Dram'o'rama
Skrifað sunnud. 3. júní 2007 - 23:59Á laugardaginn hélt Húsasmiðjan grillveislu sem ég kíkti að sjálfsögðu í. Ég hélt þetta yrði æðislegt kvöld þegar ég kíkti í grillveisluna en ég vissi því miður ekki að þetta kvöld ætti eftir að stefna í algjört helvíti. Þetta er án efa eitt versta djamm ævi minnar. En í þessu bloggi ætla ég að skrifa um atburði kvöldsins án þess að rakka einn eða neinn niður.
Ég mætti að sjálfsögðu allt of seint í þessa grillveislu hjá Húsasmiðjunni, þannig þegar ég kom var maturinn búinn og bjórinn hálfkláraður. Grétar var svo góður að skutla mér. Takk kærlega fyrir það!
Grillveislan var haldin í plötuhúsinu í Húsasmiðjunni í Skútuvoginum. Það voru nú allir vel í því þegar ég mætti á svæðið, en það var nú ekki mikið eftir af bjórnum þegar ég kom. Ég náði samt nokkrum bjórum þannig ég gat fundið aðeins á mér.
Þegar klukkan var orðin 10 ákváðum við að drífa okkur. Helgi hringdi í Elínu og sótti hún okkur. Það var samt eitthvað vesen út af því að bíllinn hennar er bara fjögurra manna og við strákarnir vorum því miður fjórir. En hún tók yfirfarþega og vil ég þakka henni kærlega fyrir það. Á tímabili var Helgi farinn að biðja mig um að fá far með einhverjum öðrum, en ég bara gat ekki reddað því - því miður!
Leiðin lá heim til Jökuls, en ég var svo ógeðslega svangur að ég varð að fá mér eitthvað að borða. Ég bað Elínu um að stoppa á Skalla en þar sem hann var lokaður, varð ég að láta pylsu á Select duga. Steini var svo góður að koma með mér á meðan þau fóru heim til Andra að sækja bjór.
Þegar þau komu aftur settist Steini alveg lengst inn og Andri sat hinum megin, þannig miðjusætið var bara laust. Ég tróð mér inn, en þar sem bíllinn var einungis þriggja dyra komst ég ekki almennilega inn og var vinstri fóturinn staðsettur hálfpartinn undir sætinu og hinn yfir Andra. Ég kalla smá svona „AAA“ út af því að ég var fastur þarna með fótinn en þá þrykkir Helgi sætinu aftur og drepur fótinn á mér. Ég veit ekki hvort þetta hafi verið ásetningur hjá honum til að kremja mig, þar sem hann vissi vel að ég væri í kremju eða þá hvort hann geri þetta bara alltaf þegar hann situr fram í, í þriggja dyra bílum. Maður spyr sig.
Eftir þetta stórskemmtilega atvik kýldi ég hann í öxlina. Eftir það lítur hann aftur í og spyr hver hafi kýlt sig. Ég segi bara að enginn hafi gert það, en þá segir hann: „Ég lem þig á eftir, Gaui“ - og skv. augnaráðinu var hann ekkert að grínast!
Þegar við komum heim til Jökuls fer ég út úr bílnum með Steina og Andra, en Helgi verður eftir inni í bíl með Elínu. Þau tala eitthvað saman en strákarnir tala eitthvað við mig. Svo endar það með því að við föttum að allir eru heima hjá Grétari og það að Helgi og Andri byrja að rífast, þar sem Andri hélt því fram eins og allir að þetta hefði verið viljandi gert með sætið í bílnum. Þeir byrja að hnakkrífast og var Helgi næstum því búinn að ráðast á Andra.
Eftir þetta talaði ég ekki við Helga fyrr en seinna um kvöldið. Ég datt úr öllu stuði eftir þetta og langaði bara mest að fara heim þegar Grétar sagði mér að fara heim, út af því að hann sagðist ekki vilja hafa fýlupúka þarna. En á þessu tímabili hefði ég náttúrulega bara átt að fara heim, þar sem þetta stefndi í vitleysu - og enn meira vesen og drama kjaftæði!
Eftir langa dvöl heima hjá Grétari komu foreldrar hans að lokum heim. Þá ákváðum við að panta leigubíl og fara niður í bæ. Ég var ákveðinn í að láta bara rætast úr þessu kvöldi en það var vitleysa að halda það.
Áður en leigubíllinn kom lentum við Helgi í smá viðræðum við mömmu Grétars um drykkjuna hans, Halli og Helgi spörkuðu í punginn á hvor öðrum og Grétar var fáránlega rauður í framan. Svo kom leigubíllinn loksins.
Þegar við komum niður í bæ ákvað ég að fá mér Hlölla. Ég rölti á Hlöllavagninn og Grétar, Halli og Helgi með. Eftir að ég er búinn að fá bátinn minn byrjar Grétar að pissa í ruslið, sem tilheyrir Hlöllavagninum, og Helgi byrjar að kalla afgreiðslustúlkuna illum nöfnum og hlær að klippingunni hennar. Sem sagt þeir voru með stæla og vanvirðingu við fyrirtæki frændu og frænku minnar, þannig ég gat ekki verið þarna vegna þess hversu mikið ég skammaðist mín!
