummi bara leigubíl, ásamt Lovísu.
Svo nú í morgun fórum við Lovísa og sóttum Helga, og fórum og fengum okkur þynnkumat dauðans, KFC! Eftir það skutlaði ég bara Lovísu heim og við Helgi fórum niður Laugarveginn með Jogvan, „Hvern einasta dag“ á fóninum, og sungum hástöfum með. Það var ýkt gaman.
En ég ætla að drífa mig að fara að sofa, þar sem það er vinna eldsnemma í fyrramálið. Hvort ég vakni er góð spurning, þar sem það er enginn heima til að vekja mig ef ég sef yfir mig. Hjúkket!
En svona í lokin langaði mig bara að benda ykkur, ef þið tókuð ekki eftir því, að síðan er orðin blá, og langaði bara að vita hvernig ykkur finndist þetta. Hvort á ég að halda þessu eða breyta aftur í rautt? Það tekur allavega smá tíma að venjast þessu.

Athugasemdir (