Deila á Facebook
« Stefnan tekin á bæinn | Aðalsíða | Dram'o'rama »

„Þetta fífl!“
Skrifað laugard. 2. júní 2007 - 18:16
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Við strákarnir ákváðum að kíkja í bæinn í gær, þar sem þetta var fyrsti dagur reykingarbannsins. Ég, Grétar, Gummi og Jökull kíktum aðeins á Sólon, þar sem allir voru að drekka - nema Gummi. Hann var bara rólegur á bíl. Þetta var mjög fínt kvöld, en ég ætla að skrifa aðeins um þetta blessaða reykingarbann.

ÞETTA REYKINGARBANN ER ÖMURLEGT !!!

Ég var þarna inni á Sólon með bjór í hönd og dauðlangaði í sígarettu. Það er óþægilegt að drekka bjór þegar ég get ekki fengið mér sígarettu. Ég ákvað þá að fara út og reykja, en þá sá ég algjöra snilld. Sólon eru búnir að setja upp svona reykingarkeðju, þar sem fólk kemur og reykir - og þá kemst það beint aftur inn!

Það er auðvitað ekki hægt að svindla sér inn, þar sem þegar maður fer út í reykpásu þá fær maður svona kort sem maður þarf að framvísa við inngöngu. Mjög sniðugt! En það sem fáránlegt er, er það að maður má ekki taka drykkinn með sér út! Ég mátti ss. ekki taka bjórinn með mér út og varð því að klára hann áður en ég fór út. Þetta er mjög óhentugt þegar maður er með fullt glas og langar í sígarettu - og vinir manns ekki til staðar til að passa glasið manns á meðan. Glatað!

Það furðulega er það að maður getur fengið plastglas fyrir drykkinn sinn þegar maður er að fara út, en ekki þegar maður er að fara í reykingarkeðjuna að reykja. Mér finnst þetta frekar asnalegt og vanhugsað. Þetta er svo illa úthugsað dæmi þetta reykingarbann að það hálfa væri nóg!

Einnig fannst mér fáránlega heitt þarna inni á Sólon. Það er greinilega málið að nú þegar reykingarlyktin er farin, að loka öllum gluggum svo allir svitni ennþá meira þarna.

En áður en ég fór niður í bæ ætlaði ég rétt að kíkja og fá mér kannski einn til tvo bjóra. Þetta endaði auðvitað með því að Gummi fór með Jökli heim og við Grétar vorum eftir niðri í bæ - þó ég hafi verið að fara að vinna eldsnemma næsta morgun! Ég verð alltaf ruglaður í glasi og vill djamma endalaust og það er ekki hægt að draga mig heim - ekki séns! Þetta endaði ss. með því að við Grétar vorum blindfullir tveir niðri í bæ. Við fórum samt aðeins áður en það lokaði, en það var eiginlega bara út af því að ég var að deyja.

Við röltum eftir Sólon niður á Hlöllavagninn, þar sem við fengum okkur að borða. Þegar við vorum að rölta niður Laugarveginn labbaði stelpa með nokkrum gaurum á móti okkur og benti á mig og sagði: „Þetta fífl! Þetta fífl!“. Ég botnaði hvorki upp né niður. Grétar labbaði að henni og spurði hvað væri málið og þá varð einn gaurinn auðvitað að ýta honum í burtu, og svo hurfu þau. Mér finnst þetta verulega skrítið! Ég kannaðist ekkert við þessa stelpu og hef aldrei séð hana áður. Ég var á feitum bömmer yfir þessu, þar sem ég hef sjaldan eða aldrei verið vondur við stelpur. Þetta var mjög skrítið! Ætli hún hafi ekki bara ruglast á mér og einhverjum öðrum?

En svo eftir Hlöllann og vangavelturnar um hvað þessi stelpa var að meina tókum við bara leigubíl heim. Ágætis kvöld!

Svo núna í morgun ætlaði ég aldrei að vakna. Ég vaknaði ógeðslega þunnur! Ég held ég hafi verið svolítið fullur ennþá, en ég dreif mig samt á fætur. Engan aumingjaskap í Húsasmiðjunni! Ég tók nokkrar ibufen bara til að lina hausverkinn aðeins, en þó hann hafi horfið þá var þynnkan samt enn til staðar.

Þótt ótrúlegt sé þá mætti ég á hárréttum tíma í vinnuna. M.a.s. fyrr en á virkum dögum. Skrítið?

En núna er ég bara að taka mig til fyrir grillveislu hjá Húsasmiðjunni. Frír bjór og frír grillmatur. Ég, Helgi, Andri og Steini erum að fara bráðlega þannig við segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():