Ég rölti þá niður á Lækjartorg og elti Grétar mig. Halli og Helgi fóru bara á Sólon eða eitthvað. Ég segist ekki vilja tala við hann en þá tekur hann utan um mig aftan frá og heldur mér þéttingsfast þannig ég get ekkert gert. Ég var svo vonsvikinn út í hann og Helga þannig ég segi honum bara að láta mig vera, en hann sleppti mér ekki. Það var ekki fyrr en ég sagði að þetta hefði áhrif á vinasamband okkar að hann sleppti mér og fór.
Ég kíkti aðeins á B5 fyrir neðan Sólon. Það er mjög fínn chill staður. Ég fór bara á barinn þar og var endalaust lengi að fá afgreiðslu. Svo pantaði ég mér bara skot og bjór, þar sem ég var að verða hálf edrú eftir allt þetta drykkjuleysi. Ég fékk Opal skot og bjór í stærsta glasi í heimi. Svo settist ég bara hjá einhverjum fínum gaur og spjallaði aðeins við hann. Svo kláraði ég bara bjórinn minn og rölti yfir á Sólon.
Kalli yfirdyravörður á Sólon hleypti mér strax inn, þannig það var ekkert vesen að komast inn. Takk fyrir það, Kalli minn!
En svo gerðist svolítið. Grétar sá mig þegar ég kom inn á Sólon, þó ég hafi reynt að snúa baki í hann og hunsa hann. Hann bað mig um að koma niður á klósettið til að tala saman, og gerði ég það. Við stóðum fyrir framan hurðina að einkaklósettinu. Við vorum búnir að pissa þannig við vorum ekki að fara að pissa, en þá kemur gaur sem reynir að komast rólega fram hjá okkur. Við það espist Grétar upp, þenur sig og ýtir gaurnum með bringunni. Ég verð þá ógeðslega pirraður út í Grétar fyrir að vera með stæla fyrr um kvöldið og svo aftur þarna við blásaklausan gaur - og ýti ég Grétari. Þá sýður gjörsamlega á Grétari og við förum hálfpartinn að slást þarna, sem endar með því að Grétar tekur mig hálstaki og kýlir mig í nefið, öskrar eitthvað og lætur sig svo hverfa.
Rikki G var staddur þarna á þessum tímapunkti þannig hann sá þetta allt. Sem betur fer fór ekki að blæða úr nefinu mínu, en Helgi athugaði hvort það væri brotið, og það var það ekki - sem betur fer!
Eftir á förum við Helgi út til að leita að Grétari, en hann var horfinn. Svo koma Halli, Ómar og Rafn. Svo fara þeir eitthvert og ég rölti aftur á Sólon. Þá var brjáluð röð bæði í venjulega röðinni og VIP röðinni. Ég beið í svona hálftíma í VIP röðinni eftir að komast inn, en það gerðist ekki neitt. Eftir sirka 30 mínútur fyrir utan kemur Símon félagi minn úr Borgó, og reddar mér inn. Takk fyrir reddinguna, Símon minn.
Þegar ég er kominn inn hitti ég Smára, sem er að vinna með mér í Húsasmiðjunni. Við fórum bara á barinn saman og ég fékk mér bjór og hann eitthvað orkudrykkjasull.
En þetta helvítis reykingarbann er að gera mig brjálaðan! Ég var þarna uppi á dansgólfinu og það var brjálæðislega heitt þar! Þrátt fyrir hitann fann ég svitalyktina af hverjum og einum þarna inni, þannig ég gat ekki verið þarna lengur. Ég verð nú að segja að mér finnst reykingarlyktin mun skárri en prumpu- og svitalyktin. Ég vil að þetta bann verði afnumið strax og verði það ákvörðun staðarins hvort það verði reykt inni eða ekki. Það var m.a.s. það mikið að gera í gær á Sólon að þeir tóku reykingarkeðjuna! Ef maður vildi fara út að reykja þurfti maður annað hvort að bíða í venjulegu röðinni, sem voru 300 manns í, eða í 100 manna VIP kássunni og krossa fingur um hvort maður komist inn. ÞETTA ER SVO GLATAÐ AÐ ÉG ER AÐ SPÁ Í AÐ HÆTTA AÐ DJAMMA!
En svo rölti ég bara með Halla eitthvað að stiganum og horfðum við á einhver slagsmál. Svo lokaði Sólon og við fórum bara heim. En fyrir utan Sólon hitti ég Karlottu, vinkonu mína á MinnSirkus. Langaði bara að taka það skýrt fram, og deildum við taxa með Halla og Gerði!
En núna í dag var ég vakinn klukkan 3 leytið til að fara upp í hús að vinna. Ég var fáránlega ógeðslegur, þunnur og þreyttur. Það var mikil vinna uppi í húsi og gerði ég m.a. eftirfarandi: fór með 52 búntum af frauðplasti á aðra hæð, 50 stykki af 40 kg sementspokum, 96 stykki af vínarhellum og háþrýstiþvoði svo húsið. Drullu duglegur!
En núna ætla ég bara að fara að sofa. Segjum þetta bara ágætt í bili!

Athugasemdir (