28 Weeks Later
Skrifað þriðjud. 5. júní 2007 - 01:34Eins og staðan er orðin í dag er Landsbankinn ekki að gera góða hluti hjá mér. Til að byrja með fluttu þeir útibúið sem var örfáum skrefum frá húsinu mínu, alla leið upp í Grafarholt. Ég fæ líka aldrei góða þjónustulund hjá þeim þegar ég hringi, ég þarf að breyta lykilorðinu mínu á Einkabankanum mánaðarlega - þrátt fyrir að vera með þennan helvítis auðkennislykil! Og ekki nóg með það heldur þarf lykilorðið að vera 8 stafir - sem er mjög erfitt að muna!
En ég fór í bíó núna í kvöld með strákunum; Halla, Gumma og Palla, og fórum við að sjá 28 Weeks Later, sem er framhald af forvera sínum, 28 Days Later.
Myndin er bara sýnd í Regnboganum og Háskólabíó, en við enduðum á því að velja Háskólabíó. Það er hræðilegt kvikmyndahús, þar sem til að byrja með eru sætin óþægileg, vantar popp- og goshaldara og svo það versta - þau selja bara Pepsi!
En þegar við komum þarna stóð á rúðunni á miðasölunni að það væri 2 fyrir 1 fyrir námufélaga Landsbankans. Ég er námufélagi í Landsbankanum, en ég fékk ekki 2 fyrir 1! Ástæðan var sú að ég var ekki með nýja námukortið með þessari heimskulegu gallabuxnamynd að framan. Hversu asnalegt er það?! Ég er greinilega minni eða enginn námufélagi bara út af því að ég er með öðruvísi mynd á mínu námukorti. Guð minn almáttugur! Ég mun segja skilið við Landsbankann. Þessi hræsni og mismunun fyllti gjörsamlega mælinn!
Nú er bara spurningin um hvert ég eigi að flytja mig?

En myndin er ágæt hrollvekja, stútfull af góðum bregðuatriðum. Þetta er náttúrulega mynd sem fjallar um hálfgerða uppvakninga, sem eru smitaðir af einhverri veiru. Eini munurinn á þessum myndum og hinum, þ.á.m. Dawn of The Dead, Land of The Dead, ofl., er sá að í 28 myndunum eru „uppvakningarnir“ ofvirkir, en í hinum myndunum chilla þeir bara.
Það segja allir sem telja sig hafa eitthvað vit á kvikmyndum, að þessi mynd sé vel tekin upp og sé vel klippt, en ég get bara því miður ekki verið sammála. Það hvernig þessi mynd er klippt og tekin upp, gerði það að verkum að ég skildi stundum ekkert hvað væri um að vera og satt að segja varð ég hálf ringlaður á því að reyna að fylgjast með þessum atriðum.
En þessi mynd er fínt framhald af 28 Days Later. Nú er bara spurning um hvort það komi enn eitt framhaldið, þar sem endirinn bauð svo sannarlega upp á það.
3/5
En ég vil bara segja að ég er hættur að reykja. Ég er ekki búinn að reykja síðan á laugardaginn og gengur það bara ágætlega. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég er að hætta, en ég sagðist ætla að gera það þegar reykingarbannið kæmi. Ég gerði það reyndar ekki þá en lofaði að hætta strax eftir kartonið, og nú er það búið - þannig ég er hættur!
En ég vil bara í lokin þakka strákunum kærlega fyrir bíóið. En núna er ég farinn að sofa þar sem það er vinna eldsnemma í fyrramálið. Segjum þetta fínt í bili!
En ég fór í bíó núna í kvöld með strákunum; Halla, Gumma og Palla, og fórum við að sjá 28 Weeks Later, sem er framhald af forvera sínum, 28 Days Later.
Myndin er bara sýnd í Regnboganum og Háskólabíó, en við enduðum á því að velja Háskólabíó. Það er hræðilegt kvikmyndahús, þar sem til að byrja með eru sætin óþægileg, vantar popp- og goshaldara og svo það versta - þau selja bara Pepsi!
En þegar við komum þarna stóð á rúðunni á miðasölunni að það væri 2 fyrir 1 fyrir námufélaga Landsbankans. Ég er námufélagi í Landsbankanum, en ég fékk ekki 2 fyrir 1! Ástæðan var sú að ég var ekki með nýja námukortið með þessari heimskulegu gallabuxnamynd að framan. Hversu asnalegt er það?! Ég er greinilega minni eða enginn námufélagi bara út af því að ég er með öðruvísi mynd á mínu námukorti. Guð minn almáttugur! Ég mun segja skilið við Landsbankann. Þessi hræsni og mismunun fyllti gjörsamlega mælinn!
Nú er bara spurningin um hvert ég eigi að flytja mig?

En myndin er ágæt hrollvekja, stútfull af góðum bregðuatriðum. Þetta er náttúrulega mynd sem fjallar um hálfgerða uppvakninga, sem eru smitaðir af einhverri veiru. Eini munurinn á þessum myndum og hinum, þ.á.m. Dawn of The Dead, Land of The Dead, ofl., er sá að í 28 myndunum eru „uppvakningarnir“ ofvirkir, en í hinum myndunum chilla þeir bara.
Það segja allir sem telja sig hafa eitthvað vit á kvikmyndum, að þessi mynd sé vel tekin upp og sé vel klippt, en ég get bara því miður ekki verið sammála. Það hvernig þessi mynd er klippt og tekin upp, gerði það að verkum að ég skildi stundum ekkert hvað væri um að vera og satt að segja varð ég hálf ringlaður á því að reyna að fylgjast með þessum atriðum.
En þessi mynd er fínt framhald af 28 Days Later. Nú er bara spurning um hvort það komi enn eitt framhaldið, þar sem endirinn bauð svo sannarlega upp á það.
3/5En ég vil bara segja að ég er hættur að reykja. Ég er ekki búinn að reykja síðan á laugardaginn og gengur það bara ágætlega. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég er að hætta, en ég sagðist ætla að gera það þegar reykingarbannið kæmi. Ég gerði það reyndar ekki þá en lofaði að hætta strax eftir kartonið, og nú er það búið - þannig ég er hættur!

Athugasemdir (