Deila á Facebook
« Rólegur dagur | Aðalsíða | Skemmtilegt kvöld »

Voða lítið að gerast
Skrifað föstud. 25. nóvember 2005 - 22:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég var að vinna í gær og eftir vinnu fór ég á bjórkvöld hjá Borgó. Það var haldið bjórkvöld út af því að Borgó vann EM í Morfís ræðukeppninni. Deiluefnið var "bjartsýni" og voru EM með henni en Borgó á móti.

Ég drakk einum of mikið í gær og endaði með því að vera haugadrukkinn. Það brutust út einhver slagsmál þarna og blönduðu ég og Grétar okkur ekki í þau. Seinna komu 4 lögreglubílar og víkingasveitin! Bara til að stoppa einhverja ofbeldisfulla pjakka.

Eftir það fórum við bara heim og þá var klukkan að ganga 3. Ég vaknaði svo kl 8 að deyja úr þynnku. Ég elska þynnku! Elsk'ana elsk'ana elsk'ana!!! Þetta er rugl hvernig þessu námsfyrirkomulagi er háttað. Endalaust af prófum í lok annarinnar! Og þá er ég ekki að tala um lokaprófin, heldur bara einhver svona skyndipróf fyrir lokaprófin! Ég var í prófi í þýsku og landafræði í dag. Pffff...

Ég kom heim kl sirka 12 og settist bara strax fyrir framan tölvuna og er búinn að vera fastur þar síðan. Ég er búinn að borða svona 3 Chicago Town pizzur, enda lofaði ég mömmu að vera búinn með 8 pakka (2 í pakka). Ég er með fjórðu svona pizzuna fyrir framan mig núna. Ég verð að harka af mér ef ég ætla að tóra 16 pizzur fyrir sunnudaginn, áður en mamma og pabbi koma heim.

Ég er nú ekki með mikið á prjónunum núna í kvöld. Símon, félagi minn sem er með mér í kór, er að biðja mig og alla í kórnum um að hittast og gera eitthvað saman. Ætli maður láti ekki bara slag standa og skelli sér. Bara spurningin um hvenær ég nenni að gera mig kláran.

Í þetta sinn er ekkert lag dagsins, heldur bara eitthvað gaul í mér. Ég tók þetta upp sitjandi fyrir framan tölvuna og með einhvern hljóðnema sem ég keypti fyrir 200 kall úti í BT. Þannig partarnir sem eru rosalega háværir stafa þá bara útaf því að ég sit hérna með mic'inn ofan í mér. Þannig ég giska á að þetta hefði hljómað betur ef svo hefði ekki verið.

Ég söng þetta bara núna rétt áðan. Ég heyrði það í Idolinu áðan og varð bara að syngja það.

Gaui - When I Think Of Angels

Ég er farinn að gera mig kláran fyrir djammið og að gera einhvern skandal. Heyrumst!




Athugasemdir ():