Ocean's Thirteen
Skrifað fimmtud. 7. júní 2007 - 00:11Ég fór á nýliðafund hjá Húsasmiðjunni eftir vinnu í dag. Ég og Elli mættum þarna í Kringlubíó og hlustuðum á eitthvað fólk tala um ýmislegt, þ.á.m. þjónustu, öryggismál ofl. sem snerti Húsasmiðjuna.
Svo eftir fundinn bauð Húsasmiðjan öllum á fundinum á sérstaka frumsýningu myndarinnar Ocean's Thirteen.

Myndin fjallar um Danny Ocean og klíkuna hans, sem leggja í enn eitt ránið eftir að spilavítiseigandi, Willy Bank, svíkur félaga þeirra, Reuben, úr upprunalegu ellefunni.
Myndin er bara mjög góð og er með einstaklega frábæra leikara í hlutverkum. Þar má m.a. nefna: Brad Pitt, George Clooney, Matt Damon, Al Pacino, Don Cheadle, Bernie Mac, Scott Caan, Eddie Izzard, Andy Garcia. Það er ekkert eðlilegt hvað þessi mynd skartar góðum leikurum.
Ég myndi segja að þessi mynd ætti ekki langt í land með að vera besta Ocean's myndin, en mynd nr 2 (Ocean's Twelve) var fáránlega misheppnuð, og án nokkurs vafa leiðinlegasta Ocean's myndin.
4/5

4/5Athugasemdir (