Deila á Facebook
« Hvítasunnuhelgin | Aðalsíða | Rokrassgat »

Reykingarbannið að skella á
Skrifað fimmtud. 31. maí 2007 - 00:31
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Dagurinn hjá mér var bara ágætur. Vinnan var reyndar ógeðslega lengi að líða, þar sem ég var allan daginn að sópa allt svæðið með einhverjum hálf-sjálfvirkum sóp. Það var ekki lítið hvað ég var drullugur eftir á, þar sem það var svo mikið ryk sem fór á mig alltaf þegar ég var að tæma draslið.

En fyrir utan það þá fór ég bara í ræktina strax eftir vinnu. Það er fáránlega erfitt að byrja aftur eftir nokkurra daga frí vegna anna. En vonandi verður maður eitthvað hressari með að byrja aftur í ræktinni, þar sem ég er búinn að vera svaðalega down upp á síðkastið.

Á leiðinni heim heyrði ég American Style lagið. Mér persónulega finnst það mjög hressandi og skemmtilegt lag. Maður er líka ógeðslega fljótur að fá það á heilann. En þarna er dæmi um gott auglýsingalag. Virkilega gott.

En núna á föstudaginn er fyrsta djammið, þar sem allir skemmtistaðir á Íslandi verða reyklausir. Ég er nú ekkert allt of hlynntur þessu banni, þar sem mér finnst það eiga að vera val skemmtistaðarins hvort reykingar séu leyfðar eða ekki. Asnalegt að setja þetta í lög. En það verður fyndið að kíkja á djammið þá og sjá alla reykja fyrir utan... eða ekki?

En núna ætla ég bara að fara að sofa.




Athugasemdir ():