Deila á Facebook
« Ocean's Thirteen | Aðalsíða | Vesturferðin - ritskoðuð! »

Farinn vestur
Skrifað föstud. 8. júní 2007 - 18:13
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, það er komið að vesturferðinni hjá okkur strákunum. Farið verður í sumarbústað sem mamma og pabbi hans Helga eiga, sem er einhverstaðar úti í rassgati, Skálmarnes til að vera nákvæmur. Við verðum þar fram yfir helgi og komum aftur heim á sunnudaginn.


Ég fékk að fara fyrr úr vinnunni til að geta farið að pakka, versla, farið í klippingu og strípur, sturtu, ofl. og er þetta allt að koma.

Ég fór í ríkið og verslaði fyrir sirka 5000 kr., en það voru tvær kippur af Viking og svo ein lítil Opal flaska. Svo fór ég í Bónus og verslaði fyrir sirka 3000 kr., en það voru m.a. pylsur, brauð, salat, kók, snakk, nammi, ofl. Svo fór ég bara og keypti mér tvo pakka af sígarettum, þar sem ég reyki nú þegar ég er í glasi, þannig við erum komin upp í sirka 10.000 kr. Ég á eftir að borga í bensín, mat á leiðinni, ofl. þannig þetta verður alveg 15.000 kr. ferð.

En núna ætla ég að fara að klára að taka mig til svo við getum nú lagt af stað á réttum tíma, en brottför verður kl sirka 7.

Hafið það gott um helgina, elskurnar, og farið varlega. Ég tek svo myndavélina með mér vestur þannig þið fáið mikið af skemmtilegum myndum úr ferðinni. Segjum þetta ágætt í bili!




Athugasemdir ():