Deila á Facebook
« Reykingarbannið að skella á | Aðalsíða | Stefnan tekin á bæinn »

Rokrassgat
Skrifað föstud. 1. júní 2007 - 00:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hvað var málið með rokið í dag? Það er ekki gott að vinna í timbursölu, þar sem sag er út um allt, þannig maður er allan daginn með augun full af sagi!

Mikið rok eins og þið sjáið...


En það var mjög lítið að gera í dag, þannig við Pétur, vinnufélagi minn, fórum í mjög skemmtilegan leik. Hann virkar þannig að maður byrjar á því að nefna hljómsveit, svo á hinn að finna aðra hljómsveit sem byrjar á síðasta stafnum. Svo gengur það bara áfram, koll af kolli...

Sem sagt, aðili 1 segir t.d. NIRVANA og þá segir aðili 2 t.d. AEROSMITH. Svo segir aðili 1 t.d. HJÁLMAR og þá segir aðili 2 t.d. RAMMSTEIN. Þannig gengur þetta koll af kolli.

Þið búið bara til reglur, t.d. hvort það megi líka koma með söngvara, hvort það megi bara koma með íslenskar hljómsveitir, bara útlenskar hljómsveitir, o.s.frv.

Við byrjuðum grínlaust í þessum leik kl sirka 2 og vorum í honum alveg þangað til klukkan var orðin 6. Við vorum sem sagt í þessum leik í sirka 4 klukkutíma - með nokkrum bilum inn á milli. Enda vorum við komnir með langt yfir 100 hljómsveitir.

Svo í seinni part dagsins ákváðu Helgi, Andri og Smári að prófa leikinn, en þar sem þeir eru allir að vinna á lyfturum, notuðu þeir talstöð til að spila leikinn. Haha, algjör snilld!

En svona úr einu yfir í annað, Varðandi Vesturferðina 8. - 10. júní, þá eru því miður einhverjar líkur á því að Helgi, Gummi og Andri komi ekki með, þar sem þeir eru kannski að keppa með VL þá helgi. Ég sé ekki af hverju það er ekki hægt að sleppa einum helvítis leik!

Svo núna um helgina er ég að vinna í Húsasmiðjunni. Reyndar bara á laugardeginum frá 9-4, og svo eftir vinnu er grillpartý í Húsasmiðjunni. Það verður víst boðið upp á frían mat og bjór, þannig maður verður að sjálfsögðu að kíkja. Þetta er út af því að Skútuvogurinn var í 3. sæti í „verslun mánaðarins“, sem er keppni innbyrðis Húsasmiðjuverslana hvað varðar sölu, þjónustu, ofl.

En núna þegar ég skrifa þetta, er reykingarbannið komið í gildi. Þetta er m.a.s. strax farið að stefna í óeirðir, þar sem sumir skemmtistaðir eru að íhuga að breyta sér í einkaklúbba, þar sem bannið á ekki við um einkaklúbba. Og þegar reykingarlyktin verður farin, kemur bara önnur lykt í staðin - sem er svona hundrað sinnum verri.

En núna er kominn tími á mig í rúmið. Rokið virðist samt ekkert vera að minnka, þannig það eru svolitlar líkur á því að við verðum í rokrassgati aftur á morgun.




Athugasemdir ():